Síða 1 af 1
Skjákortaval
Sent: Fös 19. Des 2014 10:35
af steinihjukki
Sæl/ir.
Er að velta fyrir mér skjákortum (midrange). Valið stendur milli gigabyte nvidia geforce 760x OC 2 gb eða gigabyte AMD Radeon R9-270 OC 4gb. Hvort kortið er að standa sig betur í leikjum s.s. COD advanced warfare og Battlefield 4?
kv. Steini.
Re: Skjákortaval
Sent: Fös 19. Des 2014 10:48
af Selurinn
Bæði þessi kort eru mjög sambærileg miða við verð. (GTX 760 kortið hefur sirka 10% meira forskot á AMD kortið enda dýrar)
Ef þú ert að setja þetta í glænýja tölvu myndi ég hiklaust taka GTX 760. Ef um er að ræða eldri vél sem er með örgjöva sem hugsanlega getur verið flöskuháls þá er möguleiki að AMD kortið nýtist betur sökum Mantle.
http://en.wikipedia.org/wiki/Mantle_(API" onclick="window.open(this.href);return false;)
Re: Skjákortaval
Sent: Fös 19. Des 2014 11:11
af Moldvarpan
Það er þokkalega mikið framboð af notuðum R9 280X kortum hérna á vaktinni, nýleg og í ábyrgð. Þetta mikla framboð hefur keyrt verðið niður, svo ég myndi ekki hika við að kaupa eitt slíkt.
Lang besta bang for the buck sem þú getur fundið.
Re: Skjákortaval
Sent: Fös 19. Des 2014 11:54
af steinihjukki
Æji, æji. Jæja, var að versla gtx 760. Svona er þetta, maður fær alltaf betri upplýsinga um eitthvað áhugaverðara 10 mín eftir að maður kaupir
Re: Skjákortaval
Sent: Fös 19. Des 2014 14:17
af Tesy
steinihjukki skrifaði:Æji, æji. Jæja, var að versla gtx 760. Svona er þetta, maður fær alltaf betri upplýsinga um eitthvað áhugaverðara 10 mín eftir að maður kaupir
Verður samt ekkert vonsvikinn yfir gtx760
Re: Skjákortaval
Sent: Fös 19. Des 2014 15:49
af steinihjukki
Takk kærlega fyrir svörunina, held ég verði bara ánægður með 760x, er nú svosum enginn ultra spilari
Re: Skjákortaval
Sent: Lau 20. Des 2014 15:59
af tanketom
Mátt kaupa mitt
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=62616" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Skjákortaval
Sent: Lau 20. Des 2014 16:47
af steinihjukki
Ég hefði greinilega átt að gerast meðlimur fyrr og skoða hvað er í boði hér áður en glænýtt er keypt úr búð. Greinilega hægt að gera góð kaup á nýlegum notuðum tölvuíhlutum ofl.
Re: Skjákortaval
Sent: Sun 21. Des 2014 21:32
af steinihjukki
Eitt enn! Vildi vita hjá ykkur tölvusnillingum hvort skjákjarni á örranum mínum nýtist eitthvað með skjákorti? Er með AMD A10 6000 línu með 4gb skjákjarna. Móðurborðið er AMD A88 sniper. RAM 8 gb 1600 mhz.
kv Steini.
Re: Skjákortaval
Sent: Sun 21. Des 2014 21:59
af krat
steinihjukki skrifaði:Eitt enn! Vildi vita hjá ykkur tölvusnillingum hvort skjákjarni á örranum mínum nýtist eitthvað með skjákorti? Er með AMD A10 6000 línu með 4gb skjákjarna. Móðurborðið er AMD A88 sniper. RAM 8 gb 1600 mhz.
kv Steini.
Nei
Re: Skjákortaval
Sent: Mán 22. Des 2014 08:51
af steinihjukki
Verður mikill flöskuháls vegna örgjafans (AMD A10-6800) fyrir 760gtx skjákortið? Þá á ég við í leikjaspilun. Veit að örrinn stenst engan samanburð við Intel i-línuna í t.d. myndvinnslu og reikningaðgerðum ofl.
kv Steini.
Re: Skjákortaval
Sent: Mán 22. Des 2014 09:19
af krat
Varðandi flöskuháls í leikjaspilun þá yrði örgjörvi flöskuháls ef það verður einhver flöskuháls þar að segja en það fer alfarið eftir því í hvaða leik þú ert þar sem sumir leikir keyra meira á örgjörva en skjákorti (Minecraft) en FPS leikir aðalega skjákorti osfv.
Varðandi að vinna saman hélt ég að þú værir að tala um compute corse líkt og AMD hefur verið að gera, en þar sem þetta er gtx með amd örgjörva virkar það ekki saman.
http://www.amd.com/en-gb/innovations/so ... pute-cores" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Skjákortaval
Sent: Mán 22. Des 2014 15:59
af steinihjukki
Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu
Re: Skjákortaval
Sent: Mán 22. Des 2014 18:17
af krat
steinihjukki skrifaði:Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu
já, þarft samt að stilla það í BIOS.
Re: Skjákortaval
Sent: Mán 22. Des 2014 19:54
af hjalti8
steinihjukki skrifaði:Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu
þetta er ekki sniðugt með high end kortum(amk ekki í tölvuleikjum). Einfaldlega vegna þess að kortin eru margfalt hraðvirkari en bestu apu og
AFR virkar ekki vel með kortum sem eru ekki jafn öflug af augljósum ástæðum.
hérna geturu séð chart frá amd um hvaða apu/gpu er gott að para saman, og eins og þú sérð þá eru þetta allt budget kort sem eru frekar slöpp
Re: Skjákortaval
Sent: Mán 22. Des 2014 20:30
af krat
hjalti8 skrifaði:steinihjukki skrifaði:Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu
þetta er ekki sniðugt með high end kortum(amk ekki í tölvuleikjum). Einfaldlega vegna þess að kortin eru margfallt hraðvirkari en bestu apu og
AFR virkar ekki vel með kortum sem eru ekki jafn öflug af augljósum ástæðum.
hérna geturu séð chart frá amd um hvaða apu/gpu er gott að para saman, og eins og þú sérð þá eru þetta allt budget kort sem eru frekar slöpp
Allt hárrétt sem þessi segir en AMD hafa verið að lofa betrun í nýju línunni sinni, þar sem cpu og gpu eiga að tala betur saman án hnökra. Vonum bara að það sé satt
Re: Skjákortaval
Sent: Mán 22. Des 2014 21:40
af steinihjukki
Gott að heyra i vitrari mönnum. Takk kærlega fyrir.
kv.Steini