Síða 1 af 3
Nexus 5
Sent: Fim 31. Okt 2013 22:32
af Swooper

Jæja, engum að óvörum tilkynnti Google í dag um
Nexus 5 símann, frekar glæsileg græja fáanleg í svörtu eða hvítu með 5" 1080p skjá, quad core 2,3GHz örgjörva, 2GB RAM, 2300mAh batterí (ekki fjarlægjanlegt), 16/32GB storage, LTE stuðningur auðvitað, og rúsínan í pylsuendanum: Android 4.4 Kitkat! $349/399 fyrir 16/32GB útgáfur respectively á bandaríska Play Store, eða £299/339 í Bretlandi. Full specs
hér.
Þar sem ég sé ekki fyrir mér að draumasíminn minn komi út alveg á næstunni (lágmarkskröfur þar eru 128GB storage), þá er ég alvarlega að hugsa um að skella mér á þennan, en ætla samt að bíða með að panta hann þar til nýji Nexus 10 kemur út (skrýtið að hann hafi ekki komið á sama tíma bara) svo ég geti tekið báða í einu!

Hvað með ykkur, einhverjir fleiri spenntir fyrir honum?
Re: Nexus 5
Sent: Fim 31. Okt 2013 23:15
af capteinninn
Mér finnst þessi vera mjög nice.
Er að spá að fá mér 32gb útgáfuna við tækifæri.
Re: Nexus 5
Sent: Fim 31. Okt 2013 23:30
af zedro
Mjög töff, frekar til í hann en djöfull fer rafhlaðan í mig að það sé ekki hægt að fjarlægja kvikyndið....hvað er málið með það?
Re: Nexus 5
Sent: Fim 31. Okt 2013 23:40
af littli-Jake
Zedro skrifaði:Mjög töff, frekar til í hann en djöfull fer rafhlaðan í mig að það sé ekki hægt að fjarlægja kvikyndið....hvað er málið með það?
Algjörlega sammála. Bara pirrandi.
En annars er þetta helvíti nett græja. Mundi alveg þurfa að hugsa út í þennan ef ég væri að skipta um síma.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 00:32
af GrimurD
Zedro skrifaði:Mjög töff, frekar til í hann en djöfull fer rafhlaðan í mig að það sé ekki hægt að fjarlægja kvikyndið....hvað er málið með það?
Ætli þetta sé ekki eins og með þessar ultrabooks, batteríið er fullt af litlum batteríum dreift um allan síman til að nýta plássið betur.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 00:39
af Victordp
Bróðir minn er að fara til US í des er að pæla að láta hann kaupa svona fyrir mig. Getur hann farið í t.d. AT&T og keypt síman og hann virkar á Íslandi ?
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 01:11
af Swooper
Victordp skrifaði:Bróðir minn er að fara til US í des er að pæla að láta hann kaupa svona fyrir mig. Getur hann farið í t.d. AT&T og keypt síman og hann virkar á Íslandi ?
Pantaðu af Google play store (notaðu proxy bara) og láttu senda á hótelið hans/staðinn þar sem hann gistir. Hann verður miklu dýrari úti í búð, eins og Nexus 4.
Zedro skrifaði:Mjög töff, frekar til í hann en djöfull fer rafhlaðan í mig að það sé ekki hægt að fjarlægja kvikyndið....hvað er málið með það?
Það sem böggar mig meira við rafhlöðuna er að hún skuli bara vera 2300mAh en ekki 3000mAh eins og sumir orðrómar sögðu... með quad core örgjörva og 1080p skjá hef ég smá áhyggjur af batteríendingu á honum.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 01:42
af intenz
Zedro skrifaði:Mjög töff, frekar til í hann en djöfull fer rafhlaðan í mig að það sé ekki hægt að fjarlægja kvikyndið....hvað er málið með það?
Sammála, og líka ekkert SD slot.
Bíð eftir Samsung Galaxy S5 og fæ mér Google Play Edition.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 02:08
af Swooper
intenz skrifaði:Sammála, og líka ekkert SD slot.
Jamm, en.. hei, Nexus, par for the course. Held ég geti alveg lifað án SD korts samt, nota mjög lítinn part af mínu eins og er.
intenz skrifaði:Bíð eftir Samsung Galaxy S5 og fæ mér Google Play Edition.
Eða færð þér bara venjulegu útgáfuna og flashar stock Android á hann, það er víst hægt með bæði S4 og HTC One. Annars er ekkert öruggt að það komi Google útgáfa af S5, það gæti alveg hafa verið one time thing þó mér finnist það líklegra en ekki að það haldi áfram.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 07:48
af KermitTheFrog
GrimurD skrifaði:Zedro skrifaði:Mjög töff, frekar til í hann en djöfull fer rafhlaðan í mig að það sé ekki hægt að fjarlægja kvikyndið....hvað er málið með það?
Ætli þetta sé ekki eins og með þessar ultrabooks, batteríið er fullt af litlum batteríum dreift um allan síman til að nýta plássið betur.
