Síða 22 af 83
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 16:22
af GuðjónR
Hreggi89 skrifaði:
GuðjónR: You got PM

U2
:beer
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 16:58
af Stuffz
Hreggi89 skrifaði:Halló.
Hreggviður heiti ég og er Tæknifulltrúi hjá Hringdu. Einhver ágætur einstaklingur kom á spjallið á Hringdu.is rétt í þessu til þess eins að benda mér á þennan þráð. Ég skil fullvel að þetta virðist vera of gott til að vera satt, ég hóf störf hérna sjálfur fyrir rétt undir hálfu ári og mjög skeptískur hvað varðar þessar Ljósleiðaratengingar og hélt Vodafone tengingunni í tvo mánuði áður en ég lagði í að skipta..
damn maður er alltaf svo busy.. allavegana Im back, takk fyrir innlitið, það er alltaf gaman að heira hlutina beint frá aðilum
Þetta eru mjög samkeppnishæf verð sem eru í boði þarna á síðunni verð ég bara að segja, vona að útreikningarnir við reikningana lagist.
Hvað heldur þú að valdi mest töfum á að skipta milli fjarskiptafyrirtækja, mér var sagt að hluti vandamálsins sé að gamla tengingin sé enn aktív
Og svo svona almennt um mína reynslu þá lenti í því að að vera rukkaður af voddafokk (TAL) eftir að ég var farinn frá þeim um verð á splunkunýjum router 40+ þús kall þegar ég skilaði ekki úrelta draslinu sem þeir eru hættir að nota fáum dögum eftir mánaðamótin, það var mjög spes hehe, voddafukk/TAL hafði af mér yfir 50 þús kall í oftekin mánaðar gjöld og rukkun á þessum router, ég náði bara að láta þá borga mér til baka 3 mánuði áður ellegar hefði þetta verið 80 þús kall, svona er að vera með automatic borgun í einkabankanum til aðila, þeir svoruðu ekki síðasta póstinum frá mér þar sem ég útlistaði þessar staðreyndir fyrir þeim, hvílíkt vesen, síðast þesgar ég skipti um símafyrirtæki þá var þetta ekkert vandamál gerðist bara automatic, sem segir mér að annaðhvort kunna þessir aðilar ekki til verka eða þeir vilja gera manni erfitt fyrir að skipta yfir, ég allavegana er með 50þús minna í vasanum fyrir þjónustu og búnað sem ég fékk aldrei sem segir mér að vara alla við viðskiptum við voddafukk/TAL

Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 17:06
af tdog
Ef að hraðavandamálin eru úr sögunni er ég aftur á leið til Hringdu um mánaðarmótin.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 17:09
af darkppl
síðast þegar ég lanaði hjá vini mínum sem er hjá hringdu þá var ekkert vesen með packet loss eða speed
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 17:23
af Klemmi
Hreggi89 skrifaði:en ég veit að reikningadeildin er líka mjög hörð á því að fólk þurfi að láta okkur vita og ganga á eftir því að fá reikningana sína leiðrétta
Ef þetta er rétt, þá eruði með gjörsamlega vanhæft fólk í reikningadeildinni.
Þið eruð þjónustufyrirtæki, viðskiptavinurinn á EKKI að þurfa að ganga á eftir því að fá reikningana leiðrétta.
Ég ætla að vona að þetta sé bara illa orðað hjá þér, það á að nægja að hringja og ræða við einhvern, ef málið er flókið og þarfnast mikillar vinnu til að athuga hvort viðskiptavinurinn hafi rétt fyrir sér um einhver mistök, þá á þjónustufulltrúinn einfaldlega að biðja hann um að senda e-mail með öllum upplýsingum og svo á reikningadeildin bara að klára það mál, af hverju í ósköpunum vilja þeir að viðskiptavinurinn gangi á eftir einhverju sem er ykkar mistök til að byrja með?
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 18:21
af paze
Ég reyndi að fá lagfært minn reikning sennilega yfir 15 sinnum gegnum email, hringingar og heimsóknir í verslun. Aldrei gerðist neitt. Veit ekki hvort það sé eitthvað breytt í þeirri deild hjá ykkur en ég er allaveganna bara að bíða þangað til þið stefnið mér svo ég geti loksins fengið að tala við einhvern hjá ykkur, haha.
