Síða 1 af 3
Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:41
af GuðjónR
Mig langaði að benda ykkur á að ef þið eruð að spá í að kaupa HDD þá er líklegast rétti tíminn núna.
Það eru ennþá verslanir sem eru ekki búnar að hækka. Þessar hækkanir eru verulegar!
Dæmi um hækkanir.
3TB diskar
Tölvulistinn var 29.900 hækkar í 35.990. = hækkun 6.090.kr. eða 20.4%
Computer.is var 28.900 hækkar í 33.900. = hækkun 5.000.kr. eða 17.3%
2TB diskar
Tölvulistinn var 12.990 hækkar í 22.990. = hækkun 10.000.kr eða 77%
Tölvutek var 12.900 hækkar í 16.900. = hækkun 4.000.kr. eða 31%
Computer.is var 12.990 hækkar í 17.900. = hækkun 4.910.kr. eða 37.8%
1TB diskar
Tölvulistinn var 8.990. fer í 17.990. = hækkun = 9.000kr. eða 101%
Tölvutek var 8.990. fer í 10.900. = hækkun 1.910.kr. eða 21.2%
Computer.is fer í 9.990 11.900. = hækkun 1.910.kr. eða 19.1%
Það sem vekur athygli mína er að dollarinn og evra hafa verið að lækka, og ofantaldar búðir hækka þessar vörur allar á sama tíma.
Annað hvort eru allir framleiðendur HDD að hækka verðin svona verulega og svona "snöggt" eða búðirnar allar að hækka álagninuna sína á sama tíma.
Spurning hvort það sé að koma "heimsmarkaðsverð" á HDD ... eins og á bensínið.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:43
af Plushy
Why!!!!
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:45
af GuðjónR
Plushy skrifaði:Why!!!!
Græðgi?
Það er ekkert óvanalegt að sjá tölvubúnað hækka í lok nóvember og út desember og lækka svo í janúar, það er nánast árviss viðburður.
En núna eru þessar hækkanir fyrr á ferð, í síðustu viku ruku örgjörvarnir upp í verðum og núna hörðu diskarnir.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:46
af mind
Trúi ekki að á tæknispjallborði hafi fólk ekki hugmynd um hvað er að gerast annars staðar í tækniheiminum.
Getið varla farið á alvöru tölvu og tæknisíðu án þess að það sé grein um þetta sem útskýrir málið.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:48
af bAZik
Ástæðan:
http://www.xbitlabs.com/news/storage/di ... iland.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:48
af GuðjónR
mind skrifaði:Trúi ekki að á tæknispjallborði hafi fólk ekki hugmynd um hvað er að gerast annars staðar í tækniheiminum.
Getið varla farið á alvöru tölvu og tæknisíðu án þess að það sé grein um þetta sem útskýrir málið.
Ef þú ert að vitna í flóð í Thailandi eða að Gaddafi var drepinn í gær þá vitum við það.
En diskar hafa verið að hækka úr $75 í $100 sem er 33% hækkun og það réttlætir varla 101% hækkun út úr búð hérna heima eða hvað?
p.s
Þú ættir nú að segja atvinnurekandanum þínum að slaka aðeins á í verðlagningunni.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:51
af k0fuz
Mikið er ég feginn að hafa ákveðið að kaupa 2TB disk í gær á 12.500 kr hjá kísildal
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 17:55
af AntiTrust
Þessi hækkun er nánast eingöngu tilkomin vegna flóða í Tælandi. Verksmiðjurnar sjálfar virðast flestar hafa sloppið en þeir sem supplya minni íhluti hafa orðið verr úti, ásamt flutningsleiðum og vegum. Hinsvegar hefur ástandið þar áhrif á öll fyrirtæki og útflutning, og það var búist við því að stærri fyrirtæki og stórir lagerar úti myndu hampa að sér eins miklu magni og þeir gætu, sem ýtir enn meira undir hækkanir.
Það er þó afskaplega undarlegt að það sé svo mikið ósamræmi á milli verslana hérna heima.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 18:13
af FuriousJoe
Það hækkar alltaf allt rétt fyrir jólamánuðina strákar, má alveg búast við að aðrir hlutir hækki líka.
Edit; og hvaða týpur eru þetta sem dæmin eru tekin um þarna efst ? Seagate og WD ? (hvað með Samsung?)
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 18:14
af GuðjónR
AntiTrust skrifaði:Það er þó afskaplega undarlegt að það sé svo mikið ósamræmi á milli verslana hérna heima.
Misjöfn álagning greinilega.
Kannski eru sumir með álagningu í krónum meðan aðrir þrjóskast við og nota prósentur.
Annars þarf ég að laga HDD listann á Vaktinni...hann er í rúst eftir hækkanir dagsins.
Góðu fréttirnar eru samt þær að nokkrar verslanir eiga ennþá HDD á "eðlilegu" verði
Þannig að ekki bíða ef ykkur vantar HDD.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 18:57
af Klaufi
Vona að maður nái einhverju á morgun, ætlaði að ná mér í TB disk í næstu viku..
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:08
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:Vona að maður nái einhverju á morgun, ætlaði að ná mér í TB disk í næstu viku..
Drífa sig að panta núna á vefsíðu verslunar, þannig tryggir þú þér verðið.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:10
af Gizzly
k0fuz skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa ákveðið að kaupa 2TB disk í gær á 12.500 kr hjá kísildal
Segðu!
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:15
af vesley
Kaupa allt saman og selja.
profit
Annars er þessi hækkun alveg ansi dramatísk hjá Tölvulistanum verð ég að segja. Trúi því nú ekki að verðin séu að fljúga svona hátt.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:09
af audiophile
Gizzly skrifaði:k0fuz skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa ákveðið að kaupa 2TB disk í gær á 12.500 kr hjá kísildal
Segðu!
Sem er í dag á 15.500kr :
Djöfull voru þeir fljótir að smyrja á þetta.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:15
af GuðjónR
audiophile skrifaði:Gizzly skrifaði:k0fuz skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa ákveðið að kaupa 2TB disk í gær á 12.500 kr hjá kísildal
Segðu!
Sem er í dag á 15.500kr :
Djöfull voru þeir fljótir að smyrja á þetta.
Þeir hljóta að hafa fengið risa sendingu af HDD í dag eins og svo mörg önnur fyrirtæki sem hækkuðu í dag, eða kannski eru þeir að herma eftir olíufélögunum?
250GB/320GB diskar eru líka að hækka, ég reikna nú ekki með því að tölvufyrirtæki séu mikið að panta þannig diska. Dreg því þá ályktun að einhverjir noti tækifærið og hækki "lagerinn" í leiðinni.
Og ef menn ætla virkilega að kenna flóðum í Tælandi, sólgosi eða fullu tungli, hver var þá afsökunin síðasta föstudag þegar flest þessara fyrirkækja hækkuðu verðin á örgjörvunum?
Mótmæli í Grikklandi kannski? *kaldhæðni*
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:33
af GullMoli
AntiTrust skrifaði:Þessi hækkun er nánast eingöngu tilkomin vegna flóða í Tælandi. Verksmiðjurnar sjálfar virðast flestar hafa sloppið en þeir sem supplya minni íhluti hafa orðið verr úti, ásamt flutningsleiðum og vegum. Hinsvegar hefur ástandið þar áhrif á öll fyrirtæki og útflutning, og það var búist við því að stærri fyrirtæki og stórir lagerar úti myndu hampa að sér eins miklu magni og þeir gætu, sem ýtir enn meira undir hækkanir.
Það er þó afskaplega undarlegt að það sé svo mikið ósamræmi á milli verslana hérna heima.
Þetta er rétt. Þessi hækkun kom inn til okkar fyrir þónokkrum dögum en hækkunin var svo gerð fyrir örfáum.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:35
af GuðjónR
Jæja....þá var Tölvutækni að hækka flestalla diskana sína líka í takt við hina. Þá eru allir búnir að hækka.
Þeir sem náðu ekki að tryggja sér HDD á "gamla" verðinu verða að sætta sig við 30-100% hækkun eða bíða þangað til sjávarföll í Japan verða okkur hagstæð.
Það er annað sem ég er að spá í, WD, Seagate, Samsung eru allir að hækka, skiptir engu máli hvaða tegund umræðir allt hækkar svona svakalega. Voru allir þessir diskar framleiddir í sömu verksmiðjunni og flæddi inní? Eða eru allir framleiðendurnir að framleiða dótið sitt á sama stað?
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:44
af bulldog
sem betur fer var ég búinn að panta i7 2700k örrann
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:49
af hagur
"Gaman" að sjá hvað Tölvulistinn er öflugur í hækkunum. Allt að 101%, takk fyrir.
"Tölvulistinn, Alltaf betra verð!"
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 22:05
af bulldog
það er líka skítafyrirtæki ...
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 22:09
af GuðjónR
bulldog skrifaði:það er líka skítafyrirtæki ...
usss uss uss, þetta var ekki fallega sagt.
Það verður samt gaman að sjá hvort verðið verður jafn fljótt að lækka aftur og það var að hækka þegar þeir skáeygðu hafa lagað niðurföllin hjá sér.
Annars er það jákvæða við þetta það að verðbilið á milli SSD og HDD minnkar, sem ætti nú að vera hvetjandi fyrir ykkur að fara í SSD
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 22:16
af Gizzly
Þarf enga hvatningu í það!
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 22:23
af cure
Gizzly skrifaði:Þarf enga hvatningu í það!
Ætli hann hafi ekki verið að tala til fleirri en bara þín.
Re: Fréttir! Miklar verðhækkanir á HDD
Sent: Fös 21. Okt 2011 22:24
af AntiTrust
GuðjónR skrifaði:
Það er annað sem ég er að spá í, WD, Seagate, Samsung eru allir að hækka, skiptir engu máli hvaða tegund umræðir allt hækkar svona svakalega. Voru allir þessir diskar framleiddir í sömu verksmiðjunni og flæddi inní? Eða eru allir framleiðendurnir að framleiða dótið sitt á sama stað?
Tjah, það hefur nefnilega verið tekið sérstaklega fram í sumum fréttum að þetta eigi ekki að hafa mikil áhrif á Samsung, afhverju sérstaklega þá veit ég ekki. En 25% af öllum HDD verksmiðjum eru staðsettar í Tælandi. Það hefur ekki flætt beint inn í neina HDD verksmiðju, hvorki WD né Seagate, en það hefur hinsvegar flætt e-ð inn í fyrirtæki eins og ON Semiconductor, Hutchinson, Microsemi og Nidec sem framleiða mikið af HDD íhlutum, sem kemur þá væntanlega niður á flestum framleiðendum.
Margar verksmiðjur hafa líka bara lokað þeim vegna öryggisráðstafanna.