Síða 1 af 1

GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 18:22
af littli-Jake
Var að fá vél hjá félaga mínum sem var að drepa á sér og hann hélt að skjákortið hjá sér væri einfaldlega að ofhitna. Ég ákvað að runna Fur-mark til að athuga hvort að það væri ekki öruglega rétt nema að ég hélt að mér væri óhætt að skilja vélina eftir í smástund. Hugsa að forritið hafi runnað í svona 5 min og þá drapst hún. Núna startar hún sér upp en gefur ekki signal á hvorugt outputið. Ætla að leifa henni að kólna í svona korter til að byrja með en eruð þið með einhver tips handa mér?

Re: GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 20:36
af MrSparklez
Hver var hitinn á kortinu þegar tölvan slökkti á sér ?

Re: GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 21:54
af littli-Jake
MrSparklez skrifaði:Hver var hitinn á kortinu þegar tölvan slökkti á sér ?
Sýnidst það vera að stefna í 90°C í furrmark. Sat ekki við hana þegar hún dó.

Re: GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 22:14
af aron31872
ég held að kortið eigi að þola meira átti readon kort sem komst upp i 115 c svo krassaði það

Re: GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 22:45
af Baldurmar
Getur alveg verið að aflgjafinn sé hreinlega að gefa sig. Skjákortið ætti að slökkva á sér áður en að það deyr..

Re: GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 22:49
af littli-Jake
Var að reyna aftur við vélina og hún fór nú bara í gang. Gæti verið eitthvað tæp tengsli einhverstaðar sem hafa rofnað út af hitaþenslu :-k

Er allavega að spá í að taka kælinguna af og skipta um hitakrem. Alls ekki cool ( :8) ) að kortið sé að smella sér í 90°C+

Re: GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 23:02
af Saber
Miklu meiri líkur á því að þetta sé aflgjafinn

Re: GTX 460 dautt út af ofhitnun?

Sent: Mið 05. Mar 2014 23:08
af littli-Jake
Saber skrifaði:Miklu meiri líkur á því að þetta sé aflgjafinn
Þetta verður allt skoðað í rólegheitunum :happy