Einnig bilaði routerinn sem ég keypti hjá ykkur eftir 2-3 mánuði (þegar ég var hjá ykkur var ekki hægt að leigja router).
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 18:23
af corflame
Stuffz skrifaði:
Og svo svona almennt um mína reynslu þá lenti í því að að vera rukkaður af voddafokk (TAL)
Hvort varstu hjá Voda eða Tal? Þetta er nefnilega sitthvort fyrirtækið.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 18:45
af Moldvarpan
Sum fyrirtæki virðast vera ansi treg að átta sig á því að til að halda viðskiptavinum ánægðum þá þarf að þjónusta þá.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 20:26
af rapport
Reikninagadeildin vil að fólk láti vita...
Ég mundi láta vita með því að borga ekki röngu reikningana.
Ef það kæmi fyrir aftur og aftuyr, þá færiu ég að senda reikninga til baka fyrir bókhaldsþjónustu, ég er ekki að grínast.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:01
af appel
Moldvarpan skrifaði:Sum fyrirtæki virðast vera ansi treg að átta sig á því að til að halda viðskiptavinum ánægðum þá þarf að þjónusta þá.
Það er einmitt einn af stærstum kostnaðarliðum fjarskiptafyrirtækja, þ.e. þjónustuver, reikningahald, samskipti og þjónustu við viðskiptavini, sinna kvörtunum, beiðnum, fyrirspurnum og aðstoða þá.
Menn myndu halda að helsti kostnaðurinn felist í kaupum á tæknibúnaði og rekstri á honum, en það er ekki svo. Fólk talar oftar við fjarskiptafyrirtækið sitt heldur en bankann sinn, samt starfa mun fleiri hjá bönkunum á þessu sviði. Held að þjónustuver Símans sé að fá eitthvað um milljón símtöl á ári.
Þessvegna eru ný fjarskiptafyrirtæki með ódýrari pakka fyrir viðskiptavini, því þau eru einfaldlega ekki búin að leggja út í þennan kostnað (enn þá). Sum eru með umfangið á þjónustunni við viðskiptavin í lágmarki til þess að halda niðri kostnaði á fjarskiptaþjónustu, en það gengur aðeins upp ef fyrirtækið býður takmarkaða og einfalda þjónustu.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:06
af GuðjónR
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:29
af Frost
Myndi ekkert vera að fara til Hringdu. Var í smátíma hjá þeim og fór síðan til Vodafone einfaldlega útaf ömulegri þjónustu og netið var alltaf í rugli. Ég er núna búinn að vera hjá Vodafone í 6 mánuði og er ennþá að fá reikninga frá Hringdu.
Ég er búinn að hringja ótal sinnum til að láta lagfæra þetta en ekkert gerist. Ef ekkert fer að gerast í þessu hjá þeim þá verð ég að fara að taka harkalega á þessu.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:35
af pattzi
Ódýrt hjá theim
Sent from my HTC Wildfire S A510e using Tapatalk 2
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:47
af GuðjónR
Það er nú engin áhætta í því að prófa það, það versta sem gerist er að ykkur líkar ekki og þá fariði eitthvert annað.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:49
af Klaufi
GuðjónR skrifaði:Það er nú engin áhætta í því að prófa það, það versta sem gerist er að ykkur líkar ekki og þá fariði eitthvert annað.
Og fáið senda reikninga í hálft ár á eftir?
*Byggt á því sem ég hef lesið í þessum þræði*
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:53
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:GuðjónR skrifaði:Það er nú engin áhætta í því að prófa það, það versta sem gerist er að ykkur líkar ekki og þá fariði eitthvert annað.
Og fáið senda reikninga í hálft ár á eftir?
*Byggt á því sem ég hef lesið í þessum þræði*
Skiptir engu máli, henda þeim bara í ruslið.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:57
af Klaufi
GuðjónR skrifaði:
Skiptir engu máli, henda þeim bara í ruslið.
Ég myndi ekki nenna að standa í svona rugli, borga frekar aðeins meira og fæ þá þjónustu sem ég býst við.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 23:05
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:GuðjónR skrifaði:
Skiptir engu máli, henda þeim bara í ruslið.
Ég myndi ekki nenna að standa í svona rugli, borga frekar aðeins meira og fæ þá þjónustu sem ég býst við.