Það er, jú, spurning um compactness, en mér finnst hæpið að batterí sé dreift um síma/tölvu... hef aldrei rekist á slíkt í ultrabook amk. Með því að innbyggja það í símann sleppa þeir við að hafa harðskeljarhús utan um batteríið og þurfa ekki að hafa fjarlægjanlegt lok osfrv. Allt telur þegar verið er að hanna svona græjur og það þarf að fórna einhvers staðar. Getur ímyndað þér svona þríhyrning þar sem þú ert með compactness / modular / price og mátt velja þér tvennt (mjög gróft, en hey).
En það er aldrei "óútskiptanlegt"
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 10:13
af ponzer
GrimurD skrifaði:Zedro skrifaði:Mjög töff, frekar til í hann en djöfull fer rafhlaðan í mig að það sé ekki hægt að fjarlægja kvikyndið....hvað er málið með það?
Ætli þetta sé ekki eins og með þessar ultrabooks, batteríið er fullt af litlum batteríum dreift um allan síman til að nýta plássið betur.
Enginn vísindi á bakvið rafhlöðuna í þessum síma:
Þetta er í raun bara G2 með minni rafhlöðu, önnur myndavél, talsvert ódýrari og með stock Android
Afhverju eru 32GB ekki nóg ? Hvað eru menn að geyma svona mikið inn á símunum sínum ? Menn eru varla að geyma svona mikið af tónlist eða bíómyndum á símanum sínum, svo eru komnar svo margar þjónustur í cloudið að meðal notendur ættu aldrei að þurfa meira en 16-32gb myndi ég halda.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 10:37
af Swooper
ponzer skrifaði:Afhverju eru 32GB ekki nóg ? Hvað eru menn að geyma svona mikið inn á símunum sínum ? Menn eru varla að geyma svona mikið af tónlist eða bíómyndum á símanum sínum, svo eru komnar svo margar þjónustur í cloudið að meðal notendur ættu aldrei að þurfa meira en 16-32gb myndi ég halda.
Ég persónulega vil 128GB storage á síma svo ég hafi pláss fyrir 72GB-og-stækkandi tónlistarsafnið mitt og geti lagt iPodinum sem er að verða of lítill. Sé það ekki gerast alveg á næstunni svo ég sætti mig alveg við 32GB og er þá bara með hluta af tónlistinni minni.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 20:17
af KermitTheFrog
Swooper skrifaði:ponzer skrifaði:Afhverju eru 32GB ekki nóg ? Hvað eru menn að geyma svona mikið inn á símunum sínum ? Menn eru varla að geyma svona mikið af tónlist eða bíómyndum á símanum sínum, svo eru komnar svo margar þjónustur í cloudið að meðal notendur ættu aldrei að þurfa meira en 16-32gb myndi ég halda.
Ég persónulega vil 128GB storage á síma svo ég hafi pláss fyrir 72GB-og-stækkandi tónlistarsafnið mitt og geti lagt iPodinum sem er að verða of lítill. Sé það ekki gerast alveg á næstunni svo ég sætti mig alveg við 32GB og er þá bara með hluta af tónlistinni minni.
Hversu mikið hlustaru á öll þessi 70GB?
Mitt safn nær yfir 100GB. Nota Google Play Music, keypti all access, er með það helsta cachað í símanum á 32GB sd kort. Svo er aldrei langt í næsta WiFi. Eða hvernig væri að við færum að vaxa upp úr þessu 1gb á þúsundkall fornaldar 3g kerfi?
Ég held að 128GB símar höfði einfaldlega ekki til fjöldans.
Re: Nexus 5
Sent: Fös 01. Nóv 2013 23:47
af Swooper
KermitTheFrog skrifaði:Hversu mikið hlustaru á öll þessi 70GB?
Mismikið, en mér finnst þægilegt að geta verið með þetta allt við höndina ef mig langar að hlusta á eitthvað ákveðið lag/disk. Þetta er líka smá spurning um að þurfa ekki að vesenast í að velja hvað er mikilvægast, og að geta losað mig við iPodinn.
KermitTheFrog skrifaði:Ég held að 128GB símar höfði einfaldlega ekki til fjöldans.
Held að það sé fullkomlega rétt hjá þér, en ég efast ekki um að það sé nægilega stór niche markaður fyrir þá til að það borgi sig að framleiða þá um leið og tæknin verður til staðar.
Smá tangent hérna... veit einhver hvort það er hægt að sameina pláss af SD korti og internal storage í eina möppu? Þannig að ef ég væri með 64GB storage og 64GB kort, þá gæti ég búið til virtual möppu sem væri í raun á báðum stöðum, en hvað filesystemið varðar væri þetta ein mappa... svona soldið eins og libraries í Windows? Þá væri hægt að vera með meira en 64GB í möppunni, sem myndi leysa þetta fyrir mér í bili

