Síða 1 af 1
Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Fös 10. Apr 2015 13:58
af kallikukur
Sælir vaktarar,
Nú er það þannig að það vantar nýja skrifstofutölvu í fyrirtækinu sem ég vinn fyrir og þar sem enginn af okkur er almennilega inn í tölvumálum þá leita ég til ykkar! Við erum að pæla í basic skrifstofutölvu sem ræðu við bókhald, létta photoshop vinnslu og svo almenna notkun (net o.s.frv), þennan pakka viljum við fá sem ódýrastan en samt þannig að þetta sé ekki úrelt á næsta ári
Þá spyr ég, hvar fær maður besta dílinn á svona grip?
p.s. ég vill helst ekki versla við tölvulistann vegna fyrri viðskipta.
kv. Gunnar
Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Fös 10. Apr 2015 14:04
af Seedarinn
Hvað gerðist á milli þín og tölvulistans?
Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Fös 10. Apr 2015 16:01
af Tbot
Þetta er alltaf erfitt að samræma ódýrt og duga lengi.
Getur talað við t.d. Kísildal, att eða fleiri minni aðila, eða skoðar tilbúnar vélar líkt og HP eða Dell.
spurnig hvort þú þurfir i3 eða i5 örgjörva. Miðað við að nota Photoshop þá hallast ég heldur að i5.
Það vantar smá info frá þér um verðhugmyndir... þ.e. má þetta vera á bilinu 100-150 eða 150 til 200.
Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Fös 10. Apr 2015 16:13
af Hrotti
Það eru kannski ekki allir sammála en mér finnst langbest að miða við að geta skipt út frekar hratt. Ekki eyða hellngs pening í vél bara til að hún dugi lengur, heldur kaupa ódýra vél, (100þús max) og endurnýja hana eftir 2 ár.
Ég geri ráð fyrir að það sé einhver server á staðnum sem að sér um backup ofl. þannig að það sé sáralítil vinna að skipta vélinni út annaðhvort ár.
Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Lau 11. Apr 2015 16:18
af kallikukur
Takk fyrir svörin,
Vorum að hugsa um eitthvað í kringum 100 þúsund kallinn en það er enginn server á staðnum, þetta er lítið fyrirtæki og lítið um gögn fyrir utan bókhald
Erum við þá bara að tala um að skokka upp í kísildal og fá þá til þess að setja saman í basic vél með i5 örgjörva?
@seedarinn: Bara smáatriði sem hefði verið svo auðvelt fyrir þá að hafa rétt en í staðinn fór maður út í móral, ekkert sem ber að nefna

Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Lau 11. Apr 2015 16:42
af chaplin
kallikukur skrifaði:setja saman í basic vél með i5 örgjörva?
Fyrir basic bókhald? Ef þú ert að vinna með bókhald myndi ég spara í örgjörvanum, skoða i3 eða A4 frekar og setja í staðinn SSD disk og 4-8GB af vinnsluminni í tölvurnar.
Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Lau 11. Apr 2015 16:44
af roadwarrior
Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Lau 11. Apr 2015 16:44
af andribolla
Ég var að kaupa vélar fyrir fyrirtækið sem ég vinn hjá og fékk tilboð í
http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 7,844.aspx svona vél hjá Nýherja, fékk svo tilboð frá tölvulistanum líka í svipaða vél en hún reyndist svo bara vera dýrari.
Re: Besti díll á skrifstofutölvu?
Sent: Lau 11. Apr 2015 19:25
af rapport