Benzmann skrifaði:er þetta ekki bara Hitler all over again ? Hann var að reyna að einangra gyðinga genið
Ég tók mér nú bara stöðu og gaf þeim lífsýni frá hundinum mínum.
...asnalegt og barnalegt imo.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 17:56
af GuðjónR
lukkuláki skrifaði:Úr því að við erum að nefna fjáröflun hérna meðal annars, djöfull þoli ég ekki þessa helv. sölumenn sem hanga í anddyrum verslana, spítala og nánast alls staðar til að selja manni hitt og þetta.
Það er setið um mann þegar maður fer inn og þegar maður kemur út stundum rekst ég á nokkra svona sölumenn á dag.
Kannski er þetta þægilegasta leiðin til að ná til fólks og fá fjárstuðning en þetta eru orðnir óteljandi aðilar sem eru að selja, það er bara alltaf verið að selja eitthvað. Fokk þreytandi!
Góða gelgi
Sammála.
Svo finnst mér doldið kaldhæðnislegt að sjá fólk frá SÁÁ hanga fyrir utan vínbúðirnar og selja álfinn
Síðast þá sagði ég "Nei takk, kaupi frekar bjór fyrir peninginn" ... og svipurinn á manninum hahahaha, vildi að ég hefði náð mynd af honum.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 19:35
af gullielli
GuðjónR skrifaði:"Nei takk, kaupi frekar bjór fyrir peninginn" ... og svipurinn á manninum hahahaha, vildi að ég hefði náð mynd af honum.
hahah
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 19:45
af Hjorleifsson
ef þú vitl ekki taka þátt í þessu þá sleppurur því bara það er ekki flókið, og björgunarsveitirnar þurfa ekkert að gera þetta en þar sem að sala flugelda og neyðarkallsins er ekki svakalega góð allstaðar er þetta mjög gott fyrir litlar sveitir sem þurfa pening... björgunarsveitir hafa nú samt mjög gott að því að fá þennan pening þar sem að það fara fleiri hundruði þúsundir krónur í eitt lítið útkall og allt þetta fólk gerir þetta sem sjálfboðaliðar í hvaða veðrum eða aðstæðum sem flesir myndu aldrei hugsa sig um að gera og fáum ekki krónu fyrir nema þá ánægju að hafa bjargað mannslífi... það er samt alveg merkilegt hvað þið hérna á vaktini farið að væla yfir öllu svona smá drasli ^^
***þýðir ekkert að fara rökræða einhvað við mig þar sem ég mun líklega ekkert kikja á þennan þráð aftur þetta er bara það sem mér finnst ***
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 19:53
af GuðjónR
Hjorleifsson skrifaði:ef þú vitl ekki taka þátt í þessu þá sleppurur því bara það er ekki flókið, og björgunarsveitirnar þurfa ekkert að gera þetta en þar sem að sala flugelda og neyðarkallsins er ekki svakalega góð allstaðar er þetta mjög gott fyrir litlar sveitir sem þurfa pening... björgunarsveitir hafa nú samt mjög gott að því að fá þennan pening þar sem að það fara fleiri hundruði þúsundir krónur í eitt lítið útkall og allt þetta fólk gerir þetta sem sjálfboðaliðar í hvaða veðrum eða aðstæðum sem flesir myndu aldrei hugsa sig um að gera og fáum ekki krónu fyrir nema þá ánægju að hafa bjargað mannslífi... það er samt alveg merkilegt hvað þið hérna á vaktini farið að væla yfir öllu svona smá drasli ^^
***þýðir ekkert að fara rökræða einhvað við mig þar sem ég mun líklega ekkert kikja á þennan þráð aftur þetta er bara það sem mér finnst ***
Ætla ekki að rökræða við þig, en þeir sem hafa ekki sömu skoðun og þú eru þeir að væla?
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 20:30
af capteinninn
Þetta er að mínu mati mjög siðlaust og ég hvet alla sem fengu bréfið að gera eins og Vaski sagði hér fremst að gefa frekar björgunarsveitinni bara þennan 2000 kall ef þú vilt styrkja þá og neita að gefa þeim sýnið.
