Síða 1 af 1
Enn einn pósturinn um að ég frýs í leikjum
Sent: Fös 26. Nóv 2004 18:13
af Sveinn
Ókei, ég held að ég sé búinn að búa til 4 pósta um þetta, en þetta virðist aldrei ætla að virka!!

(Setti þetta hérna því að mér fannst mest vera um skjákort í póstinum! :S hehe vissi ekki um neinn stað, megið færa það ef þið viljið)
Ókei málið er að tölvan frýs ALLTAF í leikjum! Ég er með 9600XT
Powercolor og Abit Ai7. Mér hefur verið sagt að þetta tvennt passi ekk i saman, eða þ.a.s skjákort sem eru Powercolor og Abit Ai7. En jæja í síðasta póstinum sem ég gerði fékk ég svar frá strák sem átti í sama vandamáli og ég (Mysingur heitir hann), eina sem hann gerði var að fara í Smartgart settings og stilla á 4x AGP, en það bara virkar ekki hjá mér! Ég er líka búinn að taka VPU Recovery, fastwrite og overdrive af, en bara ekkert virðist virka!

. Hvað gæti verið að? Ég er alveg uppiskroppa á hugmyndum, ég vill ekki þurfa að kaupa nýtt skjákort því mér finnst þetta fínt skjákort.

En er kanski ekkert annað til ráða en að kaupa nýtt skjákort?

Gæti það kanski verið minnið sem er ekki að virka með móðurborðinu? Er með óþekkt PC3200 minni.

Ég er með DNA 3.4.4.11 (nýjasta) driverinn.
Sent: Fös 26. Nóv 2004 18:21
af axyne
búinn að prufa að nota bara venjulegu Ati drivera ?
Sent: Fös 26. Nóv 2004 18:32
af Sveinn
hmm nei, held ekki, getiði sagt mér hvað nýjasti heitir?
Edit: Kanski líka íslenskt download til vona og vara?
Sent: Fös 26. Nóv 2004 18:35
af gumol
http://www.ati.is
Hvenar í leikjum frís tölvan? í byrjun eða bara einhvertíman í leiknum?
Sent: Fös 26. Nóv 2004 19:03
af Sveinn
Einhverntíman í leikjum bara. T.d var ég í nfsu2 áðan og ég náði að vera í honum í svona 20 min, stundum 5 min, mjög mismunandi. En aldrei alveg í byrjun
Sent: Fös 26. Nóv 2004 19:56
af Daz
Gölluð kæling einhversstaðar í kerfinu hjá þér? Hvernig eru hitastigin við keyrslu?
Sent: Fös 26. Nóv 2004 20:25
af Sveinn
Í keyrslu er cpu svona 30-35.
Sent: Fös 26. Nóv 2004 21:16
af Sveinn
Catalyst 4.12b BETA!, er þessi ekki nýjastur? :S
Sent: Fös 26. Nóv 2004 21:23
af hahallur
hann er kannski nýjastur en hann suckar í samburði við DNA

Sent: Fös 26. Nóv 2004 21:23
af SolidFeather
Jú
Sent: Fös 26. Nóv 2004 21:25
af SolidFeather
úúúú same time póst
allavega þá virkaði DNA driverinn ekkert vel fyrir mig, var slakari en 4.11. En kannski að maður kíki aftur á hann (er með 9700Pro)
Sent: Fös 26. Nóv 2004 21:34
af Sveinn
En heyriði, þetta virkar ekki ennþá, reyndar helst leikurinn út miklu lengur núna en samt dettur hann út á endanum.
Sent: Lau 27. Nóv 2004 09:18
af Daz
Sveinn skrifaði:Í keyrslu er cpu svona 30-35.
Kassahitastig? Harðadisk hitastig? Skjákorts hitastig?
Þú heldur að þú eigir í vandræðum með skjákortið og setur svo inn beta driver?

Fáðu þér einhvern eldri non-beta og athugaðu svo hvort það leysir málið.
Sent: Lau 27. Nóv 2004 11:58
af Birkir
Hann er einfaldlega að meina CPU (örgjörvi)
Sent: Lau 27. Nóv 2004 12:02
af einarsig
daz er væntanlega að biðja um hita stig á þessum hlutum.... held amk að hann sé ekki það vitlaus að vita ekki hvað cpu þýðir
Sent: Lau 27. Nóv 2004 12:04
af Birkir
Það eru nú margir sem halda að CPU þýði tölva

Sent: Lau 27. Nóv 2004 15:02
af Sveinn
Nei ég er ekki alveg svona fáfróður um tölvur, veit alveg CPU er ekki tölva. HEhe en ég er með abit ai7 móðurborð, og það einfaldlega styður ekki neitt forrit til að sýna hitastig og svona, veit ekkert nema að CPU er í 28-30 ekki í vinnslu og 30-35 í vinnslu held ég, og að hörðu diskarnir eru svona 30-40.
Sent: Lau 27. Nóv 2004 15:09
af Sveinn
Catalyst 4.11 Control Panel (Driver + Old Panel)
Catalyst 4.11 Control Center (Driver + CCC)
Ekki á ég að ná í þetta? Datt það bara í hug því að þetta er næst á eftir 4.12 :S :l
Annars er hérna hvað er hægt að ná í:
Catalyst 3.6 Catalyst 3.7 Catalyst 3.8 Catalyst 3.9 Catalyst 4.1
Catalyst 4.2 Catalyst 4.3 Catalyst 4.4 Catalyst 4.5 Catalyst 4.6
Catalyst 4.7 Catalyst 4.8
Catalyst 4.8 Control Center (Driver + CCC)
Catalyst 4.9 Control Center (Driver + CCC)
Catalyst 4.10 Control Center (Driver + CCC)
Catalyst 4.11 Control Center (Driver + CCC)
Catalyst 4.9 Control Panel (Driver + Old Panel)
Catalyst 4.10 Control Panel (Driver + Old Panel)
Catalyst 4.11 Control Panel (Driver + Old Panel)
Catalyst 4.12b BETA!
Catalyst Control Center (Standalone version)
Hvað á ég að ná í?
Sent: Lau 27. Nóv 2004 15:41
af Sveinn
BÚIÐ AÐ SEGJA MÉR!

ÞURFTIÐ EKKI AÐ SVARA :O ætla að prufa að seta 4.11 inn
Sent: Lau 27. Nóv 2004 18:21
af Daz
Birkir skrifaði:Hann er einfaldlega að meina CPU (örgjörvi)
Og ég var einfaldlega að meina að það vantaði fleiri hitastig.
Ef tölvan frýs eftir smá tíma í leikjum dettur mér fyrst í hug að skjákortið sé að ofhitna, hefurðu gáð hvort viftan á því fer í gang og hvort hún er laus? Er fyrirleitt einhver vifta á kortinu?
Sent: Mið 01. Des 2004 21:12
af Sveinn