Síða 1 af 2

Ný mús

Sent: Sun 22. Ágú 2004 14:35
af Mosi
Er orðinn helvíti þreyttur á gömlu kúlumúsinni minni, með hvaða mús mælið þið með og af hverju. Er með nokkrar í sigtinu. En ef það eru eitthverjar aðrar mýs sem þið mælið með endilega láta vita.

Sent: Sun 22. Ágú 2004 14:47
af Pandemic
Microsoft Intellimouse(R) Explorer 4.0 ? :D

Sent: Sun 22. Ágú 2004 15:00
af elv
MX700 er mjög fín

Sent: Sun 22. Ágú 2004 15:53
af Pandemic
Það eru bara 2 framleiðendur Sensora fyrir mýs þannig annað hvort er það logitech eða microsoft. Ég er mjög hrifin af microsoft þar sem skrunhjólið er alger shnilld mjúkt og svona síðan er hægt að fá mýs með leðri sem er plús :)

Sent: Sun 22. Ágú 2004 17:26
af viddi
Microsoft Intellimouse(R) Explorer 4.0

Sent: Sun 22. Ágú 2004 20:08
af OverClocker
Logitech MX510 er lang besta músin.

Sent: Sun 22. Ágú 2004 20:14
af elv
OverClocker skrifaði:Logitech MX510 er lang besta músin.
´

hver er munurinn á henni og mx 700 ?

Sent: Sun 22. Ágú 2004 20:20
af Predator
mx 700 er þráðlaus

Sent: Sun 22. Ágú 2004 20:34
af elv
Predator skrifaði:mx 700 er þráðlaus



Vissi það nú......en 700 er semsagt bara þráðlaus útgáfa af 510

Sent: Sun 22. Ágú 2004 21:00
af Predator

Sent: Sun 22. Ágú 2004 21:18
af OverClocker
elv skrifaði:

Vissi það nú......en 700 er semsagt bara þráðlaus útgáfa af 510


NEI! MX700 er þráðlaus útgáfa af MX500 !

Sent: Sun 22. Ágú 2004 21:29
af Pandemic
MX 510 er lítið breytt útgáfa af MX500
Breytingar: Geðveikt Gay litir loksins komnir fyrir fólk sem þykkist vera töff, þynginginn hefur verið tekin úr og smá performance boost á lasternum ekkert sem þú tekur eftir.

Sent: Sun 22. Ágú 2004 23:12
af tms

Sent: Sun 22. Ágú 2004 23:43
af ICM
Innbyggðar rafhlöður eru BARA óþolandi, þeir sem styðja svoleiðis segja að það sé ekkert mál að setja músina í hleðslu á hverju kvöldi, staðreyndin er sú að fólk man ekki alltaf eftir að gera það. Virkilega óþolandi að verða rafhlöðu laus í miðju fjöri og ekki hægt að skipta um rafhlöður, auk þess sem aðrar mýs en frá Microsoft (að MS Bluetooth undanskilinni) éta í sig rafmagnið óþolandi fljótt. Batterý eiga að endast í nokkra mánuði í senn og vera hægt að skipta um. Það er staðreynd að hleðslu rafhlöður missa kraft með tímanum svo ekki skaðar að hægt sé að skipta um og fólk sem er að væla yfir að þurfa að kaupa 2 AA batterý á 4 mánaða fresti getur keypt sér ódýr hleðsutæki, þar hefurðu allavega þann möguleika að kaupa þér ný hleðslu batterý í stað þess að kaupa þér nýja mús. TiltWheel rokkar btw og ég nenni ekki að ýta á enter svo ekki bölva.

Þessa fyrir leiki og skrifstofustörf/laptop
http://www.microsoft.com/hardware/mouse ... px?pid=003

Þessa fyrir skrifstofustörf: http://www.microsoft.com/hardware/mouse ... px?pid=002

Tek það fram að það er búið að laga Intellipoint hugbúnaðin, komið 5.2 þar sem er búið að bæta við per-application settings sem bar tekið út þegar tilt-wheel var kynnt en nú er hægt að nota bæði saman sem er toppurinn.

