Síða 1 af 4
RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 13:57
af JReykdal
Sælir,
Sem tengdur aðili að RÚV HD bið ég ykkur um að leyfa mér að heyra ykkar upplifun á þeirri rás frá tæknilegu hliðinni.
Kv,
JReykdal
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:09
af intenz
ALGJÖR SNILLD!
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:10
af Daz
Ég gef henni 10.
Til fróðleiks hef ég hvorki HD afruglara, né HD sjónvarp, en horfi samt reglulega á HD rúv, því betri gæði eru betri gæði!
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:10
af arons4
Flott sýnist mér bara. Er allt sent út í HD á þessari rás eða bara fótbolti og slíkt?
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:14
af JReykdal
arons4 skrifaði:Flott sýnist mér bara. Er allt sent út í HD á þessari rás eða bara fótbolti og slíkt?
Ef HD er í boði verður það sent út en annars upscaled. Eins og er þá er það bara fótbolti og slíkt.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:17
af Tiger
Það er alltof mikið mál fyrir mig að leggja CAT kapal frá routernum í afruglaran vegna staðsettningar og því var ég að spá í svona
Heimatengi eins og þið auglýsið, myndi
200mb/sek duga í HD eða þarf ég
500mb/sek
Væri gaman að bera þessar HD útsendingar saman við SKY HD útsendingarnar hjá mér.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:19
af tdog
Tja, mamma er allavega farin að stilla sjálfkrafa á 201 … Held að það segi allt sem segja þarf!
Tiger: HD straumurinn tekur aðeins 8 Mb minnir mig, 200Mb ætti að duga.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:28
af appel
arons4 skrifaði:Flott sýnist mér bara. Er allt sent út í HD á þessari rás eða bara fótbolti og slíkt?
Það eru betri gæði á HD rásinni heldur en hinni, því hin er meira þjöppuð.
En aðeins sérstakir viðburðir eru actually í HD, s.s. EM, eurovision og hvaðeina.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:29
af lukkuláki
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:42
af coldone
Ég er með þetta í gegnum vodafone amino afruglara og munurinn er geysilega mikill. Er með 50" sjónvarp þannig að upplifunin á að horfa á boltann er miklu betri og skemmtilegri.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 14:51
af GuðjónR
Kemst ekki á 201 ... afruglarinn stoppar á 146 og byrjar aftur á 1.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 15:19
af AntiTrust
Verður frábært - Um leið og það verður e-ð annað en fótbolti þarna í HD
En munurinn er alveg gríðarlegur.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 15:23
af sakaxxx
GuðjónR skrifaði:Kemst ekki á 201 ... afruglarinn stoppar á 146 og byrjar aftur á 1.
prófaðu að restarta afruglarann það virkaði hjá mér
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 15:24
af DJOli
Nú spyr ég, virkar þetta á þessum standard Sagem afruglurum, eða þurfa notendur actually að vera með ljós?
mamma og pabbi eru með 10mb adsl tengingu.
Annars kæmi það mér bara ekkert á óvart ef þetta virkar bara á afruglurum sem eru með hdmi út.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 15:32
af Hargo
Ég er með Amino myndlykil gegnum Vodafone. Er með hann tengdan gegnum HDMI í sjónvarpið.
Þegar ég stilli á Rúv HD hikstar þetta allt saman svo mikið að það er ekki hægt að horfa á stöðina. Virkar þetta bara í gegnum ljósleiðara? Ég er með 12mb ADSL tengingu. Engin önnur umferð í gangi á routernum, ekkert torrent eða neitt þannig í gangi.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 15:40
af Skari
GuðjónR skrifaði:Kemst ekki á 201 ... afruglarinn stoppar á 146 og byrjar aftur á 1.
Skilst að þú verður að hringja í Símann og byðja þá um að opna fyrir þetta.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 15:41
af JReykdal
Endilega hafið samband við ykkar þjónustuaðila.
Notendur Símans þurfa að láta virkja HD hjá sér. Svo er líka hægt að láta þá banka aðeins í línurnar til að hressa strauminn við.
Síminn: 800 7000
Vodafone: 1414
JR
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 15:51
af GuðjónR
JReykdal skrifaði:Endilega hafið samband við ykkar þjónustuaðila.
Notendur Símans þurfa að láta virkja HD hjá sér. Svo er líka hægt að láta þá banka aðeins í línurnar til að hressa strauminn við.
Síminn: 800 7000
Vodafone: 1414
JR
Prófa að hringja og biðja um að virkja þetta, hvernig er það annars tekur HD ekki meiri bandvídd en venjulegur straumur?
Svo ein ábending til RUV fyrst þið eruð að fylgjast með, hvernig væri að vera með RUV Sport?
Ekki það að ég sé sportisti bara gott að losna við þetta sorp af RUV, ætlaði að horfa á fréttir í gær þá var boltaleikur Rússland vs Tékkland ....

Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 16:01
af GrimurD
Hargo skrifaði:Ég er með Amino myndlykil gegnum Vodafone. Er með hann tengdan gegnum HDMI í sjónvarpið.
