Síða 4 af 5

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 04. Des 2012 23:15
af playman
g0tlife skrifaði:Fór á Texas staðinn á móti CCP. Hann var alveg okey nema hvað ég var ekki hrifinn af frönskunum. Ekkert algjört must try staður.

Niðurstaðan er svona: Ef þið eruð rosalega svangir og eruð á granda eða nálagt, go for it

Mynd
Suddalegar fröllur þarna á ferð

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 00:05
af worghal
Hvar fae eg juicy burger a thessum tima ?'(eftir midnaetti) er staddur i midbae

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 00:06
af Klaufi
worghal skrifaði:Hvar fae eg juicy burger a thessum tima ?'(eftir midnaetti) er staddur i midbae
Góð spurning!
Ég er svangur..

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 00:27
af intenz
worghal skrifaði:Hvar fae eg juicy burger a thessum tima ?'(eftir midnaetti) er staddur i midbae
Grill66 er opið 24/7, mæli með Chicago :)

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 00:32
af worghal
intenz skrifaði:
worghal skrifaði:Hvar fae eg juicy burger a thessum tima ?'(eftir midnaetti) er staddur i midbae
Grill66 er opið 24/7, mæli með Chicago :)

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2
Veitingastaðir Grill 66 á þjónustustöðvum Olís eru á eftirtöldum stöðum

[*]Gullinbrú, Reykjavík
[*]Norðlingaholti, Reykjavík
[*]Álfheimum, Reykjavík

ég er bíllaus og bý í miðbæ reykjavíkur.
er einhver á bíl sem nennir í leiðangur :D ?

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 09:29
af KermitTheFrog
Mæli með Tandoori í Skeifunni. Bestu Naanwich sem fást.

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 10:04
af valdij
KermitTheFrog skrifaði:Mæli með Tandoori í Skeifunni. Bestu Naanwich sem fást.
Er ég sá eini sem hefur bæði heyrt af hryllingssögur af Tandoori og upplifað það svo sjálfur? Öll fjölskyldan lagst í magaveiki síðast þegar það var matur frá þeim.

Hef reyndar ekki prófað Naanwichin - en var að skoða matseðilinn og lítur mjög vel út. Þarf að gera mér ferð og prófa þau.

Við étum hinsvegar mjög mikið af mat frá Austurlanda Hraðlestinni sem eru komin með Chilli kjúkling á matseðlinn. Alveg fáránlega góður m/ grjónum og hvítlauks naan.

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 10:16
af Dagur
g0tlife skrifaði:Fór á Texas staðinn á móti CCP. Hann var alveg okey nema hvað ég var ekki hrifinn af frönskunum. Ekkert algjört must try staður.

Niðurstaðan er svona: Ef þið eruð rosalega svangir og eruð á granda eða nálagt, go for it

Mynd

Ég fór á Texas í síðustu viku og fékk mér Hreindýraborgarann, mæli með honum.

Ég var mjög hrifinn af þessum frönskum =P~

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 12:27
af Talmir
Ég dýrka roadhouse. Fór fyrir kjötið, varð ástfanginn af frönskunum.

Annars ef einhver á leið í Keflavík þá mæli ég með Ungó við hafnargötuna minnir mig. Ungó grísakjöts lokan er geggjuð :)

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 14:03
af Leviathan
Talmir skrifaði:Ég dýrka roadhouse. Fór fyrir kjötið, varð ástfanginn af frönskunum.

Annars ef einhver á leið í Keflavík þá mæli ég með Ungó við hafnargötuna minnir mig. Ungó grísakjöts lokan er geggjuð :)
Langbest og Kebab, ef menn eru í Keflavík!

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 15:40
af vesley
Leviathan skrifaði:
Talmir skrifaði:Ég dýrka roadhouse. Fór fyrir kjötið, varð ástfanginn af frönskunum.

Annars ef einhver á leið í Keflavík þá mæli ég með Ungó við hafnargötuna minnir mig. Ungó grísakjöts lokan er geggjuð :)
Langbest og Kebab, ef menn eru í Keflavík!

Hef farið nokkrum sinnum á Langbest, fínar pizzur en ekkert sérstakt við þær og var frekar mikill sjoppufílingur í hamborgaranum. Hef reyndar ekki farið á Langbest síðan í byrjun sumars.

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 19:32
af Closetmonkey
Fannst skrýtið að enginn sagði þetta. 107 Reykjavík sjoppan á Ægisíðu er með bestu skyndibitaborgarana og mjög góðar franskar (skiptar skoðanir á þeim meðal félaga minna). 790.- kr. fyrir ostborgara franskar og kók. 890.- fyrir beikonborgara. 990.- fyrir lúxus með eggi og beikon. Fjórir borgarar 2l kók og stórar franskar 2550.-. Þori ekki að fullyrða en gætu verið ódýrustu borgararnir í bænum og með þeim bestu.

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 22:59
af Glazier
Hey, Snæland video í Kópavogi.. ódýr og góður :)

Svo kemur Hlölli á höfðanum alltaf sterkur inn :)

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 23:01
af Klaufi
Langbest pizza, hvítlauksolía og frönskukrydd á pizzuna, og dýfa í bernaise.

