Síða 1 af 1
Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 00:52
af Danni V8
Sælir.
Ég er með hérna í tölvunni minni 2stk GTX770, annað þeirra er Gigabyte Windforce eflaust að slaga í 2 ára gamalt en held að það nær því samt ekki.
Í einni viftunni á WindForce eru komin alveg skelfileg óhljóð. Hljómar alveg nákvæmlega eins og harður diskur sem er að vinna á fullu 24/7. Hættir að vísu ef ég stilli hraðann upp. Á Auto stillingu eru þær á svona 1500rpm ca en ef ég stilli þær á 1950rpm hættir skröltið.. en þá þarf ég að stilla aftur á auto þegar ég fer í leiki og ég nenni ekki að standa í því alltaf.
Er búinn að prófa að rykhreinsa kortið (og alla tölvuna) en það heldur áfram þetta hljóð.
Er eitthvað hægt að gera í þessu? Efast um að það sé hægt að fá staka viftu í svona er það nokkuð?
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 01:43
af Hnykill
Þetta eru bara legur og /slit að gefa sig.. þú ert búinn að eiga kortið. ef vandamáliið er viftuhraðinn þá tatktu á honum
Vonum bara að skjákorts drivers stillingar nái yfir þetta
Shit ég er svo drukkinn þegar ég er að tala stundum /.. úff.. en já.. þú ert með 2x kort í SLI setup.. hitinn hækkar.. viftur fara á fullt. hávaðinn eykst og annað eins..
ef þú vilt hljóðláta vél, íhugaðy þá vatnskælingu.
Kraken X61 !! fíflakæling.. og annað í Obsidian 450D.. . svo mikil kæling og átti að vera það líka.. :/
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 03:13
af Diddmaster
ef það er op undir límiðanum sem er á miðjuni á viftum veit ekki hvernig þetta er hjá þér ég hef set dropa af olifu olíu í gatið og fengið þögn í langan tíma
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 12:15
af Danni V8
Ég þarf að kíkja á þetta með opið. Þetta hljóð er algjör hörmung, orðið svo slæmt að ég actually farinn að slökkva á tölvunni og fara út úr húsi af og til!
Vatnskæling er eitthvað sem er of dýr pakki fyrir, og meira vesen en ég er tilbúinn að standa í. Kaupi frekar annað 770 á ebay og sel þetta ódýrt en að fara í vatnskælingu

Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 12:24
af Tbot
Er ekki hægt að fá nýja viftu ef það er ekki hægt að bæta við smurningu á leguna?
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 12:36
af Haflidi85
Það er til einhver olía sem er ætluð í svona, veit ekki nákvæmlega hvernig hún er eða hvar svona olía fæst. Svo hef ég séð allskonar varahluti í svona kælingar á síðum eins og AliExpress og Amazon ofl. Einnig er oft hægt að kaupa non official kælingar á þessum síðum sem gætu passað.
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 18:58
af baldurgauti
Sumar viftur eru mjög tregar að taka í sundur, en aðrar eru það ekki, þú gætir mögulega tekið viftuna í sundur og skellt smurningu á þetta, man samt ekki hvernig smurning er notuð en þú gætir prufað að googla það
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 21:18
af jonsig
Ég get staðfest það að olíuleiðin er hörmung , hvað þá video´in á youtube sem sýna einhverja asna setja olíuna kringum viftuhúsið .
Ef maður tekur svona viftu í sundur þarf maður helst að nota spennujárn , sem er eins og mínusjárn með svona hálfgerði kúbeins lögun .
Ef olíu fixið gerir eitthvað yfir höfuð þá er það bara gálgafrestur , auk þess þarf þetta að vera olía fyrir high RPM .
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 22:22
af siggik
ég á ASUS 770 eftir smá gúggl kom fram galli í viftunni, nokkrar niðurstöður úti þar sem það var sama vandamál, var leiðinda hávaði í viftunni, svipað og hún væri að rekast í eitthvað, fór með kortið og lét skipta um viftuna hjá START
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mið 16. Mar 2016 23:23
af Danni V8
Já ég mun sennilega láta skipta bara um viftuna fyrir mig. Losaði hana úr brakketinu og smurði eitthvað aðeins og það deyfði hljóðið.. og hægði á viftunni. Hef ekki mikla trú á að það dugi lengi.
Skoðaði svona kort á eBay og þau eru ennþá alveg glettilega dýr! Þar sem annað kortið mitt er Asus og hitt er Gigabyte, ætlaði ég bara að finna annað Asus kort en það var bara 35k með sendingarkostnaði fyrir 4gb útgáfuna eins og er með... hélt að þessi kort væru orðin ódýrari.
Þannig ég fann með hjálp góðs félaga nýtt viftubrakket fyrir akkúrat svona kort á 21 dollara. Kaupi það sennilega og læt einhverja búð skipta, þori ekki að fikta og mikið í þessu sjálfur.
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Fös 18. Mar 2016 20:59
af jonsig
Þú prufaðir nú samt þvert á varnaðarorð að láta smurningu á þetta. kannski notaðiru 5w30 ? góð í cold start ..XD XD
kortin á ebay eru OP þau fara aldrei á þessum verðum , þú sérð það ef þú followar uppboð á þeim .
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Lau 19. Mar 2016 00:57
af Moldvarpan
Það sakar svosem ekki að setja dropa af olíu á leguna, þar sem viftan/legan þarf að skipta út.
En já, eina alvöru lausnin er að skipta út
Er þetta annars ekki frekar algengt á Gigabyte kortunum?
Ég hef átt nokkur MSI kort og þau hafa verið til friðs.
(Er að tala um kortin sem eru í gangi í dag, ekki fyrir mörgum mörgum árum. MSI er t.d. búið að bæta sig gríðarlega frá því sem var í den.)
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Lau 19. Mar 2016 01:05
af Danni V8
jonsig skrifaði:Þú prufaðir nú samt þvert á varnaðarorð að láta smurningu á þetta. kannski notaðiru 5w30 ? góð í cold start ..XD XD
kortin á ebay eru OP þau fara aldrei á þessum verðum , þú sérð það ef þú followar uppboð á þeim .
Ég reyndar las öll þessi varnarcomment eftir að ég smurði í leguna
En þetta er búið að snarskána núna. Steinþegir alveg.
Moddaði líka hliðina og setti viftu á hana og rykhlíf fyrir hana svo það er núna kominn utanaðkomandi blástur á kortin og þau hitna ekki næstum því eins mikið og í lokuðum kassa með engri viftu á hliðinni.
Panta síðan nýjar viftur í þetta næstu mánaðarmót og læt skipta fyrir mig og er nokkkuð viss um að næst þegar það fer að heyrast í þessu korti verða þau hvort sem er orðin löngu úrelt.
Re: Óhljóð í viftu á skjákorti.. er hægt að laga?
Sent: Mán 21. Mar 2016 01:37
af jonsig
Þetta ætti að virka þangað til að olían fer að vinna á plastinu .