Síða 32 af 83

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 09. Jan 2013 17:18
af Zorky
Með hvernig router mælið þið með fyrir hringdu ætla prufa sjá hvort hraðlin lagist annars ætla ég að seigja þessu upp.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 09. Jan 2013 19:05
af Xberg
hkr skrifaði:Einhver annar að lenda í því að allt erlendis er eins og 1996 með 56kbps módemi?

Ef ég næ 56kb erlendisfrá þá er hátíð hjá mér.. 5-15.kb standard.
Ég er með Trendnet TEW-639GR router, hann var að gera fína hluti fyrir mig í marga mánuði þanga til um daginn þegar allur hraði hrundi.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 09. Jan 2013 20:33
af audiophile
Xberg skrifaði:
hkr skrifaði:Einhver annar að lenda í því að allt erlendis er eins og 1996 með 56kbps módemi?

Ef ég næ 56kb erlendisfrá þá er hátíð hjá mér.. 5-15.kb standard.
Ég er með Trendnet TEW-639GR router, hann var að gera fína hluti fyrir mig í marga mánuði þanga til um daginn þegar allur hraði hrundi.
Já þetta er ekki router vandamál. Þetta var fínt í haust þegar ég byrjaði hjá þeim svo fór þetta snarversnandi í nóvember/desember.

Ég sótti um hjá Vodafone í gær og sæki búnaðinn hjá þeim á morgun. Þarf hvort eð sjónvarpsþjónustu frá þeim þannig að fínt að hafa þetta á sama stað.

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 11. Jan 2013 17:33
af xerxez
Jæja þar sem það hefur verið ákveðið sport að drulla yfir þetta litla fyrirtæki, sem reynir þó að bjóða upp á sanngjarnt verð og veitir stórlöxunum alvöru samkeppni, langaði mig að benda á mjög jákvæðar fréttir sem snúa að Hringdu.is.

"Fréttabréf Hringdu 10.01.2013

YouTube, iTunes, Steam og fleira enn hraðara
Hringdu hefur verið í samstarfi við Google um að hýsa gagnaþjón sem að veitir enn hraðara samband inn á allar Google þjónustur. Þetta þýðir t.d. að myndbönd á YouTube fara í gegnum beint samband hjá Hringdu og eru enn hraðari að halast niður. Við erum einnig í samstarfi við Akamai og munum setja upp annan gagnaþjón sem að gerir okkur kleift að hýsa efni fyrir iTunes, Steam og fleiri þjónustur. Það verður því enn hraðara að tengjast skýinu hjá Hringdu."


Langaði bara að benda á þessa jákvæðu framþróun fyrir íslenska neytendur og benda fólki á að trúa ekki öllu sem það les. Sjálfur hef ég verið í viðskiptum við Hringdu í tæplega 2 ár og hef bara verið mjög sáttur. Auðvitað hef ég lent í því að netið t.d detti út í stuttan tíma og þess háttar en 99,9% af tímanum virkar allt eins og það á að virka, góður hraði og allt í orden. Ég hef verið tengdur við internetið í fjölda mörg ár (líklega um 14 ár) og hef verið í viðskiptum við flest öll fyrirtæki sem hafa boðið upp á net þjónustu. Og ég verið að segja að þjónusta Hringdu er bara nokkuð góð á heildina litið og fyrir það verð sem ég greiði til þeirra er ég alveg tilbúin að líta framhjá nokkrum smávægum vandræðum.

Þess ber að geta að ég hef engra hagsmuni að gæta í þessu máli, þekki engan starfsmann hringdu eða eiganda. Hagsmunir mínir í þessu máli og ykkar eru þó þeir að fá internet þjónustu á viðráðanlegu verði og halda samkeppninni lifandi.

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 11. Jan 2013 21:00
af urban
xerxez skrifaði:Jæja þar sem það hefur verið ákveðið sport að drulla yfir þetta litla fyrirtæki, sem reynir þó að bjóða upp á sanngjarnt verð og veitir stórlöxunum alvöru samkeppni, langaði mig að benda á mjög jákvæðar fréttir sem snúa að Hringdu.is.
tjahh ég hef nú ekki séð menn drulla yfirfyrirtækið.
heldur kvarta yfir því að það er ekki hægt að nota þjónustuna sem að fólk er að borga svo sanngjarnt verð fyrir...

ef að erlendur hraði er einsog menn benda á hérna að ofan 5 - 15 kb/s þá er verðið hjá þeim langt frá því að vera sanngjarnt.

en aftur á móti eru þetta flottar fréttir hjá þeim ef að þetta virkar almennilega.

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 11. Jan 2013 21:30
af tdog
Síminn hefur verið með Akamai í áratug...

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 11. Jan 2013 21:41
af hfwf
tdog skrifaði:Síminn hefur verið með Akamai í áratug...
og google þjónustutnar þá hafa þær allar haft bakbein inn í það .( ISP-in þeas)

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 11. Jan 2013 22:26
af blackanese
Búið að vera alveg fáránlegt packetloss hjá hringdu í langan tíma, er búinn að gefast upp, ætla yfir í vodafone.