Re: Nexus 5
Sent: Lau 02. Nóv 2013 01:30
af Pandemic
Swooper skrifaði:Victordp skrifaði:Bróðir minn er að fara til US í des er að pæla að láta hann kaupa svona fyrir mig. Getur hann farið í t.d. AT&T og keypt síman og hann virkar á Íslandi ?
Pantaðu af Google play store (notaðu proxy bara) og láttu senda á hótelið hans/staðinn þar sem hann gistir. Hann verður miklu dýrari úti í búð, eins og Nexus 4.
Getur ekki bara notað proxy, verður að vera með bandarískt kreditkort þar sem þeir keyra AVS á kortið.
Re: Nexus 5
Sent: Lau 02. Nóv 2013 01:35
af Swooper
Pandemic skrifaði:Getur ekki bara notað proxy, verður að vera með bandarískt kreditkort þar sem þeir keyra AVS á kortið.
Doh! Þar fór það plan

Takk fyrir að láta vita af þessu...
Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 10:49
af gottlieb78
Virkar 4G í honum hér heima ef keyptur í USA?
Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 11:21
af Hjaltiatla
Swooper skrifaði:Pandemic skrifaði:Getur ekki bara notað proxy, verður að vera með bandarískt kreditkort þar sem þeir keyra AVS á kortið.
Doh! Þar fór það plan

Takk fyrir að láta vita af þessu...
FYI: Þá er hægt að redda sér US kreditkorti í gegnum þetta fyrirtæki:
http://www.usunlocked.com/ MyUs.com voru að senda mér póst í gær og voru til að mynda að bjóða mér þetta kort og covera neðangreint
"Sign up for the US Unlocked card today and
we will waive the application fee.
(a savings of US $15!)"
Á reyndar eftir að sækja um það en reikna með að gera það fljótlega.
Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 11:29
af gottlieb78
gottlieb78 skrifaði:Virkar 4G í honum hér heima ef keyptur í USA?
En virkar 4G hérna heima???
Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 14:28
af hfwf
Það ætti að gera það styður lte 800 og lte 1800
Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 14:33
af SergioMyth
Smekklegur sími. Phone Block er hins vegar næsti sími sem ég ætla fá mér, að mínu mati er bara vitleysa og peningaplott að vera alltaf að elta einhverja síma og uppfærslur... En það er vissulega persónu bundið

Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 15:09
af dori
SergioMyth skrifaði:Smekklegur sími. Phone Block er hins vegar næsti sími sem ég ætla fá mér, að mínu mati er bara vitleysa og peningaplott að vera alltaf að elta einhverja síma og uppfærslur... En það er vissulega persónu bundið

Hahaha... Þú ert virkilega mikið á villigötum ef þú heldur að það að símanum þínum sé púslað saman minnki framboð af uppfærslum.
Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 15:27
af ponzer
gottlieb78 skrifaði:gottlieb78 skrifaði:Virkar 4G í honum hér heima ef keyptur í USA?
En virkar 4G hérna heima???
Nei það virkar ekki, það eru tvær týpur af þessum síma;
LG-D820 sem er fyrir US LTE kerfin
LG-D821 sem International síminn sem notar 4G tíðnirnar sem við erum að nota á Íslandi.
http://www.androidcentral.com/nexus-5-m ... etween-two" onclick="window.open(this.href);return false;
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_LTE_networks" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 18:12
af SergioMyth
dori skrifaði:SergioMyth skrifaði:Smekklegur sími. Phone Block er hins vegar næsti sími sem ég ætla fá mér, að mínu mati er bara vitleysa og peningaplott að vera alltaf að elta einhverja síma og uppfærslur... En það er vissulega persónu bundið

Hahaha... Þú ert virkilega mikið á villigötum ef þú heldur að það að símanum þínum sé púslað saman minnki framboð af uppfærslum.
Alls ekki vill bara minnka þau útgjöld sem fara í símakaup, að eltast alltaf við nýjar útgáfur af símum er miklu dýrara

Re: Nexus 5
Sent: Mið 20. Nóv 2013 18:18
af KermitTheFrog
SergioMyth skrifaði:dori skrifaði:SergioMyth skrifaði:Smekklegur sími. Phone Block er hins vegar næsti sími sem ég ætla fá mér, að mínu mati er bara vitleysa og peningaplott að vera alltaf að elta einhverja síma og uppfærslur... En það er vissulega persónu bundið

Hahaha... Þú ert virkilega mikið á villigötum ef þú heldur að það að símanum þínum sé púslað saman minnki framboð af uppfærslum.
Alls ekki vill bara minnka þau útgjöld sem fara í símakaup, að eltast alltaf við nýjar útgáfur af símum er miklu dýrara

En þegar PhoneBlocks 2.0 kemur?