Síða 1 af 1
Dauður magnari
Sent: Þri 21. Okt 2008 21:00
af supergravity
Ég bara get ekki passað puttana á mér. Var að skoða magnarann minn áðan og setti puttann í viftuna á honum og viti menn, hann drap á sér. Hann kveikir ekki á sér aftur - búinn að taka úr sambandi og láta bíða í nokkrar mínútur en hann fer samt ekki í gang. Ég er búinn að opna hann og finna öryggið en það virðist í fínu lagi. Er hann bara FUBAR eða er eitthvað meira sem gæti komið til?
Þetta er
svona gaur
Einhver lent í svipuðu?
Re: Dauður magnari
Sent: Þri 21. Okt 2008 21:30
af jonsig
fóstu með puttann í viftuna og boom,1,2 og 3? right
Re: Dauður magnari
Sent: Þri 21. Okt 2008 22:14
af supergravity
manni hegnist fyrir að vera að reyna að gera HTPC settið hljóðlátt... magnarinn drap á sér um leið og viftan stoppaði, hélt henni ekki nema 1 sek..
Re: Dauður magnari
Sent: Þri 21. Okt 2008 22:34
af CCR
Hefur líklega eyðilagt eitthvað í spennugjafanum. Spurning hvort það sé einhver rás sem reglar spennuna fyrir viftuna og fleira sem hefur farið þegar viftan þurfti aukin straum þegar þú stoppaðir hana. Snertiru eitthvað annað í magnaranum?
Re: Dauður magnari
Sent: Þri 21. Okt 2008 23:10
af jonsig
viftan hefur ekki bara skemmst , og búnaður farið í gang sem kveikir ekki á magnaranum nema viftan sé í gangi ? svona fail-safe mechanizmi ? þú eyðileggur ekkert spenni á að böggast í 3-5w viftu
Re: Dauður magnari
Sent: Mið 22. Okt 2008 09:18
af supergravity
nei kassinn var lokaður, stoppaði bara kæliviftuna aftaná kassanum...
Re: Dauður magnari
Sent: Fim 23. Okt 2008 21:02
af supergravity
Getur verið að það sé einhver reset takki eða álika í magnaranum? Maður er farinn að sakna þess að heyra hjóð með bíómyndunum sínum
Re: Dauður magnari
Sent: Fös 24. Okt 2008 22:26
af Hauksi
supergravity skrifaði:Getur verið að það sé einhver reset takki eða álika í magnaranum? Maður er farinn að sakna þess að heyra hjóð með bíómyndunum sínum
Alltaf gott að fletta notendahandbókinni þegar eitthvað er að
.
Something is obstructing the rear panel fan. • Remove the obstruction then press STANDBY/ON for 10 seconds to switch on.
Bara svona hugmynd
.