Síða 4 af 5
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 15:08
af coldcut
daanielin skrifaði:Hvað eru allir að tala um háa álagningu á Apple farsímum? Eru þeir ekki bara flokkaðir sem farsímar?
Annars er mér alveg sama, ef það er hægt að bjóða SGS2 á 110.000kr en iPhone 4S á 170.000 að þá er lítil samkeppni þar á milli.
Sé það núna að þú túlkar álagningu aðeins öðruvísi en ég og fleiri. Ég er allavegana að tala um álagning verslunar en ekki ríkisins. Hljóta að vera með sömu tolla...
Ég útskýri þetta í mínum nokkru editum í póstinum fyrir ofan

Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 15:43
af Tiger
Þetta háa verð á iPhone 4s í dag hérna á klakanum er vegna þess að það er verið að taka þessa síma í gegnum krókaleiðir til landsins. Þetta mun lækka um leið og þeir verða boðnir ólæstir í USA 14. nóv og þeir anna eftirspurn. Talaði við eiganda iphone.is og hann sagðist vera með rétt um 10% álagninu og taka símana frá þeim löndum sem hann mögulega getur af fólki sem nennir að bíða í röðum og kaupa 2stk í hvert sinn.
Erfitt að vera vinsæll stundum

Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 15:51
af GuðjónR
Snuddi skrifaði:Þetta háa verð á iPhone 4s í dag hérna á klakanum er vegna þess að það er verið að taka þessa síma í gegnum krókaleiðir til landsins. Þetta mun lækka um leið og þeir verða boðnir ólæstir í USA 14. nóv og þeir anna eftirspurn. Talaði við eiganda iphone.is og hann sagðist vera með rétt um 10% álagninu og taka símana frá þeim löndum sem hann mögulega getur af fólki sem nennir að bíða í röðum og kaupa 2stk í hvert sinn.
Erfitt að vera vinsæll stundum

Já sæll! er þetta virkilega gert svona?
Þá er maður farinn að skilja þetta rídikkilus háa verð.
Ætlarðu að bíða eða fá þér eintak strax?
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:00
af AntiTrust
dori skrifaði:iPhone 4 vinnur auðvitað alltaf í svona... "gerðarlegasta varan" keppni. Gler og ál er miklu skemmtilegra viðkomu einhvernvegin en plast. Málið er samt bara að það er ekki öll sagan. Það er gott að þér líði vel þegar þú heldur á símanum en plast hefur líka kosti (t.d. léttara, ódýrara að kaupa ef það skemmist).
Sammála þessu. Ég er rosalega hrifinn af "shiny" hlutum, en ég vill öllu fremur geta átt flottan hlut með aðeins minna "bling" gildi svo lengi sem hann má rekast í fjöður án þess að á sjáist. Ég gæti aldrei átt iPhone með allt sitt ál og gler án þess að hafa hann í góðu sílicon hlustri, og þegar þangað er komin er allt "blingið" hvort sem er falið? What's the point then? Og það er ekki eins og maður sé einn um þetta, maður sér sárasjaldan iPad eða iPhone hulsturslausa.
Galaxy-inn er engan vegin jafn fallegur og iPhone, það finnst mér alveg gefið. En að segja að hann sé með lélegt build quality er rugl. Þetta er einn af þynnstu smartsímum á markaðnum í dag, og hann er með sveigjanleika á við Thinkpad - Engan. Hversu léttur hann er m.v. stærð og kraft kom mér virkilega skemmtilega á óvart, því hann heldur samt þessu quality feel - E-ð sem ég upplifi yfirleitt aldrei með létta plastsíma. Bakhliðin á Galaxy finnst mér líka frábær, ekki e-ð shiny slétt plast heldur munstruð hrjúf áferð á möttu plasti. Rispast EKKI auðveldlega. Ég er búinn að eiga helling af smartsímum og notað þá flesta í ræktinni og flestir þeirra hafa fengið að finna fyrir því að vera minn helsti æfingarfélagi. Þrátt fyrir stærð, þá er S2 klárlega búinn að eigna sér 1. sætið þar, vegna þess hversu sterkur hann virðist vera, hversu lítið það sér á honum eftir högg og hversu léttur hann er.
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:08
af chaplin
coldcut skrifaði:Sé það núna að þú túlkar álagningu aðeins öðruvísi en ég og fleiri. Ég er allavegana að tala um álagning verslunar en ekki ríkisins. Hljóta að vera með sömu tolla...
worghal skrifaði:og svo hefur ísland svo asnalega gaman að tolla apple vörur svo rugl hátt að það er besta svarið... Ísland !
Ég túlkaði þetta bara eins og worghal sagði, það væri "asnalega gaman að tolla apple vörur svo rugl hátt", því spurði ég hvort það væri mismunandi tollar á iPhone sem gæti útskýrt verðið.
Snuddi skrifaði: Talaði við eiganda iphone.is og hann sagðist vera með rétt um 10% álagninu
Þannig það er í raun lægri álagning á iPhone4S en SGS2, akkúrat öfugt mv. það sem sumir sérfræðingar hafa haldið fram hér á spjallinu? Hann er svo dýr afþví hann er keyptur í gegnum endalausar krókaleiðir. Brilliant.
Ég bara skil ekki fólk, sem fer og kaupir sér síma á 170.000kr þegar það getur fengið hann á undir 100.000kr eftir nokkra daga/vikur mv. að hann sé ódýrari en SGS2, eða um $150 sem samsvarar hátt í annan tug þúsunda.
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:16
af Nuketown
intenz skrifaði:Orri skrifaði:intenz skrifaði:Það sama get ég sagt um iPhone... your argument is invalid.