Hvað ætli DeCode græði mikið á því að selja þessar upplýsingar áfram? Annaðhvort í formi rannsókna sem þeir selja svo áfram eða þeir selja þetta bara beint sem genatískar upplýsingar um almenning og geti notað þær til að selja okkur lyf við kvillum sem eru arfgengir
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 20:32
af Minuz1
Er Decode eitthvað auðmanna?
Hélt að þeir væru að lepja dauðann úr skel miðað við hvað þetta átti að vera mikið powercompany sem sigrar heima.
Amk miðað við banka sem eiga að vera þjónustufyrirtæki sem ættu að endurspegla efnahaginn en í staðinn eru bara að eignast allt í krafti þess að hafa leyfi til peningaprentunnar.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 21:06
af Nariur
capteinninn skrifaði:Þetta er að mínu mati mjög siðlaust og ég hvet alla sem fengu bréfið að gera eins og Vaski sagði hér fremst að gefa frekar björgunarsveitinni bara þennan 2000 kall ef þú vilt styrkja þá og neita að gefa þeim sýnið.
Hvað ætli DeCode græði mikið á því að selja þessar upplýsingar áfram? Annaðhvort í formi rannsókna sem þeir selja svo áfram eða þeir selja þetta bara beint sem genatískar upplýsingar um almenning og geti notað þær til að selja okkur lyf við kvillum sem eru arfgengir
Þeir eru að vinna frábæra vinnu. Hvað er að því að þeir græði á henni, þegar þeir lækna einhvern alvarlegan sjúkdóm, eftir að hafa lagt mörg ár og marga milljaða í verkið?
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 21:12
af capteinninn
Nariur skrifaði:

Mér finnst bara aðferðin vera svo slæm, þeir eru ekkert að tala um að þeir séu sjálfir að fara að græða gífurlega á þessum rannsóknum. Ekki verða lyfin sem koma úr þessum rannóknum ókeypis fyrir þá sem taka þátt.
Nú viðurkenni ég að hafa ekki rannsakað þetta nógu vel en ég hef ekki séð þá lista upp hvað þessi sýni verða notuð í, ég sé alveg fyrir mér að stórt lyfjafyrirtæki hafi læknasögu alls Íslands í sínum höndum (1/3 er mjög stórt úrtak fyrir þýði) og geti farið að nota þessar upplýsingar á rangan hátt.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 21:40
af hkr
Nariur skrifaði:
Þeir eru að vinna frábæra vinnu. Hvað er að því að þeir græði á henni, þegar þeir lækna einhvern alvarlegan sjúkdóm, eftir að hafa lagt mörg ár og marga milljaða í verkið?
Þú veist að decode "læknar" ekki neitt, er það ekki?
Decode skoða DNA hjá fólki, ber það saman við þekkta DNA búta sem hafa gefa tilkynna vissa sjúkdóma og með því gefa þeir þér líkur á því að þú fáir viðkomandi sjúkdóm, allt á aðeins 113.000 kr.
Verða að viðurkenna að ég hló upphátt eftir þetta innlegg þitt, ferð og kallar fólk "fáfróða skíthæla" þegar að þeir eru ekki sammála þér og svo hefur þú ekki hundsvit á þessu..
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 21:48
af Sallarólegur
hkr skrifaði:

Heldur þú að lækningar finnist með því að horfa út um gluggann? Þú hefur þá ekki meira vit á þessu frekar en hver annar.
Auðvitað stuðla erfðarannsóknir að því að lyf og lækningar finnist.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 21:56
af Nariur
capteinninn skrifaði:
Nú viðurkenni ég að hafa ekki rannsakað þetta nógu vel...
Kynntu þér málið almennilega áður en þú gagnrýnir það svona harðlega. Þeir eru búnir að fjárfesta massíft í þessum rannsóknum, auðvitað græða þeir á þeim á endanum, það er alvitað og sjálfsagt. En þeir eiga það alveg skilið ef þeir gera heiminn að betri stað og útrýma sjúkdómum.
hkr skrifaði:
Nariur skrifaði:
Þeir eru að vinna frábæra vinnu. Hvað er að því að þeir græði á henni, þegar þeir lækna einhvern alvarlegan sjúkdóm, eftir að hafa lagt mörg ár og marga milljaða í verkið?
