Síða 1 af 1
Er í vandræðum með GreatSpeed Router og file-sharing forrit.
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Saber
Ég er með ADSL 512 Kbit/s í gegnum GreatSpeed GS-R250S router. Virkar fínt á netinu en...
Fyrst þá náði ég aldrei að download-a með P2P/file-sharing forritum (KaZaA, Ares, Blubster o.fl.), nú eftir að ég kveikti á NAT-port forwarding á routernum (setti bara "Default Workstation IP" á sama og netkortið mitt) þá tekst mér að download-a en bara mjög hægt (0.5 - 3 KByte/s).
Kann einhver af ykkur ráð við svona vandræðum?
Smá fix
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Saber
Réttara sagt er ég með GreatSpeed GS-R250S Duo router.
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af kiddi
Hmm.. ég er enginn sérfræðingur, en mér skilst að það geti oft verið erfitt fyrir tvo router-a að tala saman á svona P2P forritum, þrátt fyrir að þú sért búinn að opna port... t.d. í DC++ gengur mér oftast illa að tala (ehrm, transfera) við aðra gaura sem eru líka með ADSL router! Alveg óskiljanlegt
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Jakob
Fáðu þér almennilegan router marr!
Ég er með Cisco 827 ADSL router, og með honum get ég nattað vélina mína beint út á IP töluna sem hann fær úthlutaða frá ISPinum.
No port forwarding what so ever!
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af halanegri
vinur minn var líka að fá sér svona duo router, það stendur allavega í leiðbeiningunum að maðurþarf að nota þetta port forwarding dæmi til að geta notað file-sharing forrit og senda file með messenger og fleira
Reddaðist
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Saber
Ég er að hugsa um að sleppa því að fá mér annan router útaf svona litlu vandamáli. Þetta virkar fínt í SoulSeek og ég er búinn að komast að því að það er LANG besta file-sharing forritið (nú fyrst að AudioGalaxy er dautt).
reyndar...
Sent: Mán 13. Jan 2003 16:10
af w201
Ekki sammala að soulseek se best dc++ er einfaldlega lang best allt innanlands ef thu tengir thig a rettan stað
Sent: Mán 13. Jan 2003 17:37
af natti
Jakob skrifaði:Fáðu þér almennilegan router marr!
Ég er með Cisco 827 ADSL router, ....
Þetta verð ég að segja er 120% út í hött.
Jú, routerar geta verið mismunandi, og sumir hverjir í "lélegri" kantinum.
En það er ekki hægt að mæla með "professional" routerum fyrir heimtengingar.
Cisco 827 er overkill fyrir einstakling heima.
Þetta er fínt fyrir Fyrirtæki sem tengir starfsmenn, til að geta haft betri stjórn á öllu. (Og ég geri sterklega ráð fyrir því að þú hafir ekki borgað þetta stykki sjálfur, nema þú spreðir
50-60k í router??!?.)
Hinn venjulegi notandi hefur nefninlega ekkert að gera með neinn cisco router heima hjá sér.
Margir eru sáttir við sína greatspeed og/eða speedtouch routera.
Það er margt til, spurning hvað maður fær mikið fyrir peninginn.
En persónulega myndi ég ekki nokkurntímann mæla með að fólk færi að eyða 50þúsund ísl kr í lítið box til að tengja það við netið, þegar það kemst af með eitthvað á 20þús eða undir, sem dugar jafn vel.
- Edit:
Svo ég tali nú ekki um að það er töluvert flóknara að setja svonleiðis router upp heldur en greatspeed dótið.