Síða 1 af 1
Vil bæta kælingu og loftstreymi í CM Stacker...
Sent: Sun 01. Júl 2007 17:28
af DoofuZ
Jæja, núna á ég slatta af aurum og langar að bæta aðeins kælinguna í kassanum mínum sem er Coolermaster Stacker. Ég er t.d. orðinn pínu þreyttur á örraviftunni (fylgdi með AMD 3500+ örranum) og langar í eitthvað öflugara en viftan þar á það til að auka hraðann sjálfkrafa samkvæmt stillingu í bios ef örrinn fer að hitna og það væri fínt að hafa viftu sem er nógu öflug til að halda kælingunni án þess að þurfa að auka hraðann og skapa hljóð
Ég fann einmitt eina flotta í att.is,
Coolermaster CK8-9JD2B-0C-GP, er eitthvað vit í henni? Eða ætti ég frekar að skoða Zalman vifturnar?
Er einhver hér svo nokkuð með einhverjar aðrar hugmyndir til að kæla kassann minn betur og auka loftstreymið? Væri t.d. kannski sniðugt að setja hjólin undir kassann svo loft geti flætt í gegnum botngrindina?
Endilega ef einhver hér á svona kassa og hefur eitthvað bætt hjá sér kælingu og loftstreymi koma þá með hugmyndir

Ég vil helst samt bara eitthvað einfalt og þægilegt, ekki eitthvað eins og vatnskælingu eða eitthvað svoleiðis.
Sent: Sun 01. Júl 2007 18:53
af Sallarólegur
Sent: Sun 01. Júl 2007 19:02
af viddi
Mæli með þessari, er með svona í minni, kælir vel og heyrist ekki múkk í henni
Sent: Sun 01. Júl 2007 20:18
af DoofuZ
Já, mér líst helvíti vel á hana þessa

Þakka góða ábendingu!

Kannski svoldið dýr samt og bætir hálfu kílói við þyngd kassans en læt það engu skipta þar sem ég er einmitt að leita að svona hljóðlátri og öflugri viftu og verðið skiptir ekki öllu, svo er ég ekkert mikið að ferðast með þennan kassa svo þyngdin sleppur líka býst ég við
En hvað segiði varðandi þetta með hjólin? Á ég að skella þeim undir? Síðast þegar ég ryksugaði allann kassann þá var smá af ryki neðst í kassanum og ég vil helst bæta líka loftflæðið svo ég losni við mest allt ryk. Gerir það ekki mikið fyrir loftflæðið ef ég set dekkin undir?
Sent: Þri 03. Júl 2007 09:12
af DoofuZ
Hey, ætti ég svo ekki frekar að fá mér TT Big Typ 120 VX?
Sent: Þri 03. Júl 2007 09:31
af ManiO
Big Typhoon hjá Kísildal eða Scythe Ninja hjá Tölvuvirkni. Sennilega þær bestu í loftkælingum á Íslandi.
Sent: Þri 03. Júl 2007 21:39
af DoofuZ
Ok, held ég skelli mér bara á Big Typhoon

lýst eitthvað svo helvíti vel á hana
En hvernig er svo með kassann? Ég veit að það eru nú amk. nokkrir hérna með svona CM Stacker kassa eins og ég er með, hvernig er kælingin hjá ykkur? Eruði með viftu í hliðinni? Á ég að setja dekkin undir kassann? Á ég að reyna að redda mér crossflow viftunni? Er ekki einhver hér með svoleiðis viftu?
Sent: Mið 04. Júl 2007 02:19
af urban
DoofuZ skrifaði:Ok, held ég skelli mér bara á Big Typhoon

lýst eitthvað svo helvíti vel á hana
En hvernig er svo með kassann? Ég veit að það eru nú amk. nokkrir hérna með svona CM Stacker kassa eins og ég er með, hvernig er kælingin hjá ykkur? Eruði með viftu í hliðinni? Á ég að setja dekkin undir kassann? Á ég að reyna að redda mér crossflow viftunni? Er ekki einhver hér með svoleiðis viftu?
ég var með svona kassa (sé mikið eftir honum, en hann tók bara full mikið pláss), mér fannst ekki skipta neinu máli hvort að ég var með hjólun undir honum eða ekki, en nota bene ég var ekki með hann á gólfinu, heldur á hillu ca. 30 - 40 cm frá gólfi.
ég var með viftu á hliðini (silentx) sem að heyrðist ekkert í (reyndar eru CM vifturnar (eða allavega voru í mínum) mjög hljóðlátar) og það sem að mér fannst einmitt svo stórkostlegt við þennan kassa var hvað það voru margar viftur, sem að blésu allar í rétta átt og voru hljóðlátar
ég lennti aldrei í hitavandamálum (og geri reyndar ekki núna heldur, fékk mér CM centurium 5) og var aldrei í veseni með hávaða, ég var með á þessum tíma zalman á bæði örgjörva og skjákorti og passive NB kælingu og kassinn var basicly hljóðlaus
hefði reyndar verið til í að fá mér crossflow viftuna bara upp á að tékka á því að hvort að það skipti einhverju máli á hitastigi í kassanum og á minnum og örgjörva, en fannst mér ég aldrei þurfa þess, hefði hugsanlega gert það hefði ég farið í það að OCa eitthvað
vona að þetta hafi eitthvað hjálpað þér
með kveðju
urban