Já einmitt.. Gler og ál er svo mikið plast.. eitthvað..
Þú ert að borga fyrir gæði..
Það er alveg deginum ljósara að heill hellingur af fólki er tilbúið að borga svona "mikið" fyrir gæði, afhverju ætti Apple að lækka verðin ?
Þá er spurning hvort það séu meiri gæði ef iPhone'inn brotnar við 1 meters fall en ekki símar úr efnum sem eru ekki úr sömu "gæðum"?
það fer nú eftir því hvernig síminn (iPhone) lendir... ég hef aaaansi oft misst minn í gólfið. bæði af borði, sófa, og úr höndum og óvart misst hann og fleira og það sér ekki á honum. Ég var greinilega svona heppin.
Vinur minn hefur líka nokkrum sinnum misst sinn iPhone í gólfið og það sér heldur ekki á honum og hans er líka í fínasta lagi. Ég meira að segja missti hans einhverntímann í gólfið og hann er eins og ég segi fínn.
Svo til allra hinna... þá var ég apple hater. ohh þetta er svo asnalegt og ljótt og leiðinlegt og blablabla... þangað til ég fór í tíma í listaháskólanum eitthvað að læra á photoshop þá komst ég að því váá hvað mig langar í apple (semsagt imac eða macbook eða whatever). Eftir að ég fékk að vera í þessu umhverfinu í nokkrar vikur þá gjörsamlega heillaðist ég. Þannig að allt svona "ojj apple" frá einhverjum lúðum mun ég ekki hlusta á því 97% ykkar vitið ekkert um hvað þið eruð að tala. Þið dæmið þetta bara því þetta er Apple og hafið ekki einu sinni prófað. Það að fara í epli.is og skoða tölvuna samangildir ekki að hafa prófað og vita nákvæmlega hvernig þær tölvur eru.
já svo gleymdi ég að segja að þegar ég fékk mér iphone þá keypti ég hann í kanada á 85 þúsund á meðan hann kostaði um 160-180 hérna.
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:23
af worghal
Nuketown skrifaði:intenz skrifaði:Orri skrifaði:intenz skrifaði:Það sama get ég sagt um iPhone... your argument is invalid.