Ekki horfa svona á mig, þetta er hvergi hægt nema á langbest!

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 23:38
af bjornvil
Noodle Station, bestu núðlur í bænum.
Hamborgarabúllan, geðveikir borgarar, en mættu samt vera stærri eins og einhver sagði hérna.
Austurlandahraðlestin fyrir indverskt
Mér finnst svo besta sushi í bænum vera í kringlunni þótt ég fari oftast á Osushi niðri við austurvöll. Góðir "djúsí" sushi bitar þar. Venjulegir bitar eru meh.
Ef ég vill hollt þá fer ég á Gló og fæ mér kjúklinginn. Oftast nær er hann geðveikur. Samt misjafn eftir dögum. Dýrt samt.

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mið 05. Des 2012 23:57
af capteinninn
Closetmonkey skrifaði:Fannst skrýtið að enginn sagði þetta. 107 Reykjavík sjoppan á Ægisíðu er með bestu skyndibitaborgarana og mjög góðar franskar (skiptar skoðanir á þeim meðal félaga minna). 790.- kr. fyrir ostborgara franskar og kók. 890.- fyrir beikonborgara. 990.- fyrir lúxus með eggi og beikon. Fjórir borgarar 2l kók og stórar franskar 2550.-. Þori ekki að fullyrða en gætu verið ódýrustu borgararnir í bænum og með þeim bestu.
Hvað heitir þessi sjoppa og hvar er hún nákvæmlega? Hljómar vel hjá þér og ég prófa það kannski næst þegar maður fer í mission að éta.
Glazier skrifaði:Hey, Snæland video í Kópavogi.. ódýr og góður :)

Svo kemur Hlölli á höfðanum alltaf sterkur inn :)
Hlöllabomban er snilld þar, hjá hinum Hlöllunum er hún með einhverri funky sósu sem ég fíla ekki. Mæli með að fá sér kál og steiktan og hráan lauk á bombuna

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fim 06. Des 2012 00:02
af worghal
búkolla í hraunbergja sjoppu beint á mót FB!
það er sko matur!

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fim 06. Des 2012 00:40
af Hvati
valdij skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:Mæli með Tandoori í Skeifunni. Bestu Naanwich sem fást.
Er ég sá eini sem hefur bæði heyrt af hryllingssögur af Tandoori og upplifað það svo sjálfur? Öll fjölskyldan lagst í magaveiki síðast þegar það var matur frá þeim.

Hef reyndar ekki prófað Naanwichin - en var að skoða matseðilinn og lítur mjög vel út. Þarf að gera mér ferð og prófa þau.

Við étum hinsvegar mjög mikið af mat frá Austurlanda Hraðlestinni sem eru komin með Chilli kjúkling á matseðlinn. Alveg fáránlega góður m/ grjónum og hvítlauks naan.
Ég hef nokkrum sinnum fariðá Tandoori og hef aldrei verið óángæður með matinn. Einu sinni fékk ég samt plast með í kálinu mínu en ég fékk endurgreitt ;).

Annars finnst mér Noodle Station með bestu núðlusúpuna.
Roadhouse eru frekar góðir og þá sérstaklega franskarnar. Hamborgarasmiðjan eru frábærir, góð staðsetning, fín þjónusta og mjög góðir borgarar!

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fim 06. Des 2012 04:13
af Einsinn
Al Amir i hamraborg þar sem tölvutækni var þrusugóður matur :) sérstaklega jalapeno+kokteilsósa mixað saman til að dýfa frönskunum í :)

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fim 06. Des 2012 12:45
af intenz
Einsinn skrifaði:Al Amir i hamraborg þar sem tölvutækni var þrusugóður matur :) sérstaklega jalapeno+kokteilsósa mixað saman til að dýfa frönskunum í :)
SHAWARMA þar er himnesk! +1 á þennan stað!

Og já líka +1 á jalapeno kokteilsósuna - geðveik!

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fim 06. Des 2012 15:07
af valdij
Næsta stopp er Al Amir og sjoppan í 107 - staðfest. Ég er mjög mikill Habibi fan þannig spenntur að prófa Al amir

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fös 07. Des 2012 11:16
af Dagur
Hefur einhver hérna prófað Benzin á Grensásvegi (áður Kebabhúsið)? Mér finnst nafnið svo fráhrindandi að ég hef látið það vera að fara þangað.

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 11. Des 2012 10:40
af J1nX
https://www.kraftkaup.is/deal/hamborgari þetta í gangi hjá þeim ef þið viljið prófa :P

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fös 14. Des 2012 11:50
af eirikur01
Uppsalir á Aðalstræti 16 rétt hjá Ingólfstorgi eru með mega burger. Kjötið er fyllt af camenbert osti og er yfir 150 grömm. smakkaði þetta um daginn og ég varð ástfanginn og nuna er ég giftur svona hamborgara. Franskarnar voru líka fínar, en bara svona frönskufínar. verðið var eitthvað um 2000 kr.

Re: Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fös 14. Des 2012 17:53
af pattzi
Hreindýraborgari best

Sent from my XT910 using Tapatalk 2