Síða 1 af 1
Ati radeon 9800pro 128mb eða 256?
Sent: Mið 15. Des 2004 21:31
af MuGGz
jæja, þá er ég að spá í skjákorti ... ég á ekki 50-60k eins og sumir til að eyða í skjákort þannig að ég held að Ati Radeon 9800pro sé besti kosturinn fyrir mig...
enn spurninginn mín er sú, hvort ætti ég að fá mér
ATI Radeon 9800 PRO 256 MB DDR
eða
ATI Radeon 9800 PRO 128 MB DDR
ég las í
þessum þræði að maður gæti bara flashað 9800pro 256mb í XT enn ekki 128, það er eiginlega svona eina ástæðan að ég er að spá í 256mb ...
hvað er svona ykkar álit á þessu ?
Sent: Mið 15. Des 2004 22:24
af ponzer
Sent: Mið 15. Des 2004 22:26
af Hörde
Ef þú ætlar að eyða 35þús kalli í skjákort geturðu gert miklu betri kaup. Þessi tvö kort eru bæði allt of dýr miðað við afköst.
Þetta hér er til dæmis miklu, miklu, miklu sniðugra:
GeForce 6600GT AGP
Svo er hér t.d.
mun ódýrara 9800pro kort og annað
hér.
Gleymdu alla vega þessum tveimur kortum sem þú nefndir, þau eru
ekki þess virði. Ef þú vilt endilega 256meg kort, þá eyðirðu nokkrum auka þúsund köllum og finnur þér x800pro kort á ca. 40þús.
Sent: Mið 15. Des 2004 22:39
af MuGGz
mér finnst 9800pro vera gera betur enn 6600 gt...
rétt ?
og ég tók bara þessi kort í computer.is sem dæmi, veit að þú fást ódýrara annarstaðar
Sent: Fim 16. Des 2004 00:53
af Hörde
MuGGz skrifaði:mér finnst 9800pro vera gera betur enn 6600 gt...
rétt ?
Tja, nei.... Almennt
valta 6600gt kortin yfir 9800-línuna.
http://www.hardwareanalysis.com/content/article/1755.3/
Það eina sem 9800-serían hefur fram yfir 6600gt-seríuna er 256-bita minnisbraut.
Sent: Fim 16. Des 2004 08:57
af MuGGz
Enn hvað er þetta NX ?
eins og t.d.
Microstar GeForce NX6600GT - VTD128

Sent: Fim 16. Des 2004 12:04
af hahallur
Hörde skrifaði:MuGGz skrifaði:mér finnst 9800pro vera gera betur enn 6600 gt...
rétt ?
Tja, nei.... Almennt
valta 6600gt kortin yfir 9800-línuna.
http://www.hardwareanalysis.com/content/article/1755.3/
Það eina sem 9800-serían hefur fram yfir 6600gt-seríuna er 256-bita minnisbraut.
LOL
Það er rugl að bera þetta saman við Doom því 6600 kortið er jafnvel að ná X800 sumsstaðar, þessi leikur var bara decode-aður betur fyrir nVidia.
Eins og HL-2 var fyrst fyrir ATi kort en svo var það lagað því þeir eru ekki skúrkar

Annars sínist mér 6600 vera að top-a radeon þarna en þetta eru eitthvað skrítin benchmarks, ég var eitt sinn með R.9800 XT og var að keyra á miklu hærri FPS en þarna er gefið upp.
Sent: Fim 16. Des 2004 13:16
af MuGGz
ég verð nú samt að segja að mér lýst helv.. vel á þetta NX6600GT kort ...
Hvaða kort ætti ég að kaupa ?
ati radeon 9800pro eða MSI NX6600GT

Sent: Fim 16. Des 2004 14:21
af Dingo
6600 kortið...
Sent: Fim 16. Des 2004 14:28
af hahallur
Já verð nú að vera sammála því að það sé betri kostur, en gerðu þér engar grillur um að það outscore-i R.9800 eins og á þessu skrítna benchmark-i hér fyrir ofan.
Sent: Fim 16. Des 2004 14:51
af MuGGz
er þetta ekki besta kortið sem ég get fengið fyrir þennan pening ?
MSI NX6600GT
hámark 30.000

Sent: Fim 16. Des 2004 18:00
af Hörde
hahallur skrifaði:Hörde skrifaði:MuGGz skrifaði:mér finnst 9800pro vera gera betur enn 6600 gt...
rétt ?
Tja, nei.... Almennt
valta 6600gt kortin yfir 9800-línuna.
http://www.hardwareanalysis.com/content/article/1755.3/
Það eina sem 9800-serían hefur fram yfir 6600gt-seríuna er 256-bita minnisbraut.
LOL
Það er rugl að bera þetta saman við Doom því 6600 kortið er jafnvel að ná X800 sumsstaðar, þessi leikur var bara decode-aður betur fyrir nVidia.
Eins og HL-2 var fyrst fyrir ATi kort en svo var það lagað því þeir eru ekki skúrkar