Þegar ég stilli á Rúv HD hikstar þetta allt saman svo mikið að það er ekki hægt að horfa á stöðina. Virkar þetta bara í gegnum ljósleiðara? Ég er með 12mb ADSL tengingu. Engin önnur umferð í gangi á routernum, ekkert torrent eða neitt þannig í gangi.
Ef þú ert með ADSL tengingu þá er mjög hæpið að þetta virki. Höfum verið að fá fólk inn með ADSL tengingar sem mælast mjög vel og eru með nægan hraða fyrir þetta en HD rásin hikstar samt eins og enginn sé morgundagurinn. Ef þetta hikstar svona mikið hjá þér þá getur þú líklegast ekki horft á HD rásina. Getur sent mér PM með heimasímanúmerinu þínu og ég get mælt línuna fyrir þig og sagt þér hvort tengingin hjá þér ráði við þetta. Er starfsmaður í Tækniveri Vodafone.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 16:03
af JReykdal
GuðjónR skrifaði:JReykdal skrifaði:Endilega hafið samband við ykkar þjónustuaðila.
Notendur Símans þurfa að láta virkja HD hjá sér. Svo er líka hægt að láta þá banka aðeins í línurnar til að hressa strauminn við.
Síminn: 800 7000
Vodafone: 1414
JR
Prófa að hringja og biðja um að virkja þetta, hvernig er það annars tekur HD ekki meiri bandvídd en venjulegur straumur?
Svo ein ábending til RUV fyrst þið eruð að fylgjast með, hvernig væri að vera með RUV Sport?
Ekki það að ég sé sportisti bara gott að losna við þetta sorp af RUV, ætlaði að horfa á fréttir í gær þá var boltaleikur Rússland vs Tékkland ....

Það er komin aukarás sem er kölluð í bili "RÚV îþróttir". Að sjálfsögðu eru settar bara meiri íþróttir þar
JR
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 16:05
af Hargo
Ég er guðslifandi feginn að fá eitthvað annað en ruslið sem er vanalega í gangi. Ég er einnig feginn að þurfa ekki að greiða 365 miðlum fyrir áskrift að þessu.
RÚV á að vera fyrir alla, ekki bara gamla fólkið sem vill fá sína dagskrá óbreytta ávallt og alltaf. En til að halda öllum góðum þá tek ég undir það að sér rás fyrir svona viðburði væri sniðugur kostur til að halda friðinn. Við erum að tala um það að þegar
rangur þáttur af Leiðarljósi fór í loftið hrundi símkerfi RÚV nánast. The power of the elderly is strong!
Ég er búinn að hafa samband við Vodafone og er að reyna að fá þá til að athuga þetta hjá mér. Þeir breyttu stillingum þannig að sjónvarpið væri að fá meiri bandvídd en Rúv HD er enn að hökta til andskotans hjá mér og ekki hægt að horfa á stöðina. Pæli betur í þessu seinna - næst á dagskrá: Fótboltaveisla.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 16:25
af GuðjónR
JReykdal skrifaði:
Það er komin aukarás sem er kölluð í bili "RÚV îþróttir". Að sjálfsögðu eru settar bara meiri íþróttir þar
JR
hahahahaha
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 16:57
af hagur
Mjög sáttur, virkar smooth. Er með 2x Amino 140 og ljósleiðara i gegnum Vodafone.
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 17:10
af stebbi23
RúvHD er algjör snilld og synd að þetta hafi ekki verið komið fyrr.
er líka að feel'a hinar HD stöðvarnar sem Síminn er með, sérstaklega HIstory HD
annars heyrði ég það frá mínum manni hjá Vodafone þá er líka hægt að ná Rúv HD í gegnum örbylgjuloftnet núna, veit ekki hvort það verður lengur en á meðan EM er í gangi...
Re: RÚV HD - Ykkar álit
Sent: Lau 09. Jún 2012 17:21
af GrimurD
stebbi23 skrifaði:RúvHD er algjör snilld og synd að þetta hafi ekki verið komið fyrr.
er líka að feel'a hinar HD stöðvarnar sem Síminn er með, sérstaklega HIstory HD
annars heyrði ég það frá mínum manni hjá Vodafone þá er líka hægt að ná Rúv HD í gegnum örbylgjuloftnet núna, veit ekki hvort það verður lengur en á meðan EM er í gangi...
Það er líka hægt í gegnum örbylgju, allir á höfuðborgarsvæðinu sem eru með sjónvörp með innbyggðum HD móttakara geta séð RÚV í HD og þeir sem eru ekki með innbyggða geta fengið HD örbylgju myndlykla hjá Vodafone til að sjá þessar rásir.
Vona annars að 365 fari að step up their game og koma með einhverjar HD rásir. Þetta úrval sem er í boði í augnablikinu er bara vandræðalegt fyrir þá og að þurfa að vera með allar sportrásirnar til að fá HD hjá þeim er bara gjörsamlega út í hött. Vildi óska að Skjárinn væri með sitt efni líka á kerfum Vodafone. Væri löngu kominn með áskrift hjá þeim ef svo væri.