Ég sel það ekki dýrara enn ég keypti það, enn nátturufræðikennarinn minn fullyrti það í tíma fyrir nokkrum árum að samkvæmt reglum esb þá um leið og við byrjum að selja raforku erlendis þa erum við skyldug að selja hana á sama verði allstaðar. Hann fullyrti t.d að ef að við myndum selja til landa sem raforkuverð væri 3x dýrara heldur enn hér þá er eina sem myndi gerast að raforkuverðið myndi hækka hér sbr því sem það kostar erlendis.Tbot skrifaði:Stjórnun auðlinda frá ESB er ekkert kjaftæði. Sem segir að þú veist ansi takmarkað um þessi mál.jonfr1900 skrifaði:Þetta er kjaftæði. Þá ekki nema vegna þeirrar staðreyndar að Evrópusambandið stjórnar ekki auðlindum aðildarríkja sinna. Það er ekki lagaheimild fyrir þessu sem þú heldur fram í lögum Evrópusambandsins. Þessi fullyrðing sem þú setur fram er skáldskapur andstæðinga Evrópusambandsins og ég er orðin afskaplega þreyttur á að sjá þetta kjaftæði endurtekið eins og þetta sé staðreynd. Vegna þess að þetta er ekki staðreynd, þetta er lygi samin af andstæðingum Evrópusambandsins á Íslandi.Tbot skrifaði:Ef þetta skiptir engu máli fyrir Íslendinga, þá hvers vegna samþykkja þetta.jonfr1900 skrifaði:Þetta er hluti af EES samningum. Þannig að þessi lög taka gildi á Íslandi. Annað hvort á sama tíma og innan ESB eða nokkrum mánuðum seinna. Það veltur á afgreiðsluhraða Alþingis og EFTA-ESB nefndarinnar.Hauxon skrifaði:Ísland er auðvitað ekki í ESB. Veit ekki hvort að þetta skilar sér hingað í gegnm EES samninginn. Líklega verður þetta nefnt 3. viðskiptapakki ESB og Íslenskt samfélag mun hrynja ef við samþykkjum "pakkann".
Orkupakki 3 mun litlu breyta fyrir íslendinga. Þetta snýst að mestu leiti um að styrkja lagaheimildir Orkustofnunar. Það er fullt í þessum lögum sem íslendingar fengu undanþágu frá eða á ekki við á Íslandi (sala á rafmagni yfir landamæri). Þar er helst að aðskilja þarf Landsvirkjun (framleiðandi) og Landsvirkjun (dreifaðili). Það er ekki heimilt í Orkupakka 3. Ísland fékk undanþágu frá því í þessum lögum en mér sýnist að það eigi samt að skilja þetta að og það sé í undirbúningi núna hjá ríkisstjórninni að gera það. Frétt Rúv um þann undirbúning er hérna.
Því miður er þetta ekki nándar nærri svona einfalt.
Aðskilnaður er nú þegar á milli Landsvirkjunar og Landsnets.
Í grunninn gengur þetta meðal annars út á að markaðsvæða raforku og að yfirvaldið yfir auðlindinni sé úti í Brussel.
En ekki í viðkomandi landi.
Það er ekki aðskilnaður milli Landsvirkjunar og Landsnets. Það var ein af þeim undanþágum sem Ísland fékk í Orkupakka 3. Ísland má halda núverandi fyrirkomulagi áfram.
Síðan er Ísland búið að innleiða meirihluta af lögum Orkupakka 3 nú þegar. Það var Sigmundur Davíð sem gerði það. Þessi sami sem er á móti Orkupakka 3 í dag.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs innleiddi reglur úr þriðja orkupakkanum áður en EES-nefndin samþykkti þær (Stundin)
Það er ESB sem gefur út kvóta í fiskveiðum.
Þetta er eitt að þeim málum sem var hampað í britexit málinu, að þeir næðu aftur stjórn á fiskimiðum sínum í kringum Bretland.
Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa
Re: Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa
Re: Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa
Það er ekki sama raforkuverð í allri Evrópu og ekkert sem skyldar einn eða neinn til neins. Það sem menn geta haft áhyggjur af er að ef að sæstrengur yrði lagður t.d. til Bretlands þar sem rafmagnsverð er 19% hærra en hér að orkusalarnir hér heima myndu segja "Við getum selt fyrir 19% hærra verð í UK þ.a. við hækkum verðið!". Ég veit ekki hvað það tapast mikil orka á leiðinni í sæstrengnum en það tap minnkar þennan 19% mun enn meira. ..og jú líklega verður UK ekki einu sinni í ESB þegar sæstrengur yrði kominn þarna yfir.Ég sel það ekki dýrara enn ég keypti það, enn nátturufræðikennarinn minn fullyrti það í tíma fyrir nokkrum árum að samkvæmt reglum esb þá um leið og við byrjum að selja raforku erlendis þa erum við skyldug að selja hana á sama verði allstaðar. Hann fullyrti t.d að ef að við myndum selja til landa sem raforkuverð væri 3x dýrara heldur enn hér þá er eina sem myndi gerast að raforkuverðið myndi hækka hér sbr því sem það kostar erlendis.
Hér fyrir neðan er graf sem sýnir kostnað við að hafa ískáp í sambandi í eitt ár í flestum Evrópulöndum. Fjölmörg lönd í Evrópusambandinu eru með lægri rafmagnskostnað en hér heima, Pólland, Lettland, Litháen, Eistland, Rúmenía, Króatía, Malta, Ungverjaland, Búlgaría. Önnur lönd sem eru nær okkur, Finnland, Holland, Frakkland ofl eru ekki með mikið hærra verð en hér heima og stundum er munurinn fyrst og fremst skattar þ.a. orkusalinn getur ekki tekið það með í hugsanlegan "gróða".
Það sem "græðist" við sæstreng er ekki sala á rafmagni til einstaklinga. Hins vegar ættum við möguleika á að selja orkuna sem fer í stóriðjuna á hærra verði. ...nema auðvitað að búið er að semja um það áratugi fram í tímann.

Sjá:https://ec.europa.eu/eurostat/news/them ... ices-2018/
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller