Síða 1 af 1

ódýr blekhylki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:51
af vesi
sælir vaktarar,,
er að leita mér að ódýrara-blekhilki en umboðsver.
var ekki einhver annar en blekhylki.is í hafnafyrði að bjóða ódýrt,, man þetta ekki alveg.

Re: ódýr blekhilki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:00
af dori
http://prentvorur.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: ódýr blekhilki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:02
af vesi
dori skrifaði:http://prentvorur.is/
takk fyrir :happy

Re: ódýr blekhilki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:45
af lukkuláki
Ástæða til að vara þig við ég hef séð þessi áfylltu hylki eyðileggja laser prentara

Re: ódýr blekhilki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:19
af Hjaltiatla
lukkuláki skrifaði:Ástæða til að vara þig við ég hef séð þessi áfylltu hylki eyðileggja laser prentara
Veistu hvað olli því ? Er það áfyllingarþjónustan eða hylkið sem slíkt sem olli veseninu (það að recycla gamalt hylki) , ástæðan fyrir því að ég spyr er ef ég man rétt þá er mælt með því að endurnýta hylki ef þau eru í lagi (Man að ég las þetta í ComtiA+ bók á sínum tíma). Þekki reyndar ekki þennan bransa nægilega vel til að vita hvernig þessu áfyllingarferli er háttað og hvort það sé engin leið að treysta þessu áfyllingarþjónustum á Íslandi þegar kemur að áfyllingu á Laser prent hylkjum.

Re: ódýr blekhilki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 18:31
af lukkuláki
Hjaltiatla skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Ástæða til að vara þig við ég hef séð þessi áfylltu hylki eyðileggja laser prentara
Veistu hvað olli því ? Er það áfyllingarþjónustan eða hylkið sem slíkt sem olli veseninu (það að recycla gamalt hylki) , ástæðan fyrir því að ég spyr er ef ég man rétt þá er mælt með því að endurnýta hylki ef þau eru í lagi (Man að ég las þetta í ComtiA+ bók á sínum tíma). Þekki reyndar ekki þennan bransa nægilega vel til að vita hvernig þessu áfyllingarferli er háttað og hvort það sé engin leið að treysta þessu áfyllingarþjónustum á Íslandi þegar kemur að áfyllingu á Laser prent hylkjum.
Tónerinn sjálfur var eitthvað drasl og settist fastur við tromlurnar og eyðilagði þær síðan eyðilagði hann fuserinn ef ég man þetta alveg rétt.
Ég veit líka um mörg tilfelli þar sem svona áfyllt hylki ganga algjörlega vandræðalaust en þetta virðist vera mikið subbulegra en original hylki og tónerinn dreifist gjarna út um allt og verður ansi subbulegt.

Re: ódýr blekhylki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 18:38
af Hjaltiatla
Ok betra að hafa þetta í huga þegar maður er að eiga við dýra Laserprentara í framtíðinni :-k

Re: ódýr blekhylki í Laser

Sent: Fim 24. Maí 2012 19:09
af Hargo
Tek undir með Lukku Láka, mín reynsla er eins af þessum áfylltu tónerum og blekhylkjum.