Síða 1 af 1
Fartölvu spennubreytir - straumur
Sent: Lau 23. Ágú 2014 16:14
af Perks
Sælir
Ég er að vandræðast með spennubreyti fyrir fartölvu, á tölvunni stendur 19v 3.42A en á spennubreyti stendur 19v 4.74A.
Myndi þetta ganga saman fyrst það er sama volt - tala eða myndi mismunur á amper steikja eitthvað?
Google svarar mér að það ætti að vera í lagi en langaði að heyra ykkar álit.
Re: Fartölvu spennubreytir - straumur
Sent: Lau 23. Ágú 2014 16:29
af kizi86
spenna frá hleðslutækinu /straumbreytinum þarf náttúrulega að vera meiri en hluturinn notar til að geta hlaðið inn straumi á meðan notkun stendur.. ef tengin passa þá ætti þetta að virka..
Re: Fartölvu spennubreytir - straumur
Sent: Lau 23. Ágú 2014 17:04
af arons4
Fartölvan dregur bara það sem hún þarf og ef spennugjafinn getur veitt meira en það ertu góður, passaðu hinsvegar að plúsinn og mínusinn séu eins báðu megin. Þ.E.A.S að þetta merki sé eins báðu megin.

Re: Fartölvu spennubreytir - straumur
Sent: Lau 23. Ágú 2014 19:58
af Klemmi
S.s. amper talan/straumurinn á spennubreytinum er "hámark" sem hann á að geta gefið út samfellt (continuous), fartölvan á svo að draga að hámarki 3,42A. Spennubreytirinn annar því vel miðað við tölurnar sem þú nefnir og gefur bara út eins mikið og tölvan dregur að hverju sinni.
Re: Fartölvu spennubreytir - straumur
Sent: Sun 24. Ágú 2014 01:01
af KermitTheFrog
kizi86 skrifaði:spenna frá hleðslutækinu /straumbreytinum þarf náttúrulega að vera meiri en hluturinn notar til að geta hlaðið inn straumi á meðan notkun stendur.. ef tengin passa þá ætti þetta að virka..
Held þú meinir straumur þarna. Spennan á að vera sú sama +- einhver prósent.
Straumurinn á hleðslutækinu er max output current og Það sem stendur á tölvunni er það sem hún dregur max. Eins og hefur komið fram hér að ofan.
Re: Fartölvu spennubreytir - straumur
Sent: Sun 24. Ágú 2014 01:19
af kizi86
KermitTheFrog skrifaði:kizi86 skrifaði:spenna frá hleðslutækinu /straumbreytinum þarf náttúrulega að vera meiri en hluturinn notar til að geta hlaðið inn straumi á meðan notkun stendur.. ef tengin passa þá ætti þetta að virka..
Held þú meinir straumur þarna. Spennan á að vera sú sama +- einhver prósent.
Straumurinn á hleðslutækinu er max output current og Það sem stendur á tölvunni er það sem hún dregur max. Eins og hefur komið fram hér að ofan.
hehehe my bad, meinti straumur:P skrifaði þetta í flýti