Þú veist að decode "læknar" ekki neitt, er það ekki?
Decode skoða DNA hjá fólki, ber það saman við þekkta DNA búta sem hafa gefa tilkynna vissa sjúkdóma og með því gefa þeir þér líkur á því að þú fáir viðkomandi sjúkdóm, allt á aðeins 113.000 kr.
Verða að viðurkenna að ég hló upphátt eftir þetta innlegg þitt, ferð og kallar fólk "fáfróða skíthæla" þegar að þeir eru ekki sammála þér og svo hefur þú ekki hundsvit á þessu..
bæklingurinn sem kom með sýnatökukittinu skrifaði:
Tilgangur rannsókna Íslenskrar erfðageiningar er athugun á erfðum ýmissa sjúkdóma hjá íslenskum fjölskyldum í því skyni að einangra og skilgreina þá þættisem stuðla að sjúkdómunum. Þegar erfðaþáttur hefur fundist sem hefur marktæk tengsl við sjúkdominn er reynt að sýna fram á orsakasamhengið með frekari rannsóknum. Það er leitað leiða til bættrar greiningar, fyrirbyggjandi aðgerða og meðferðar á grundvelli þeirrar þekkingar sem af rannsóknunum leiða
Ég er nokkuð viss um að það sért þú sem hefur ekki hundsvit á þessu.
Bara til að hafa það skýrt: Þeir sem gefa ekki sýni eru fáfróðir; þeir sem hvetja aðra til að gefa ekki sýni, gefa sýni úr hundinum sínum eða vinna aktíft gegn rannsókninni á annan hátt eru skíthælar.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 21:58
af Squinchy
Pabbi ætlar að gefa þeim sýni úr hundinum, spurning hvað kemur úr því
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 22:03
af Nariur
Squinchy skrifaði:Pabbi ætlar að gefa þeim sýni úr hundinum, spurning hvað kemur úr því
Það sem kemur út úr því er að þeir sóa peningum í að safna sýninu og greina það til að komast að því að það er ekki mennskt og henda því.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 22:18
af Vaski
Nariur skrifaði:
...Þeir eru búnir að fjárfesta massíft í þessum rannsóknum, auðvitað græða þeir á þeim á endanum, það er alvitað og sjálfsagt. En þeir eiga það alveg skilið ef þeir gera heiminn að betri stað og útrýma sjúkdómum....
Af hverju er það sjálfsagt og eðlilegt að þeir græði? Hvernig hefði þetta farið ef Jonas Salk hefði hugsað eins
Eins og er sennilega frægasta tilvitnunni í hann þegar hann var spurður um einkaleyfi á bóluefninu við polio:
Jonas Salk skrifaði:There is no patent. Could you patent the sun?
Nariur skrifaði:
...Þeir eru búnir að fjárfesta massíft í þessum rannsóknum, auðvitað græða þeir á þeim á endanum, það er alvitað og sjálfsagt. En þeir eiga það alveg skilið ef þeir gera heiminn að betri stað og útrýma sjúkdómum....
Af hverju er það sjálfsagt og eðlilegt að þeir græði? Hvernig hefði þetta farið ef Jonas Salk hefði hugsað eins
Af því að samfélagið er tilbúið til þess að borga fyrir það að losna við og fyrirbyggja sjúkdóma.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 22:59
af hkr
Nariur skrifaði:
bæklingurinn sem kom með sýnatökukittinu skrifaði:
Tilgangur rannsókna Íslenskrar erfðageiningar er athugun á erfðum ýmissa sjúkdóma hjá íslenskum fjölskyldum í því skyni að einangra og skilgreina þá þættisem stuðla að sjúkdómunum. Þegar erfðaþáttur hefur fundist sem hefur marktæk tengsl við sjúkdominn er reynt að sýna fram á orsakasamhengið með frekari rannsóknum. Það er leitað leiða til bættrar greiningar, fyrirbyggjandi aðgerða og meðferðar á grundvelli þeirrar þekkingar sem af rannsóknunum leiða
Ég er nokkuð viss um að það sért þú sem hefur ekki hundsvit á þessu.
Þú gerir þér grein fyrir því að þetta sem þú feitletrar er engann veginn nálægt því að vera "lækning"..
