Síða 1 af 1

Öryggismál

Sent: Mið 15. Okt 2003 19:31
af Fox
Það sárlega vantar hér þráð um öryggismál.
Þá er ég ekki að tala um "howto hack", heldur almennt computer security.

Ég legg til að hver sá sem kemur með "hvernig á að brjótast inn í tölvuna hjá kennaranum mínum" etc. verði umsvifalaust bannaður og það verði í topic á þeim þræði ávalt.

Sent: Mið 15. Okt 2003 19:33
af elv
Líst vel á það.Alltaf gott að vita meira hvernig maður getur varið sig

Sent: Mið 15. Okt 2003 19:50
af kiddi
Persónulega held ég að eftirspurnin í sérstakan þráð um öryggismál sé ekki svo mikil að það sé þörf til að stofna þráð um það. Yfirleitt þegar einhverjar spurningar tengdar þessu hafa komið upp þá hafa þær lent í Windows/Linux/Hugbúnaðarþráðunum, eftir því sem við á...

Ef hinsvegar svör á þessum þræði verða það mörg um að þráðsins sé óskað þá skulum við stofna hann =)

Sent: Mið 15. Okt 2003 20:02
af Daz
Getur verið að menn séu að rugla saman spjallþræði og heilum flokk?

Sent: Mið 15. Okt 2003 20:08
af gumol
Óþarfi að hafa sér hóp um þetta en það borgar sig ekki að stofna sér áhugamál um það.
En ég my myndi örugglega spjalla þar ef hann væri til, ef það væri eitthvað að tala um.

Sent: Fim 16. Okt 2003 09:40
af MezzUp
Ég held að það sé óþarfi að stofna nýjan flokk, best að stofna bara nýjan flokk ef að miklar umræður eru búnar að vera um tölvuöryggi í öðrum flokkum. það er ekkert sem að hindrar menn í að spyrja um öryggi í öðrum þráðum

Sent: Fim 16. Okt 2003 18:54
af Voffinn
Ég er til í svona þráð :8)

Sent: Fim 16. Okt 2003 19:13
af gumol
Úff, það verður "skítkast út í Windows þráður" ef þú ferð að spjalla þar ;)

Sent: Fim 16. Okt 2003 19:24
af Voffinn
Það verður svona 'alltannaðenwindowserglatað' þráður ef þú ferð að spjalla þar.

Sent: Fim 16. Okt 2003 21:33
af gumol
Nei, ef þú ferð að spjalla þar, ég er á því að Linux sé ekkert svo langt á undan Windows í öryggismálum

Sent: Fös 17. Okt 2003 04:32
af halanegri
Ef ég færi að spjalla þar, þá myndi ég segja ykkur að vera ekki að bera saman Open-Source kerfi með enga miðstjórnun what so ever(ekki allir nota sama distro) og desktop stýrikerfi sem gert er af risastórum fégráðugum hugbúnaðarframleiðanda. :wink:

Sent: Fös 17. Okt 2003 09:12
af MezzUp
halanegri skrifaði:Ef ég færi að spjalla þar, þá myndi ég segja ykkur að vera ekki að bera saman Open-Source kerfi með enga miðstjórnun what so ever(ekki allir nota sama distro) og desktop stýrikerfi sem gert er af risastórum fégráðugum hugbúnaðarframleiðanda. :wink:

Akkurru segirru að linux sé ekki með neina miðstýringu?
Ég hélt að Linus væri ennþá að sjá um kernelinn, það er nú soldil miðstýring......

Sent: Fös 17. Okt 2003 09:24
af gumol
Það eru margir sem eru að þróa mismunandi kernela eftir þessum kernel frá vini hanns Linus.

Sent: Fös 17. Okt 2003 10:10
af MezzUp
amm, en Linus er að sjá um einn offical kernel

Sent: Fös 17. Okt 2003 11:47
af Daz
AFAIK þá eru öll stóru distroinn byggð á sama kernelinum.

Sent: Fös 17. Okt 2003 12:01
af gumol
Daz skrifaði:AFAIK ...

Hvað þíðir það?

Sent: Fös 17. Okt 2003 12:32
af Daz
As Far As I Know.