Síða 1 af 2
Verðvaktin - fleiri vöruflokkar?
Sent: Þri 30. Mar 2004 15:30
af kiddi
Jæja félagar! Loksins komið að því að við erum að fara að keyra nýja Verðvakt í gang.. gagnagrunnstengda með allskyns fítusum og mun reglulegri uppfærslum.
Við höfum verið að velta fyrir okkur að bæta við vöruflokkum, hvaða vörur mynduð þið helst vilja sjá inni?
Verið raunhæfir! Það er t.d. alls ekki hægt að gera sanngjarnan verðsamanburð á móðurborðum vegna þess hversu mörg og ólík þau eru, þetta verða að vera hefðbundnir hlutir sem eru til hjá langflestum verslunum, og verður að vera eitthvað sem öllum vantar.
Hvað dettur ykkur í hug?
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:00
af Voffinn
Mýs og aukahlutir þeim tengdum.
Það eru jú til ansi mikið af mýslum í búðum hérlendis en flott væri að taka t.d. logitech línuna og ms línuna í músum og lyklaborðum. Það er það eina sem mér dettur í hug að sé hægt að hafa.
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:01
af kiddi
Já, það var okkar hugmynd líka. Og jafnvel CDRW+DVD skrifara líka... það er fátt annað sem kemur til greina samt svona í fljótu bragði, því væri gott að fá fleiri álit hingað inn
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:15
af pyro
kannski hljóðkort?
eða 3 pin fan connectors?
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:16
af Snorrmund
hmm... kannski skjái? kannski ekki margar búðir sem selja sömu skjáina en samt eða setja inn einhverskonar mini-review á skjám/músum/lyklaborðum.. getur verið ekkert smá erfitt að velja sér þessa hluti
virðist allt vera eins
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:36
af fallen
móðurborð
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:43
af Tesli
halli lesa greinina áður en þú svarar henni
Sent: Þri 30. Mar 2004 17:05
af fallen
kaldhæðni
Sent: Þri 30. Mar 2004 19:18
af gumol
Það væri ágætt að hafa verð á skrifanlegum geisladiskum og DVD diskum.
Sent: Þri 30. Mar 2004 19:30
af muggsi
skrifanlega diska - aflgjafa ( þyrfti bara að fara eftir watta fjölda eða eitthvað) - kassaviftur - geisladrif (þá kannski aðalega skrifara, dvd og venjulega) - switcha??
Sent: Þri 30. Mar 2004 19:55
af Snorrmund
setja inn sér fyrir SE kort t.d. hafa ATI Radeon 9800se ekki flokkað sem ATi Radeon9800
Sent: Mið 31. Mar 2004 18:19
af FrankC
skrifanlegir diskar og skrifarar, bæði CD-R/RW og DVD
sterkur leikur að bæta þessu við
Sent: Mið 31. Mar 2004 18:48
af GuðjónR
Við verðum samt að passa okkur...því að núna sjá búðirnar sjálfar um uppfærslurnar og ef við höfum þetta of viðamikið þá er hætta á því að þetta verði of mikil vinna fyrir verslunareigendur og þeir bakki út úr þessu.
Sent: Mið 31. Mar 2004 19:23
af Voffinn
Skrifanlegir diskar eru bara nei.
Það eru svo margar tegundir og mismunandi gæði.
Sent: Mið 31. Mar 2004 19:31
af gumol
Voffinn skrifaði:Skrifanlegir diskar eru bara nei.
Það eru svo margar tegundir og mismunandi gæði.
Það er hægt að segja það sama um harða diska, skjákort og vinsluminni.
CD og DVD passa mjög vel inn að mínu mati, en kanski alveg spurning hvað margir myndu nota sér það.
Sent: Mán 05. Apr 2004 17:27
af Sveinn
Skjáir ( Gerðirnar )
Mýs ( MS og Logitech )
Viftur ( Gerðirnar bara, ZALMAN ofl )
Lyklaborð ( MS og Logitech )
Sent: Mán 05. Apr 2004 17:31
af Hlynzit
Móðurborð
Sent: Mán 05. Apr 2004 18:11
af FrankC
ég held að það sé ómögulegt að setja inn móðurborð, alltof margar mismunandi gerðir...
Sent: Mán 05. Apr 2004 18:20
af GuðjónR
Hlynzit skrifaði:Móðurborð
....útilokað það eru til 100000 tegundir og ekki séns að bera þær saman.
Sent: Þri 06. Apr 2004 00:12
af wICE_man
Skjáir: CRT/LCD, 15"/17"/19"..., flat/normal (CRT) og hugsanlega upplausn.
Geisladrif: CD/DVD/CDRW/Combo/DVDR, skrif/les-hraði.
Móðurborð: Þetta er tricky, best væri að fara eftir fidusum, Sökkull, kubbasett, FSB (266/333/400/533/800/1600), gagnastaðlar (SATA/ATA133/ATA100), útvær tengi(firewire/USB2/LAN/GigaLAN).
Aflgjafar: Wötts up!
Þetta væru vel þegnar viðbætur, en ég skil vandamálið með móðurborðin, en þar er málið að halda sig við mesta mismun á þeim eftir föngum, öll nýrri móðurborð hafa USB2 og ATA133 en bara sum firewire eða SATA, langflest hafa LAN en bara sum Gigabit LAN annars snýst málið aðalega um sökkul og FSB hraða sem gefur til kynna hvaða örgjörva það styður.
Gangi ykkur vel.
Sent: Þri 06. Apr 2004 19:19
af Nemesis
Mér finnst móðurborð vanta mest, vel hægt að bera þau saman! Takat.d. 3 intel borð og 3 amd borð frá 3-4 framleiðendum, t.d. ABIT, ASUS og MSI. Að fara eftir fítusum væri of flókið í framsetningu, sniðugra að hafa einungis sumar tegundir.
Alls ekki lyklaborð, það er fáranlegt! Í fyrsta lagi kaupir maður örsjaldan lyklaborð, í öðru lagi eru of margar tegundir og í þriðja lagi eru verslanir með lítið úrval af þeim.
Mér finnst heldur ekki vanta aflgjafa, mýs og viftur, þetta er svo lítið og mismunandi dót, á ekki heima sem sér flokkur. Svo tekur enga stund að komast að þessu sjálfur ef mann vantar eitthvað af þessu.
Svo vil ég bæta því við að vinnsluminnisdálkurinn er ekki nothæfur, það er bara miðað við low-end minnin. Er ekki hægt að hafa þetta eftir timings eða merkjum líka?
Sent: Mið 14. Apr 2004 19:41
af gumol
Hvað með að bæta internettengingum við? Það væri ekkkert mál að flokka það eftir download hraða. (reyndar dáldið ósangjart með ul hraðann ip tölur o.s.frv. en hey, þetta er bara tillaga)
Þær eru að vísu ekki vélbúnaður og ekki vara heldur þjónusta en það er eitthvað sem er okkur náið.
Sent: Fim 22. Apr 2004 03:04
af corflame
Einfaldast að mínu mati væri cd/dvd drif, bæði lesarar og skrifarar.
Þarf ekki að koma fram framleiðandi, heldur einungis hraði les/skrif auk format (dvd +/- rw) o.s.frv.
Tiltölulega einfalt að útfæra þetta tel ég án þess að hafa nokkuð komið nálægt innvolsinu á þessu kerfi
Sent: Fös 04. Jún 2004 11:50
af °°gummi°°
mér finnst þetta vera í fínum málum hjá ykkur, það væri næs að hafa dvd diska en til hvers að hafa cd? HD eru ódýrari
eeeeeníhú, það væri gaman að koma með svona roundup við og við, sem væri þá bara greinar hér á spjallinu, engin review þannig séð, bara myndir, spekkar, verð og hlekkir. Það er t.d. vel hægt að hafa móðurborð roundup, taka 2xamd og 2xIntel frá hverri búllu og hafa verð og spekka með, svo geta menn rökrætt um hver séu bestu kaupin.
Nokkur Roundup sem mættu koma:
Skjáir
Skjávarpar
Hljóðkort
hljóðkerfi
kassar
kælingar
mýs
lyklaborð
bíótölvu stöff eins og fjarst. sjónvarpskort og fl.
Sent: Fös 04. Jún 2004 12:10
af zream
Vá mýs og það er kanski of mikið en : Skjáir , Skjávarpar og hljóðkort. Koma þessu inn og svo er kanski hægt að setja in kassa og hljóðkerfi.