Annars sínist mér 6600 vera að top-a radeon þarna en þetta eru eitthvað skrítin benchmarks, ég var eitt sinn með R.9800 XT og var að keyra á miklu hærri FPS en þarna er gefið upp.
Enda setti ég link á síðuna með. Setti bara Doom3 til að undirstrika pointið, sem er að 6600gt kortin eru annað hvort jafn hraðvirk, eða hraðari, en 9800-serían.
Taktu líka eftir að allt (nema 3dmark) er benchað í 1600x1200 þar sem minnisbandvídd 9800 kortana ætti að standa upp úr. 6600gt kortin eru
samt að standa sig, vegna þess hvað þau eru með sterka shader-vél (sem skiptir meira máli upp á framtíðina).
Alla vega, það er nóg að skrifa "6600gt review" í google og þá getur maðurinn tékkað á þessu sjálfur. Annars eru hérna tvær greinar:
http://tech-report.com/reviews/2004q4/g ... dex.x?pg=1
http://hardocp.com/article.html?art=Njg5
Bara að reyna að hjálpa....
Sent: Fim 16. Des 2004 18:02
af Pandemic
6800 eru mjög svipuð kort og x800 og ekki segja mér að 6800 sé lélegra annars áttu von á heimsókn

Sent: Fim 16. Des 2004 18:06
af Hörde
6600
Sent: Fim 16. Des 2004 18:17
af kristjanm
Taktu 6600GT frekar en 9800, ekki spurning.
Sent: Fim 16. Des 2004 18:34
af biggi1
á maður ekkert að taka mark á mb fjöldanum? ég er t.d. með 128mb ati raedon 9200se og er 256mb kort eitthvað mikið betra, eins og 9600 Pro 256MB 13.750 ?
Sent: Fim 16. Des 2004 19:26
af kristjanm
9600 er miklu betra en 9200SE, hvort sem það er venjulegt, Pro, XT, 256MB eða annað.
Það breytir ekki svo miklu hvort maður hefur 128MB eða 256MB, gerir það kannski í framtíðinni.
Sent: Fim 16. Des 2004 19:30
af Hörde
Hraði og megabyte-fjöldi eru algjörlega ótengd fyrirbæri. Hraði ákvarðar hvað kortið getur prócessað upplýsingarnar á kortinu hratt, megabyte segja bara til um hversu miklar upplýsingar er hægt að geyma á kortinu í einu.
Þú gætir verið með 100000000 gigabæta 9200se kort, en það væri samt hægvirkara en 128 megabæta 9600-kort svo lengi sem sá leikur sem þú værir að spila notaði ekki mikið meira en 100-200 megabæt af skjákortinu.
Sent: Fim 16. Des 2004 19:59
af einarsig
kristjanm skrifaði:9600 er miklu betra en 9200SE, hvort sem það er venjulegt, Pro, XT, 256MB eða annað.
Það breytir ekki svo miklu hvort maður hefur 128MB eða 256MB, gerir það kannski í framtíðinni.
Doom III í þarna úber stillingunni loadar allt að 512 mb í minni.... getur ekki verið slæmt að hafa 512 mb kort í því, annars held ég að 256 sé það sem flestir framleiðendur leikja í dag séu byrjaðir að stíla inná, þó er ég ekki að segja að öll 256 mb kort sé geggjuð.... en það getur amk ekki skemmt fyrir að vera með meira minni á kortunum.
Sent: Fim 16. Des 2004 20:00
af biggi1
svo að ef ég skil þetta rétt þá á ég að leita af korti með miklum hraða og 128 mb? en hvar sé ég hraðan? þú veist er hann mældur í hertsum eða hvað?
ég veit bara ekkert um skjákort
Sent: Fim 16. Des 2004 20:01
af einarsig
skoðaðu bara þessi benchmörks og pickaðu út það sem þú hefur efni á og miðað það við þennan lista
http://graphics.tomshardware.com/graphi ... ts-04.html
Sent: Fim 16. Des 2004 21:13
af kristjanm
Það er margt sem hefur áhrif á hraðann í skjákortum og ég ætla ekki að fara út í það hér.
Það sem flestir miða við er FPS(frames per second) í leikjum. Til þess að sjá hversu hratt skjákort er þarft að fara á netsíðu þar sem kortið er benchmarkað og borið saman við önnur kort.