Síða 1 af 3

Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:23
af inservible
Lionsklúbburinn fór sína árlegu sumarferð. Í klúbbnum eru 41 meðlimir, 6 fóru ekki með í ferðina. Í ferðinni gátu menn tekið þátt í siglingu og/eða gönguferð.
25 fóru í siglinguna og 18 í gönguferðina. Hve margir fóru bara í gönguferðina?

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:25
af ViktorS
10?

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:30
af Black
11

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:31
af Gúrú
10?

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:40
af inservible
Rétt, þá er ég með aðra!

Myntsafnari á átta krónur sem allir líta
eins út en ein er aðeins léttari en
hinar. Hvað þarf að vega krónurnar oft
til að finna léttu krónuna ef notuð er
vog með vogarskálum?

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:40
af tdog
8

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:42
af AciD_RaiN
Þessar spurningar eru ekki góðar fyrir svefninn !!! Ég er bara kominn með hausverk af þessu :klessa

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:42
af Klemmi
Gúrú skrifaði:10?
x2

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:43
af tdog
BTW takk fyrir, núna get ég ekki sofnað fyrr en ég átta mig á þessari 10 ...

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:45
af Klemmi
inservible skrifaði:Rétt, þá er ég með aðra!

Myntsafnari á átta krónur sem allir líta
eins út en ein er aðeins léttari en
hinar. Hvað þarf að vega krónurnar oft
til að finna léttu krónuna ef notuð er
vog með vogarskálum?
Ég myndi segja 3, en er voðalega hræddur um að svarið sé 2.

Vigtar fyrst 2 og 2, ef þær eru ójafnar þá ertu búinn að einangra við 2 kúlur og þarft bara að vigta milli þeirra til að sjá hvor er léttari.
Ef þessar 2 og 2 eru jafnar, þá ertu búinn að einangra það við hinar 4 kúlurnar sem eru eftir og þarft 2 mælingar enn til að finna léttu kúluna.

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:47
af inservible
2x er rétt svar!

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:50
af inservible
Ein klassík:

Maður og tveir synir hans þurfa að
komast yfir á. Maðurinn er 100 kíló og
hvor sonur 50 kg. Báturinn getur
aðeins borið 100 kíló.
Hvernig komast þeir yfir ána?

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:50
af Gúrú
Ef að þið ætlið að spila það þannig að heppni megi eiga stað í þessu þá er rétta svarið einu sinni,
þar sem að það þarf í rauninni bara að vigta léttu á móti eðlilegri einu sinni.

Réttasta svarið er þrisvar. :-k

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:50
af Klemmi
Nei, vigtar 3 á móti 3 og skilur 2 kúlur eftir!

Ef þær eru jafnar, þá er það önnur hvor hinna kúlanna, getur því vigtað þær og séð hvor er léttari.

Ef þær eru ójafnar, þá tekurðu léttari hliðina og vigtar 2 af þeim kúlum, ef þær eru jafnar þá er það þriðja kúlan.

Þannig þarftu alltaf bara 2 mælingar :)

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:51
af Garri
inservible skrifaði:Rétt, þá er ég með aðra!

Myntsafnari á átta krónur sem allir líta
eins út en ein er aðeins léttari en
hinar. Hvað þarf að vega krónurnar oft
til að finna léttu krónuna ef notuð er
vog með vogarskálum?
Hér er ein útfærslan:

1. Vigtar fyrst tvær og tvær saman. Það er fjórar.

2. Ef jafn þungar (worst scenario), þá vigtar þú hinar fjórar eins, tvær og tvær saman.

3. Þær tvær sem eru léttari er síðan vigtaður og niðurstaðan fæst.

Niðurstaðan: Þrjár vigtanir.

Hér er önnur útfærsla.

1. Vigtar þrjár og þrjár, það er sex. Ef jafn þungar þá vigtar þú þessar tvær sem eftir eru.

2. Vigtar tvær af þessum þremur. Ef jafn þungar þá er sú sem ekki var vigtuð léttust, annars sú sem er léttari.

Niðurstaðan: Tvær vigtanir sem er örugglega hámörkun.

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:53
af Klemmi
inservible skrifaði:Ein klassík:

Maður og tveir synir hans þurfa að
komast yfir á. Maðurinn er 100 kíló og
hvor sonur 50 kg. Báturinn getur
aðeins borið 100 kíló.
Hvernig komast þeir yfir ána?
Einföld:
1. báðir synirnir fara fyrst yfir
2. annar sonurinn til baka
3. pabbinn yfir
4. hinn sonurinn til baka
5. báðir synir yfir

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:53
af Garri
inservible skrifaði:Ein klassík:

Maður og tveir synir hans þurfa að
komast yfir á. Maðurinn er 100 kíló og
hvor sonur 50 kg. Báturinn getur
aðeins borið 100 kíló.
Hvernig komast þeir yfir ána?
Synirnir fara fyrst yfir.

Annar fer til baka og verður eftir en faðirinn fer yfir. Hinn sonurinn fer yfir og nær í bróður sinn.

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:53
af Gúrú
Klemmi skrifaði:Nei, vigtar 3 á móti 3 og skilur 2 kúlur eftir!
Me gusta. :)

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:54
af intenz
41 - 6 = 35

18+25 = 43 þannig 43-35 = 8 sem fóru í bæði gönguferð og siglingu. 18-8 = 10 ;)

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 01:58
af inservible
Ein loka svo er það góða nótt :)

Eftirfarandi samtal á sér stað í síma:
„Halló er þetta 5555555?“
„Já. Við hvern er ég að tala?“
„Þekkirðu ekki röddina í mér? Móðir mín er
tengdamóðir móður þinnar.“
Hver er mesti hugsanlegi skyldleiki þeirra
sem eru að tala saman?

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 02:02
af Garri
Barn viðkomandi

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 02:03
af Klemmi
inservible skrifaði:Ein loka svo er það góða nótt :)

Eftirfarandi samtal á sér stað í síma:
„Halló er þetta 5555555?“
„Já. Við hvern er ég að tala?“
„Þekkirðu ekki röddina í mér? Móðir mín er
tengdamóðir móður þinnar.“
Hver er mesti hugsanlegi skyldleiki þeirra
sem eru að tala saman?
Síamstvíburar, ljúgandi hægri vinstri....

En annars systkini föður...

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 02:03
af coldcut
inservible skrifaði:Ein loka svo er það góða nótt :)

Eftirfarandi samtal á sér stað í síma:
„Halló er þetta 5555555?“
„Já. Við hvern er ég að tala?“
„Þekkirðu ekki röddina í mér? Móðir mín er
tengdamóðir móður þinnar.“
Hver er mesti hugsanlegi skyldleiki þeirra
sem eru að tala saman?
feðgar

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 02:04
af Klemmi
coldcut skrifaði:feðgar
Ahh já, heimski heimski Klemmi!

Re: Þraut fyrir svefninn.

Sent: Mið 11. Júl 2012 02:04
af Garri
Yebb.. eða feðgin.