Þeir eru heldur ekki að fara að "útrýma sjúkdómum" (hvar stendur það í þessum bæklingi? ), veit ekki hvar í ósköpunum þú fékkst þá flugu í kollinn á þér.
deCode gerir aðeins eitt, þeir geta gefið þér líkur á því að þú fáir vissa sjúkdóma (aðeins þá skjúkdóma sem "erfast" með DNA), deCode býr ekki til nein lyf eða meðferðir við þeim eða öðrum sjúkdómum.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 23:45
af Sallarólegur
hkr skrifaði:
deCode gerir aðeins eitt, þeir geta gefið þér líkur á því að þú fáir vissa sjúkdóma (aðeins þá skjúkdóma sem "erfast" með DNA)
Þú ert rosalegur. Þetta er eitt fáfróðasta comment sem ég hef séð á internetinu. Mæli með því að þú kynnir þér erfðavísindi betur áður en þú ferð að láta eins og þú vitir eitthvað um þau. Vegni þér vel.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 23:47
af fuglur
Ok!
Umræðan er farin verða svolítð "off the ball park" að mínu mati. Til að lækna sjúkdóma þá þarftu að vita hvað þú ert að fást við, ekki satt? Hvernig þeir þróast, hvernig þeir verða til og hvernig þeir erfast. Til að komast að þessu öllu í nútíma samfélagi ( að mati deCode) þarf rannsóknir og meiri gagnagrunn...
Ég veit að deCode er ekki nokkur lækning við einu né neinu en þeir eru að rannsaka hluti sem aðrir eru ekki að gera. Auðvitað er þetta "business" og þeir koma til með að græða ef og þegar þeir finna eitthvað þess virði að selja. Þannig er þetta bara, þannig virkar þessi blessaði heimur. Ég á 2 börn, ef deCode ( eða einhver annar ) getur komið í veg fyrir það sem ég hef gengið í gegnum á minni lífsleið þá er það þess virði, að mínu mati.
Að fá hjálparsveitirnar til að safna sýnunum er svo allt annað... Er ekki alveg sammála því en samt er það ekki svo slæm hugmynd.
Vona að ég hafi ekki móðgað neinn með þessum pósti
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 23:52
af I-JohnMatrix-I
hkr skrifaði:
Nariur skrifaði:
bæklingurinn sem kom með sýnatökukittinu skrifaði:
Tilgangur rannsókna Íslenskrar erfðageiningar er athugun á erfðum ýmissa sjúkdóma hjá íslenskum fjölskyldum í því skyni að einangra og skilgreina þá þættisem stuðla að sjúkdómunum. Þegar erfðaþáttur hefur fundist sem hefur marktæk tengsl við sjúkdominn er reynt að sýna fram á orsakasamhengið með frekari rannsóknum. Það er leitað leiða til bættrar greiningar, fyrirbyggjandi aðgerða og meðferðar á grundvelli þeirrar þekkingar sem af rannsóknunum leiða
Ég er nokkuð viss um að það sért þú sem hefur ekki hundsvit á þessu.
Þú gerir þér grein fyrir því að þetta sem þú feitletrar er engann veginn nálægt því að vera "lækning"..
Þeir eru heldur ekki að fara að "útrýma sjúkdómum" (hvar stendur það í þessum bæklingi? ), veit ekki hvar í ósköpunum þú fékkst þá flugu í kollinn á þér.
deCode gerir aðeins eitt, þeir geta gefið þér líkur á því að þú fáir vissa sjúkdóma (aðeins þá skjúkdóma sem "erfast" með DNA), deCode býr ekki til nein lyf eða meðferðir við þeim eða öðrum sjúkdómum.
Nú spyr ég, eru þá ekki önnur fyrirtæki sem að búa til lyf og finna nýjar meðferðir á sjúkdómum með þeim upplýsingum sem deCode selur þeim ?
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Fös 09. Maí 2014 23:56
af GuðjónR
Strákar, hættið þessu skítkasti. Menn meiga hafa sínar skoðanir, allt í einu fer allt á hvolf og menn eru flokkaðir í tvö hólf, með og á móti.
Hverskonar rugl er það?
