Síða 1 af 1

Tölvunám vantar info

Sent: Fim 26. Jan 2012 22:11
af AronBjörns
Ég er virkilega að pæla í að fara að læra forritun samt ekki ákveðið hvað þar sem ég hef svo mikið sem enga reynslu, nema það sem ég hef fiktað við sem er ekki mikið.

Langaði að athuga hvort einhver hérna gæti beint mér á retta braut eða jafnvel ef þið vitið um einhvern skóla hérlendis/erlendis sem þið mælið með. Áður en þið nefnið eitthvað ber mér að nefna að ég hef ekki lokið framhaldsskóla!

Það sem mig langar að mennta mig í er Objective-C, Python jafnvel og PHP + MYSQL. Án þess að hafa nokkurt vit á þessu öllu. :)

Kv,
Aron Ásberg

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fim 26. Jan 2012 22:12
af worghal
er þá ekki bara tækniskólinn málið ?

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fim 26. Jan 2012 22:17
af AronBjörns
worghal skrifaði:er þá ekki bara tækniskólinn málið ?
Er maður ekki að taka Íslensku og Náttúrufræði með? <- nennis

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fim 26. Jan 2012 23:04
af vesley
AronBjörns skrifaði:
worghal skrifaði:er þá ekki bara tækniskólinn málið ?
Er maður ekki að taka Íslensku og Náttúrufræði með? <- nennis

Slepptu þessu þá. :-"

Margborgar sig að klára grunnfögin líka og jafnvel bara taka stúdent með. Mikið auðveldara að gera það nú til dag en það var fyrir nokkrum árum og vantar ekki margar einingar uppá.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fim 26. Jan 2012 23:10
af Plushy
Ef þú ert að fara byrja, kláraðu íslensku áfangana fyrst. ALLA. Annars verðurðu í vandræðum seinna ef þú ert ekki skarpasti í íslensku, eða finnst leiðinlegt að greina ljóð og kvæði.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fim 26. Jan 2012 23:24
af SDM
:megasmile

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fim 26. Jan 2012 23:34
af arnif
http://www.codecademy.com" onclick="window.open(this.href);return false; og http://www.learnpython.org/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 00:10
af axyne
það eru held ég ekki margir háskólar sem hleypa þér inn ef þú ert ekki með stúdent.

Mæli með frumgreinadeildinni í H.R tekur 2 ár ef þú ert ekki búinn með neitt í frammhaldsskóla.
Mér fannst íslenskukennslan þar flott, og er ræðumennska partur af öllum áföngunum sem hjálpaði mér mikið að koma framm.

Eða gera einsog Worghal segir og fara í tækniskólann.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 01:19
af kubbur
Mæli með c#, fullt af tutorials a netinu, getur líka keypt byrjendabækur með tutorials og farið að fikta, það gerði ég

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 02:00
af AronBjörns
Takk fyrir öll svör, keep 'em coming! Það hlýtur að vera einhver séni í þessu hérna. :)

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 02:52
af fremen
Hversu gamall? Háskólar eru ekkert lokaðir endilega þó þú sért ekki stúdent ef þú ert orðinn nógu gamall.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 03:40
af Ripparinn
php ftw.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 04:54
af AronBjörns
fremen skrifaði:Hversu gamall? Háskólar eru ekkert lokaðir endilega þó þú sért ekki stúdent ef þú ert orðinn nógu gamall.
21 árs gamall, Ripparinn varðandi php þá er það í rauninni það eina sem ég kann 'eitthvað' í, hef gaman að því. Annars hef ég líka mikinn áhuga á Java.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 10:09
af cartman
Blessaður

Ég mæli eindregið með því að þú takir áfanga í íslensku og ensku ef þú ætlar að fara að vinna við þetta. Sérstaklega ef þú ert að fara að læra objective C ( og ég geri þá ráð fyrir að þú sért að fara að forrita fyrir Iphone/Ipad ) Illa stafsett forrit eru ekki málið.

