Síða 1 af 1

HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 14:49
af Njall_L
Sælir njerðir

Er núna með setupið hjá mér
250GB SSD Fyrir stýrikerfið
1TB HDD Fyrir leiki/forrit
2TB HDD Fyrir Gögn

Hugmyndin hjá mér er að skipta út leikja/forritadisknum fyrir annan 250GB SSD. Myndi það breyta einhverju í hraða leikjanna, er þá aðallega að hugsa um GTA V þegar hann kemur út.
Restin af tölvunni er alls enginn flöskuháls en mér datt í hug að diskurinn gæti verið það.

Hvað segið þið?

Re: HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 15:07
af HalistaX
Loading tímarnir styttast bara, ekkert meir.

Re: HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 15:14
af Hnykill
Ég er að setja saman x99 setup og ætla mér bara að nota minn gamla 2TB HDD í það. hvort ég þarf að bíða í 5 eða 25 sekundur eftir að Windows loadast upp skiptir mig litlu máli. ekkert FPS gain fyrir leiki eða neitt :/ ..hef aldrei fundist þessir diskar vera þess virði eiginlega.

Re: HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 15:19
af Danni V8
Þegar ég færði mig yfir úr HDD í SSD fyrir leikina tók ég eftir því að í staðin fyrir að þurfa að bíða á meðan mappið loadaðist þá þurfti ég að bíða þangað til hinir loaduðu mappið þar sem leikurinn byrjaði ekki fyrr.

En síðan er líka tölvan bara miklu fljótari að öllu. Ég gæti ekki farið aftur yfir í HDD núna.

Re: HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 19:45
af Njall_L
Þannig að það eina sem ég væri að græða er styttri loading tími og ekkert hljóð í disknum?

Re: HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 19:49
af hagur
Njall_L skrifaði:Þannig að það eina sem ég væri að græða er styttri loading tími og ekkert hljóð í disknum?
Já - í rauninni. Svo má líka færa rök fyrir því að SSD diskar séu áreiðanlegri þar sem það eru engir hreyfanlegir hlutir í þeim, en þeir geta þó alveg feilað líka.

Re: HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 19:52
af Njall_L
hagur skrifaði:
Njall_L skrifaði:Þannig að það eina sem ég væri að græða er styttri loading tími og ekkert hljóð í disknum?
Já - í rauninni. Svo má líka færa rök fyrir því að SSD diskar séu áreiðanlegri þar sem það eru engir hreyfanlegir hlutir í þeim, en þeir geta þó alveg feilað líka.

Já vissi akkúrat af því, pælingin var bara því þessi HDD diskur hjá mér er orðin rosalega hágvær og mér heyrist hann vera að deyja og var að velta fyrir mér hvort ég ætti að kaupa annan HDD eða bara SSD

Re: HDD vs SSD fyrir leiki og forrit

Sent: Fös 27. Feb 2015 20:17
af HalistaX
Að vera með SSD er rosalega þægilegt, muna bara að taka stærri en 120gb. Battlefield 4 er 60gb og GTAV á að verða í kringum 65gb...