Ef Kára dytti í hug að gott færi að fá sæðissýni frá öllum íslenskum karlmönnum til rannsóknar og myndi í kjölfarið senda lítil glös á hvert heimili og fimmþúsund króna styrk til mæðrastyrksnefndnar fyrir hvert glas, ættu þá allir átján ára og eldri að vera inná klósetti núna að rúnka sér í glös ellegar verða úthrópaðir fávitar? Eru menn alveg snar!
Ég sé ekkert að því að fólk gefi sýni ef það vill, ég sé heldur ekkert af því að fólk geri það ekki. PUNKTUR.
Og þeir sem segja að það setji ekki móralskan pressu á fólk að blanda björgunarsveitunum í málið hafa rangt fyrir sér, í dag spurði ég góðan vin minn hvort hann ætlaði að senda inn sýni og hann sagði; "Nei, auðvitað ekki en ég ætla að leggja tvöþúsund krónur inn á björgunarsveitina í staðin".
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Lau 10. Maí 2014 00:05
af Sallarólegur
GuðjónR skrifaði:Strákar, hættið þessu skítkasti. Menn meiga hafa sínar skoðanir, allt í einu fer allt á hvolf og menn eru flokkaðir í tvö hólf, með og á móti.
Hverskonar rugl er það?
Ef Kára dytti í hug að gott færi að fá sæðissýni frá öllum íslenskum karlmönnum til rannsóknar og myndi í kjölfarið senda lítil glös á hvert heimili og fimmþúsund króna styrk til mæðrastyrksnefndnar fyrir hvert glas, ættu þá allir átján ára og eldri að vera inná klósetti núna að rúnka sér í glös ellegar verða úthrópaðir fávitar? Eru menn alveg snar!
Ég sé ekkert að því að fólk gefi sýni ef það vill, ég sé heldur ekkert af því að fólk geri það ekki. PUNKTUR.
Og þeir sem segja að það setji ekki móralskan pressu á fólk að blanda björgunarsveitunum í málið hafa rangt fyrir sér, í dag spurði ég góðan vin minn hvort hann ætlaði að senda inn sýni og hann sagði; "Nei, auðvitað ekki en ég ætla að leggja tvöþúsund krónur inn á björgunarsveitina í staðin".
Er sammála þér í einu og öllu þarna. Titill umræðunnar "Útkall í þágu auðmanna?" hljómar samt eins og bitur DV-kommentari í mínum eyrum, með fullri virðingu
Kynnum okkur erfðavísindi betur og ræðum þetta svo frekar. Það þarf stórt úttak til þess að gera uppgötvanir á þessu sviði. Að sjálfsögðu eru þetta viðkvæmar upplýsingar. Decode mætti útskýra betur hvernig þeir halda þessum gögnum öruggum.
Þeim fannst skynsamlegra að borga björgunarsveitarmönnum fyrir það að ganga í hús frekar en að greiða verktökum. Björgunarsveitirnar sjá sér þar leik á borði - og gert er samkomulag þar á milli.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Lau 10. Maí 2014 00:19
af Minuz1
Vissuð þið að það voru 2 fyrirtæki sem sóttu um að geyma gagnagrunninn?
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Lau 10. Maí 2014 00:28
af hkr
Sallarólegur skrifaði:
hkr skrifaði:
deCode gerir aðeins eitt, þeir geta gefið þér líkur á því að þú fáir vissa sjúkdóma (aðeins þá skjúkdóma sem "erfast" með DNA)
Þú ert rosalegur. Þetta er eitt fáfróðasta comment sem ég hef séð á internetinu. Mæli með því að þú kynnir þér erfðavísindi betur áður en þú ferð að láta eins og þú vitir eitthvað um þau. Vegni þér vel.
Haha, takk. Mikið hrós frá meistara eins og þér, ég roðna allur
deCODE leads the world in the discovery of genetic risk factors for common diseases.
Skil þetta ekki betur en að þeir séu "leiðandi í að finna genatíska áhættuþætti fyrir algenga sjúkdóma", sem er ekki svo fjarri því sem ég skrifaði að ofan.
En fyrst ég að miskilja þetta svona allsvakalega, mátt endilega útskýra þetta fyrir fáfróðum manni eins og mér.
Re: Útkall í þágu auðmanna?
Sent: Lau 10. Maí 2014 01:33