Síða 1 af 1
Vandamál með Þráðlaust LAN
Sent: Þri 30. Sep 2003 21:46
af Deus
Jæja ég veit að þetta topic sem var verulega heimskulegt en mig vantaði hjálp nauðsynlega og þetta virstist vera góð leið til að vekja athugli
.
Er einhver hérna sem veit hvað forrit ég get notað til að fá netið í tölvu sem er með þráðlaust netkort og tengt í tölvu með adsl gegnum acces point? kannski illa orðuð spurning en ég vona að þið skiljið mig..
Sent: Þri 30. Sep 2003 22:30
af gnarr
breyttu titlinum!!! reyndu að hafa það eitthvað lýsandi fyrir innihaldið. annars endar þessi síða bara eins og hugi.. þar sem öll topic eru bara "HJÁLP!!!" eða "til sölu..".
Sent: Þri 30. Sep 2003 22:37
af Voffinn
Ég held ég tali fyrir hönd allra hérna þegar ég segi að við höfum ekki hugmynd um hvað þú ert að tala um
Sent: Þri 30. Sep 2003 22:40
af gnarr
hann er að tala um connection sharing gegnum þráðlaust heimanet. ég er ekki einusinni með þráðlausann gemsa.. svo ég ætla að halda kjafti
Sent: Þri 30. Sep 2003 23:04
af gumol
Það breitist ekkert þótt það sé þráðlaust, er stillt alveg eins.
gnarr skrifaði:ég er ekki einusinni með þráðlausann gemsa.. svo ég ætla að halda kjafti
Ertu með hann tengdan við snúru?
Sent: Þri 30. Sep 2003 23:19
af gnarr
já.. það er svo ónýtt batterí
annars drepur hann strax á sér
hehe
Sent: Mið 01. Okt 2003 15:53
af Deus
bíddu ég er ekkert vitlaus og helduru að ég hafi ekki prófað að stilla það eins og með venjulegum crossover?
Þarf forrit sem virkar svipað og router.
Sent: Mið 01. Okt 2003 17:09
af gumol
Deus skrifaði:bíddu ég er ekkert vitlaus og helduru að ég hafi ekki prófað að stilla það eins og með venjulegum crossover?
Þarf forrit sem virkar svipað og router.
Þú ert vitlaus að fatta ekki að ég var að segja gnarr að þetta væri stillt alveg eins og venjulegt netkerfi, það er nátturlega eftir að þú ert búinn að stilla WEB kóðann og Mac addressurnar ef þú notar það.
Það er hellingur af þráðum hérna þar sem hefur verið sagt hvernig á að stilla venjulegt heimanetkerfi.
Hvernig access point ertu með?
Sent: Mið 01. Okt 2003 17:42
af Deus
uhh hef ekki hugmynd, þetta er svona no name eða eitthvað það er @ merki framan á kassanum, hann er blár síðan stendur 11mbps Wireless LAN Access Point.
Sent: Mið 01. Okt 2003 17:58
af gumol
Hvar féksktu hann? fylgdi ekki kvittun?
Sent: Mið 01. Okt 2003 21:00
af Deus
Rængingjabær
...sýnist þetta vera cnet, allavega stendur þetta:
3644 NETBÚN WIREL LAN ACCES P CN
held að þetta CN í lokin eigi að vera cnet..
Sent: Fim 02. Okt 2003 11:50
af gnarr
getur líka verið conexant, fyrir chipsetið í modeminu.
Sent: Fim 02. Okt 2003 12:32
af gumol
Ertu að nota réttan kapal?
Þú átt að nota crossover ef þú tengir beint tölvu í access point en venjulega net snúru ef þú ert með höbb.
Sent: Fim 02. Okt 2003 18:04
af Deus
aha... er með crossover og þetta virkar alveg sko, kann bara ekkert að stilla þetta á connection sharing..
Sent: Fim 02. Okt 2003 19:14
af gumol
Svona stilliru ICS á Windows XP:
1. Í adsl tölvunni:
Start>Connect to>Show all connections
Síðan hægriklikkaru á Internettenginguna sem þú notar til að komast á netið Properties>Advanced flipann og hakar við: "Allow other network users to connect throug this computers " og ýtir á OK
2. Prófar að restarta Ferðavélinni og prófa að komast á netið.
Ef það virkar ekki:
3. Ferð í ferðatölvuna Start>Connect to>Show all Connections
Hægriklikkar á Wireless network connections
Tvíklikkar á "Internet Protacol (TCP/IP)"
Velur "Use the following IP address og setur þetta inn:
IP Address. . . . . . . . . . . . : 192.168.0.2
Subnet Mask . . . . . . . . . . . : 255.255.255.0
Default Gateway . . . . . . . . . : 192.168.0.1
Preferred DNS Server . . . . . . . . . : 192.168.0.1
Secondary DNS Server . . . . . . . . . : {ekkert}
Þá ertu búinn að stilla Internet Connection sharing
Sent: Fös 03. Okt 2003 01:12
af Daz
Deus skrifaði:aha... er með crossover og þetta virkar alveg sko, kann bara ekkert að stilla þetta á connection sharing..
Ef þú ert með Connexant access point dót (ég er með svoleiðis frá OgVodafone) þá þarftu ekki crossover snúru til að tengjast honum, venjuleg snúra dugir. Samt segir manuallinn að það þurfi crossover snúru. Furðulegt.