Já einmitt.. Gler og ál er svo mikið plast.. eitthvað..
Þú ert að borga fyrir gæði..
Það er alveg deginum ljósara að heill hellingur af fólki er tilbúið að borga svona "mikið" fyrir gæði, afhverju ætti Apple að lækka verðin ?
Þá er spurning hvort það séu meiri gæði ef iPhone'inn brotnar við 1 meters fall en ekki símar úr efnum sem eru ekki úr sömu "gæðum"?
það fer nú eftir því hvernig síminn (iPhone) lendir... ég hef aaaansi oft misst minn í gólfið. bæði af borði, sófa, og úr höndum og óvart misst hann og fleira og það sér ekki á honum. Ég var greinilega svona heppin.
Vinur minn hefur líka nokkrum sinnum misst sinn iPhone í gólfið og það sér heldur ekki á honum og hans er líka í fínasta lagi. Ég meira að segja missti hans einhverntímann í gólfið og hann er eins og ég segi fínn.
Svo til allra hinna... þá var ég apple hater. ohh þetta er svo asnalegt og ljótt og leiðinlegt og blablabla... þangað til ég fór í tíma í listaháskólanum eitthvað að læra á photoshop þá komst ég að því váá hvað mig langar í apple (semsagt imac eða macbook eða whatever). Eftir að ég fékk að vera í þessu umhverfinu í nokkrar vikur þá gjörsamlega heillaðist ég. Þannig að allt svona "ojj apple" frá einhverjum lúðum mun ég ekki hlusta á því 97% ykkar vitið ekkert um hvað þið eruð að tala. Þið dæmið þetta bara því þetta er Apple og hafið ekki einu sinni prófað. Það að fara í epli.is og skoða tölvuna samangildir ekki að hafa prófað og vita nákvæmlega hvernig þær tölvur eru.
nákvæmlega þetta sem ég lenti í, fór á listabraut í borgó og var þvílíkur mac hater, en ég fann bara hvað það vær þægilegra að vinna í photoshop í mac og öðrum forritum líka og eftir eina önn þá fór ég og keypti mér macbook og sé als ekki eftir því.
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:32
af Hjaltiatla
Tölvurisinn Apple hefur fengið einkaleyfi á aflæsingu snjallsíma með bendingum á snertiskjá.
http://visir.is/einkaleyfi-mikill-sigur ... 1111029196
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:34
af GuðjónR
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:36
af Tiger
GuðjónR skrifaði:Snuddi skrifaði:Þetta háa verð á iPhone 4s í dag hérna á klakanum er vegna þess að það er verið að taka þessa síma í gegnum krókaleiðir til landsins. Þetta mun lækka um leið og þeir verða boðnir ólæstir í USA 14. nóv og þeir anna eftirspurn. Talaði við eiganda iphone.is og hann sagðist vera með rétt um 10% álagninu og taka símana frá þeim löndum sem hann mögulega getur af fólki sem nennir að bíða í röðum og kaupa 2stk í hvert sinn.
Erfitt að vera vinsæll stundum

Já sæll! er þetta virkilega gert svona?
Þá er maður farinn að skilja þetta rídikkilus háa verð.
Ætlarðu að bíða eða fá þér eintak strax?
Jebb svona eru þeir að redda símumum núna. Ég ætla að hinkra smá og sjá hvort 16GB fari ekki nálægt 120k fljótlega.
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 16:57
af GuðjónR
Snuddi skrifaði:GuðjónR skrifaði:Snuddi skrifaði:Þetta háa verð á iPhone 4s í dag hérna á klakanum er vegna þess að það er verið að taka þessa síma í gegnum krókaleiðir til landsins. Þetta mun lækka um leið og þeir verða boðnir ólæstir í USA 14. nóv og þeir anna eftirspurn. Talaði við eiganda iphone.is og hann sagðist vera með rétt um 10% álagninu og taka símana frá þeim löndum sem hann mögulega getur af fólki sem nennir að bíða í röðum og kaupa 2stk í hvert sinn.
Erfitt að vera vinsæll stundum

Já sæll! er þetta virkilega gert svona?
Þá er maður farinn að skilja þetta rídikkilus háa verð.
Ætlarðu að bíða eða fá þér eintak strax?
Jebb svona eru þeir að redda símumum núna. Ég ætla að hinkra smá og sjá hvort 16GB fari ekki nálægt 120k fljótlega.
Ætlarðu að kaupa einn eða tvo? Spurning hvað Friðjón getur gert fyrir okkur ef við pöntum nokkra í einu...

Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 17:55
af braudrist
Ég þarf alla veganna ekki að fara með símann minn til umboðsaðila til að skipta um batterí. Var að setja nýtt 2430mah Gold batterí í minn síma, spurning hvort ég næ ekki 6+ daga á einni hleðslu. Hvað nær þetta apple drasl ykkar á einni hleðslu? kannski 2 daga?
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 18:00
af intenz
Snuddi skrifaði:Þetta háa verð á iPhone 4s í dag hérna á klakanum er vegna þess að það er verið að taka þessa síma í gegnum krókaleiðir til landsins. Þetta mun lækka um leið og þeir verða boðnir ólæstir í USA 14. nóv og þeir anna eftirspurn. Talaði við eiganda iphone.is og hann sagðist vera með rétt um 10% álagninu og taka símana frá þeim löndum sem hann mögulega getur af fólki sem nennir að bíða í röðum og kaupa 2stk í hvert sinn.
Erfitt að vera vinsæll stundum

Ég bíð spenntur, þar sem ég er handviss um að þeir eigi ekki eftir að lækka mikið
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 18:20
af GuðjónR
braudrist skrifaði:Ég þarf alla veganna ekki að fara með símann minn til umboðsaðila til að skipta um batterí. Var að setja nýtt 2430mah Gold batterí í minn síma, spurning hvort ég næ ekki 6+ daga á einni hleðslu. Hvað nær þetta apple drasl ykkar á einni hleðslu? kannski 2 daga?
Ef þú ert með iPhone þá þarftu ekkert að skipta um batterí...
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 18:40
af intenz
GuðjónR skrifaði:braudrist skrifaði:Ég þarf alla veganna ekki að fara með símann minn til umboðsaðila til að skipta um batterí. Var að setja nýtt 2430mah Gold batterí í minn síma, spurning hvort ég næ ekki 6+ daga á einni hleðslu. Hvað nær þetta apple drasl ykkar á einni hleðslu? kannski 2 daga?
Ef þú ert með iPhone þá þarftu ekkert að skipta um batterí...
Þú getur það ekki heldur
Ok sorry, no hatin'
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 19:03
af GuðjónR
Jæja...hver þorir að sýna mynd af símanum sínum?
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=73&t=42703" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 19:57
af Tiger
braudrist skrifaði:Ég þarf alla veganna ekki að fara með símann minn til umboðsaðila til að skipta um batterí. Var að setja nýtt 2430mah Gold batterí í minn síma, spurning hvort ég næ ekki 6+ daga á einni hleðslu. Hvað nær þetta apple drasl ykkar á einni hleðslu? kannski 2 daga?
Ég bý svo vel að það er rafmagnsinnstunga í hverju herbergi hjá mér (fleirri en ein í sumum) þannig að ég hef aldrei orðið batteríslaus í þau 4 ár sem ég hef átt iPhone!
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:11
af braudrist
Sem sagt þið neitið því ekki að batteríið endist ekki nema í tvo daga eða minna?

Jæja, ef þið farið þá í þriggja+ daga útileigu þá takið þið bara auka batterí með...nei bíddu...OHHHH snaaaap
Jæja þið getið alla veganna tekið bensínrafstöð með ykkur til að hlaða hann

Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:25
af FriðrikH
Djöfull er þetta steiktur þráður, en pabbi minn er klárlega sterkari en pabbar ykkar!

Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:26
af Tiger
braudrist skrifaði:Sem sagt þið neitið því ekki að batteríið endist ekki nema í tvo daga eða minna?

Jæja, ef þið farið þá í þriggja+ daga útileigu þá takið þið bara auka batterí með...nei bíddu...OHHHH snaaaap
Jæja þið getið alla veganna tekið bensínrafstöð með ykkur til að hlaða hann
Nei hjólhýsið og sumarbústaðurinn er líka búinn þessum gæða lúxus.
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:33
af oskar9
braudrist skrifaði:Sem sagt þið neitið því ekki að batteríið endist ekki nema í tvo daga eða minna?

Jæja, ef þið farið þá í þriggja+ daga útileigu þá takið þið bara auka batterí með...nei bíddu...OHHHH snaaaap
Jæja þið getið alla veganna tekið bensínrafstöð með ykkur til að hlaða hann

12v bílatæki er eitthvað sem er ekki til í þinni sveit ?
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:36
af Gunnar
svo á maður bara að slökkva á allri tækni á meðan maður er í útilegu í tjaldi því annars getur maður bara tjalda úti í garði....
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:37
af coldcut
Apple framleiðir nú hágæðabatterí þannig að ég sé ekki alveg pointið í þessu hjá þér brauðrist...
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:40
af SolidFeather
Mér finnst þessi þráður orðinn leiðinlegur, má ekki bara læsa honum?
Re: Steve Jobs vs Android
Sent: Mið 26. Okt 2011 20:48
af KermitTheFrog
Mig langar nú bara að bæta mínu áliti við.
Mig langar að byrja á að segja þér Guðjón, að þú ert svo blindaður af Apple fanboyism að þú sérð ekki fram fyrir hendur þér. Þú segir SGSII vera drasl, þegar þessi sími er alveg sambærilegur við iPhone, ef ekki betri. Það fer bara eftir því hvað hentar hverjum. Þessir símar hafa svipaða specca, svipað viðmót og svipaða hönnun. Android býður upp á svo miklu meiri customization og frelsi heldur en iOS. Satt er það að Apple vörur eru byggðar til að vera einfaldar og notendavænar, það er bara frábært... fyrir þá sem það hentar! Apple cripplar notandann alveg. Ég meina, þú færð ekki einusinni frelsi til að skipta sjálfur um batterí!
Ég var að pæla í að kaupa mér snjallsíma í sumar, og að sjálfsögðu datt mér fyrst í hug iPhone. Ég fór og skoðaði iPhone, ég fékk að prufa hann, en eftir að hafa prufað að nota bæði iPhone og SGSII fannst mér bara klárt mál að taka Samsung símann. Ekki afþví að iPhone er drasl, ekki af því að Galaxy S II er BESTUR, bara afþví að hann hentar mér betur.
Og til að kommenta á drop testið og fullyrðinguna að iPhone sé miklu "vandaðari" afþví að tilfinningin á SGSII er svo "plastkennd" þá segi ég nú bara að ég vil frekar síma sem þolir högg frekar en glansandi gler sem brotnar við 1 metra fall. Vinnufélagi minn var meira að segja með símann í vasanum þegar hann hrasaði um kantstein og datt og viti menn, síminn brotnaði. Spurning hvort það séu meiri "gæði" í iPhoneinum afþví að hann er úr gleri? Og ekki segja mér að "kaupa bara hlíf fyrir símann." Ef ég kaupi mér síma á 100k+ þá býst ég nú bara við því að hann virki vel og ég þurfi ekki aukahluti sökum þess hve fragile (afsakið slettu) hann er.
Höfundarréttur í dag er kominn út í öfgar það er fáránlegt að Apple sé að kæra afþví að þeir þola ekki samkeppnina. Það eina sem ég tek úr þessu máli er að Samsung sýnir hér deginum ljósara að Apple vörur eru overpriced, ef þeir geta "stolið" hönnuninni allt frá símanum og að kassanum sem hann selst í og selt það á mun lægra verði.