Þetta kostar fyrirtækið fullt af peningum, umslög, frímerki og svo kostar að stofna kröfur og prenta úr reikninga. Síðan þarf væntanlega að eyða vinnu í bakfærslu og kredid reikning. Svo þarf fyrirtækið þarf að leggja út fyrir VSK þó viðskiptavinurinn sé ekki búinn að greiða reikninginn. Fæst reyndar lagfært við kredid reikninginn.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Sun 24. Jún 2012 23:24
af GullMoli
tdog skrifaði:Ef að hraðavandamálin eru úr sögunni er ég aftur á leið til Hringdu um mánaðarmótin.
Ég get ekki kvartað, er búinn að vera sækja erlendis frá og þá er hraðinn yfir yfir 10MB/s.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Mán 25. Jún 2012 01:41
af axyne
Var að fá reikning frá Hringdu sem ég var ekki ánægður með, munar 265 kr.
Auðvitað prinsipp mál að fá þetta leiðrétt en miðan við sem maður hefur lesið hér og á hinum þræðinum þá er maður farinn að efast maður nenni að standa á því.
Annars ánægður með þjónustuna hingað til.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Mán 25. Jún 2012 15:34
af Hreggi89
Klemmi skrifaði:Hreggi89 skrifaði:en ég veit að reikningadeildin er líka mjög hörð á því að fólk þurfi að láta okkur vita og ganga á eftir því að fá reikningana sína leiðrétta
Ef þetta er rétt, þá eruði með gjörsamlega vanhæft fólk í reikningadeildinni.
Þið eruð þjónustufyrirtæki, viðskiptavinurinn á EKKI að þurfa að ganga á eftir því að fá reikningana leiðrétta.
Ég ætla að vona að þetta sé bara illa orðað hjá þér, það á að nægja að hringja og ræða við einhvern, ef málið er flókið og þarfnast mikillar vinnu til að athuga hvort viðskiptavinurinn hafi rétt fyrir sér um einhver mistök, þá á þjónustufulltrúinn einfaldlega að biðja hann um að senda e-mail með öllum upplýsingum og svo á reikningadeildin bara að klára það mál, af hverju í ósköpunum vilja þeir að viðskiptavinurinn gangi á eftir einhverju sem er ykkar mistök til að byrja með?
Jú þetta var kannski illa orðað hjá mér, Reikningadeild er aðeins hörð við skuldara sem hafa enga ástæðu fyrir því að greiða ekki. Það vorum nýlega að taka upp kerfi þar sem allur póstur sem kemur til okkar fer beint í vinnslukerfi þar sem viðskiptavinir fá tilkynningar um gang mála og geta rekið á eftir þeim ef ekkert gerist í langann tíma. Síðan við fórum að vinna í því hefur dugað að senda okkur póst á
hringdu@hringdu.is til þess að reikninga leiðrétta. En við erum að reyna eins og við getum að bæta úr þessari þjónustu og svo lengi sem viðskiptavinir eru skylningsríkir og þolinmóðir ganga þessi mál alltaf upp.
paze, Frost og axyne, PM.
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Mán 25. Jún 2012 15:55
af Kristján
er ekki fint að hafa þetta í einum þræði eða á þetta að vera svona jákvæði þráðurinn um hringdu.is?
Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Mán 25. Jún 2012 15:59
af krat
GullMoli skrifaði:tdog skrifaði:Ef að hraðavandamálin eru úr sögunni er ég aftur á leið til Hringdu um mánaðarmótin.
Ég get ekki kvartað, er búinn að vera sækja erlendis frá og þá er hraðinn yfir yfir 10MB/s.
screenshot or it didn't happend

Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Mið 27. Jún 2012 16:04
af GuðjónR
Jæja ég er búinn að fá leiðréttingu allra minna mála og rúmlega það!
Takk Hreggviður og Davíð!
Áfram hringdu.is

Re: hringdu.is of gott til að vera satt?
Sent: Mið 27. Jún 2012 16:42
af GullMoli
krat skrifaði:GullMoli skrifaði:tdog skrifaði:Ef að hraðavandamálin eru úr sögunni er ég aftur á leið til Hringdu um mánaðarmótin.
Ég get ekki kvartað, er búinn að vera sækja erlendis frá og þá er hraðinn yfir yfir 10MB/s.
screenshot or it didn't happend