Sent: Sun 22. Ágú 2004 23:46
af ICM
btw þessa fyrir masókista: http://www.microsoft.com/hardware/mouse ... px?pid=027
og svo er að koma mús með fingrafara skanna og fleira frá hernum í Redmond.

Sent: Sun 22. Ágú 2004 23:49
af Nemesis
Microsoft Intellimouse(R) Explorer 4.0 myndi ég segja, ég á að vísu MS3 en ég hef prófað bæði MS4.0 og MX510 og mér finnst Microsoft músin betri. Annars er þetta aðallega spurning um smekk myndi ég halda. Þessi skoðanakönnun er btw bull, það vantar ms4.0 þarna :l

Sent: Mán 23. Ágú 2004 00:10
af Mosi
þetta átti að vera ms 4.0 ekki mx 4.0

Sent: Mán 23. Ágú 2004 00:13
af ICM
ég nota mikið "thumb" takkana og ég fæ alltaf illt í puttana af að nota þá lengi á logitec músum

Sent: Mán 23. Ágú 2004 00:16
af Mosi
IceCaveman skrifaði:ég nota mikið "thumb" takkana og ég fæ alltaf illt í puttana af að nota þá lengi á logitec músum
´
*hóst*ræfill*hóst* :D

Sent: Mán 23. Ágú 2004 01:07
af traustis
Ef þú ert að spila leiki þá er ekki málið að kaupa sérr þráðlausa mús því þær eru svo þungar vegna batteríanna (Bara mín skoðun :8) )

Annars er ég með mx510 og hún er alveg að standa sig :)
Og ég hef heyrt að ms 3.0 og ms 4.0 séu líka mjög góðar

Sent: Mán 23. Ágú 2004 01:08
af ErectuZ
Ekki kaupa þráðlausa mús í leiki. Þær eiga til að "lagga" (Afsakið. Fann ekki betra orð :oops: ) og eiga líka til að verða batterýslausar í miðjum bardaga :wink:

Sent: Mán 23. Ágú 2004 01:22
af Mosi
þess vegna var ég ekki með mx 700 í sigtinu

Sent: Mán 23. Ágú 2004 01:29
af ICM
Rainmaker skrifaði:Ekki kaupa þráðlausa mús í leiki. Þær eiga til að "lagga" (Afsakið. Fann ekki betra orð :oops: ) og eiga líka til að verða batterýslausar í miðjum bardaga :wink:

Já það er nokkra milli sekúntu töf á þeim en þær eiga ekki til að verða batterý lausar í bardaga ef hann fær sér Microsoft mús, þær byrja að láta vita nokkrum dögum áður en rafhlöðurnar klárast svo allir ættu að hafa batterý tilbúin við hendurnar nógu snemma, logitec mýsnar væru ónothæfar við þessar aðstæður.

Sent: Mán 23. Ágú 2004 07:29
af elv
Skil nú ekki ruglið í ykkur núna er með MX700. Þegar ég fékk hana átti hún til að lagga í leikjum.En ef þú ert með sendirinn beint fyrir framan hana í sömu hæð(er með minn sendir svona 8-12cm frá músinni) er þetta ekki vandamál.Og sambandi við þyngdinna :lol: jæja ég er nátturulega ekki 10ára, gæti þótt hún í þyngrai lagi ef ég væri það.En þyngdinn er góð svo maður er ekki út um allt í FSB leikjum,eða rekur sig eitthvað óvart í

Sent: Mán 23. Ágú 2004 09:10
af gnarr
elv skrifaði:En þyngdinn er góð svo maður er ekki út um allt í FSB leikjum,eða rekur sig eitthvað óvart í


hehe ;) spilaru mikið af FrontSideBus leikjum ;)

Ps. það er FPS.