Eins og Kubbur segir að þá er C# mjög auðvelt og þægilegt forritunarmál til að byrja að forrita í.
Charles Petzold er með 2fríar bækur hér(.net book zero og Programming Windows Phone 7) :http://www.charlespetzold.com/books.html
og þú getur náð þér í visual c# express hér: http://www.microsoft.com/visualstudio/e ... rp-express
Channel 9 er líka með fullt af video tutorials fyrir c#: http://channel9.msdn.com/
Þessi bók er líka mjög góð og detailed: http://www.amazon.com/gp/product/B0040Z ... TVJJQN46S9 Mæli með henni, Hún var kennd í Háskólanum í Reykjavík þegar ég var þar(reyndar .net 2 platform).

og svo skoða síður eins og Codeprojecthttp://www.codeproject.com/ og stackoverflowhttp://stackoverflow.com/

Ef þú ætlar í Java þá myndi ég sækja jdk-ið hér: http://www.oracle.com/technetwork/java/ ... index.html
Og svo sækja Intellijhttp://www.jetbrains.com/idea/download/index.html, Eclipse:http://www.eclipse.org/ eða eitthvað annað IDE (ég nota sjálfur IntelliJ þegar ég er að forrita í java og community útgáfan er ókeypis)

Thinking in Java bókina er held ég hægt að nálgast á netinu ókeypis.

Ef þig langar að prófa Ruby þá er það hægt hér : http://tryruby.org/levels/1/challenges/0

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 10:21
af dori
Ef þú vilt læra Python þá er Dive into Python flott ókeypis bók.

http://www.diveintopython.net/toc/index.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Annars er spurning. Ef þú vilt vinna við þetta er lang auðveldast að hafa eitthvað plagg sem sýnir að þú kannt þetta. Ég myndi sjá hvort þú komist inn á einhverja svona frumgreinabraut í Háskóla og hvort það borgi sig á móti því að klára framhaldsskóla (ég veit ekki hvað þú átt eftir svo það er erfitt að mæla með einhverju hérna).

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 10:24
af natti
fremen skrifaði:Hversu gamall? Háskólar eru ekkert lokaðir endilega þó þú sért ekki stúdent ef þú ert orðinn nógu gamall.
Jú, með tilkomu frumgreinanáms þá lokast háskólarnir á næstumþvíalla.

Áður en frumgreinadótið varð "de-facto standard" þá var hægt að komast inn í háskóla á "undanþágu", byggt á starfsreynslu og whatnot, ef þú varst orðinn nógu gamall (25 ára minnir mig).

Eg er t.a.m. ekki með stúdent, og fyrir nokkrum árum síðan hefði ég getað gert eins og félagi minn, farið í HR beint inn á tölvunarfræðibraut án þess að vera með student. Bara á þeim forsendum að vera nógu gamall, vera með starfsreynslu í "geiranum" og hafa áhuga á því að skella sér í nám.
Á þeim tíma var ekkert frumgreinanám að kalla hjá HR.
Hinsvegar, núna er þetta ekki lengur hægt. HR eru mjög fastir á því að ef maður ætlar inn í skólann þurfi maður annaðhvort að vera með student, eða klára frumgreinadeild.
(Upplýsingar byggðar á eigin reynslu í samskiptum við HR.)

Þannig að það er um að gera að klára stúdent.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 13:06
af Daz
natti skrifaði:

Hvað með HÍ? Engin frumgreina deild þar og ég veit að þeir voru opnir fyrir "óstúdentuðum" nemum hérna áður fyrr.

Re: Tölvunám vantar info

Sent: Fös 27. Jan 2012 13:19
af natti
Daz skrifaði:
Hvað með HÍ? Engin frumgreina deild þar og ég veit að þeir voru opnir fyrir "óstúdentuðum" nemum hérna áður fyrr.
http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_um_i ... i_grunnnam" onclick="window.open(this.href);return false;

Frumgreinadeild Keilis ("Háskólabrú") gegnir því hlutverki fyrir HÍ

Almenn skilyrði eru stúdendspróf, eða nám í skóla á háskólastigi.
Nær allar deildirnar taka eftirfarandi fram:
HÍ skrifaði: Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu
Einstaka deildir eru svo með önnur frávik (t.a.m. Hjúkrunarfræðideild)

Ef við tökum tölvunarfræðideild sem dæmi, þá stendur:
HÍ skrifaði: Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands), próf frá frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild frumgreinadeildar Keilis (háskólabrú) teljast sambærileg stúdentsprófi