Síða 1 af 1
ATX móðurborð í spes kassa
Sent: Mið 05. Des 2007 16:27
af Selurinn
Komast ATX móðurborð í svona kassa?
http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... C%20Kassar
Eða þarf eitthvað minna?
Hvernig virkar svona nákvæmlega?
Sent: Mið 05. Des 2007 16:37
af einzi
OrigenAE HV7SQ er með microATX
OrigenAE S21T hefur ATX og microATX
ANTEC Fusion 430 hefur microATX
Og hér eru ATX size specs
FlexATX
9 inches (228.6 mm) 7.5 inches (190.5 mm)
microATX
9.6 inches (243.8 mm) 9.6 inches (243.8 mm)
Mini ATX
11.2 inches (284.5 mm) 8.2 inches (208.3 mm)
ATX
12 inches (304.8 mm) 9.6 inches (243.8 mm)
EATX (extended ATX)
12 inches (304.8 mm) 13 inches (330.2 mm)
EmbATX (embedded ATX)
9.6 inches (243.8 mm) 9.6 inches (243.8 mm)
WTX (workstation ATX)
14 inches (355.6 mm) 16.75 inches (425.4 mm)
Sent: Sun 09. Des 2007 21:45
af Selurinn
Er þetta ekki bara eins og venjulega tölva nema það verður að vera micro-ATX móðurborð og ekki risastórar kælingar og þess háttar svo allt komist fyrir
En svo eitt annað, er þetta bara notað til að spila vídeó og hvað annað á sjónvarp, eða hátalara?
Þarftu engan skjá, þarf bara að nota displayið framaná, eða hvernig er þetta?
Eins og þessi t.d.
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=10376
Any clue?
Sent: Fös 14. Des 2007 14:38
af einzi
Ég spyr nú á móti, do you have a clue?
Yfirleitt eru svona HTPC bara venjulegar tölvur í flottum kössum til að fitta vel við græjurnar þínar og svona. Það fer alveg eftir kassanum hvað þú þarft við þetta. Sumir kassar eru með flottum snertiskjá sem þú getur notað til að stjórna en yfirleitt er það lyklaborð+mús og jafnvel fjarstýring. Unitið tengist svo bara í sjónvarpið þitt. Eins og ég er með þetta ( og vantar reyndar að betrumbæta ) þá tengi ég vga beint í LCD sjónvarpið og svo optical í græjurnar og nota svo wireless lyklaborð til að stjórna. Nota svo
GeexBox sem er pínkulítið linux distro.
MicroATX er náttúrlega bara "venluleg" tölva en aðeins minni. hence the ATX form factor og oftast er leitast eftir að hafa þessar vélar með sem minnstum hávaða og mögulegt er.
Ef þú veist ekki hvað HTPC er eða hver tilgangurinn er með því þá mæli ég með því að þú skoðir þessa síðu (
HTPC@Wiki )
Ef þú ert að spá í að koma þér upp svona kerfi og veist ekki hvar þú átt að byrja þá endilega spurðu meira hér, en ef þú sast á dollunni í morgun og hugsaðir "Hey .. ef ég pýri augun nógu vel á þessa klósettrúllu þá sé ég HTPC, best að búa til þráð á vaktinni til að spyrja um það" þá vona ég að þú eigir bara góða helgi

Sent: Fös 14. Des 2007 15:16
af zedro
Selurinn skrifaði:En svo eitt annað, er þetta bara notað til að spila vídeó og hvað annað á sjónvarp, eða hátalara?
Þarftu engan skjá, þarf bara að nota displayið framaná, eða hvernig er þetta?
Thjah MEDIA CENTER segir sitt. Þú verður samt að fatta að þetta er
bara tölva í kassa sem er í stíl við forljotan magnara sem passar
betur inní stofu frekar en NeeonGlowBoxOfDoom tölvan þín.
Þarftu skjá?

Oftast eru media center tengd við sjónvarp svo ég
held að það sleppi allveg sem skjár