Maður hefði nú haldið að laga svona væri forgangsatriði. 10-20% packetloss, gimme a break hérna.

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 14. Jan 2013 02:11
af worghal
tengingin hjá mér er nánast farin í hundana núna.
um klukkan 18:00 þá fór ég að fá hærra og hærra MS í wow og fékk fleiri og fleiri lag spikes.
á þeim tíma var torrent í gangi á um 1.1mb/s hraða og ég er með 100mb tengingu þannig þetta ætti ekki að hafa áhrif á wow.
núna á íslensku http downloadi er hraðinn í 130-500kb/s, þetta gæti mögulega verið álag á servernum hjá þeim en síðast þegar ég downloadaði þaðan var það á 9.7mb/s
avg. download hraði á torrentum síðustu daga hefur verið á bilinu 56kb/s upp í 1.2mb/s
miðað við 100mb tengingu, þá eru þetta ekki hraðarnir sem ég er að leita að.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:23
af tdog
Nú er samband við útlönd farið.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:24
af Krisseh
tdog skrifaði:Nú er samband við útlönd farið.
Hjá Vodafone líka

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:27
af AciD_RaiN
Krisseh skrifaði:
tdog skrifaði:Nú er samband við útlönd farið.
Hjá Vodafone líka
Það var einmitt einn að hringja í mig og spurja mig hvort það væri dottið út hjá mér... Hann er hjá voda og ég hjá símanum en það virðist allt vera í góðu lagi hjá mér :P

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:35
af RazerLycoz
er hjá vodafone líka :crying :crying

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:40
af Captaintomas
Hringdu úti

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:41
af gRIMwORLD
Er einhver íslensk síða þar sem hægt er að fylgjast með þessum tengingum. Einhver traffík síða íslensk?

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:44
af Captaintomas
Er með þessa tilkynningu í pósthólfinu sem ég fékk í dag: Rekstraraðili FARICE-1 og DANICE-sæstrengjanna tilkynnti fyrr í dag að hámarksafkastageta strengjanna yrði aukin sjöfalt á næstu misserum. :-)

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 02:46
af GrimurD
Sendi NOC hjá Vodafone póst og þetta er víst allt í klessu. Eru að vinna í að koma þessu saman aftur hægt og rólega :P

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 03:01
af AciD_RaiN
en hvers vegna er tengingin mín hjá símanum í topp standi?? Er það bara vegna þess hve frábær og æðislegur ÉG er?? :guy

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 05:20
af stefan251
síminn er alveg með örugga þjónustu

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 15. Jan 2013 09:50
af einarth
Sælir.

Það var skipulögð viðhaldsvinna hjá Vodafone í nótt sem hafði m.a. áhrif á internetsamband - það var því ekki um bilun að ræða.

Kv, Einar.

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 18. Jan 2013 13:15
af tdog
Hvers vegna eru neytendur ekki látnir vita?

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 19. Jan 2013 21:27
af lyfsedill
Vá. ! Nú er hraðinn á netinu hjá mér aðallega erlendu en lika ísl.síðum út í hróa hjá hringdu. Hvernig er hjá öðrum með hringdu núna?

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 19. Jan 2013 21:37
af GuðjónR
lyfsedill skrifaði:Vá. ! Nú er hraðinn á netinu hjá mér aðallega erlendu en lika ísl.síðum út í hróa hjá hringdu. Hvernig er hjá öðrum með hringdu núna?
Fínn hraði hjá mér, er reyndar á ADSL ef það skiptir einhverju.

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 19. Jan 2013 21:40
af Pandemic
tdog skrifaði:Síminn hefur verið með Akamai í áratug...

Var að prófa og athuga hvort Síminn væri að mirrora en svo virðist ekki vera á nokkrum vinsælum myndböndum á youtube.com
Akaimai er að senda frá Svíþjóð flest allt efni sem ég prófaði.

Ætli þetta sé ekki ástæðan fyrir því að erlent niðurhal hjá þeim sem eru hjá símanum hefur rokið upp undanfarið.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 20. Jan 2013 03:24
af tdog
Pandemic skrifaði:
tdog skrifaði:Síminn hefur verið með Akamai í áratug...

Var að prófa og athuga hvort Síminn væri að mirrora en svo virðist ekki vera á nokkrum vinsælum myndböndum á youtube.com
Akaimai er að senda frá Svíþjóð flest allt efni sem ég prófaði.

Ætli þetta sé ekki ástæðan fyrir því að erlent niðurhal hjá þeim sem eru hjá símanum hefur rokið upp undanfarið.
Ég hef mínar heimildir aðeins frá Símanum, reyndar 13 ára gamlar, en heimild what so ever.
http://www.siminn.is/um-simann/frettase ... /item1637/" onclick="window.open(this.href);return false;