veikindi og vaxtarrækt?

Allt utan efnis
Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2599
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Staða: Ótengdur

Re: veikindi og vaxtarrækt?

Póstur af SolidFeather »

Þið eruð að gera þetta alltof flókið.

1. Lyfta þungt
2. Borða mikið
3. Sofa

Baddabingbaddabúmm
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: veikindi og vaxtarrækt?

Póstur af Klemmi »

Mongol skrifaði:Hey AntiTrust hvað segir þú um að halda kjafti í eitt skipti fyrir öll

Þú situr alltaf heima í tölvunni og hefur ekki rétt á að tjá þig!
Vikubann í þetta skipti =D>
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: veikindi og vaxtarrækt?

Póstur af AntiTrust »

SolidFeather skrifaði:Þið eruð að gera þetta alltof flókið.

1. Lyfta þungt
2. Borða mikið
3. Sofa

Baddabingbaddabúmm
Þú veist nú líklega alveg sjálfur að það er langt í frá svo einfalt ;) Ef þú ætlar bara að verða bumbukall sem getur lyft þungu grjóti og hveitipokum er þetta kannski málið en fyrir allt annað þarf nú aðeins meiri pælingar.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Skjámynd

Höfundur
bixer
</Snillingur>
Póstar: 1022
Skráði sig: Lau 14. Nóv 2009 14:38
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Re: veikindi og vaxtarrækt?

Póstur af bixer »

nei SolidFeather þú ert að of einfalda þetta, létt og margar endurtekningar í 2 vikur skipta í þungt og færri endurtekningar í mánuð og þetta alltaf til skiptis. borða 20gr af próteinum á 2 tíma fresti og nóg af kolvetnum inn á milli ásamt hollum fitusýrum, drekka nóg af vatni og fá næga hvíld.

annars er það alltof satt hjá skaven
"The best activities for your health are pumping and humping!!"

Halli13
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Lau 06. Mar 2010 21:49
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: veikindi og vaxtarrækt?

Póstur af Halli13 »

AntiTrust skrifaði: Það er líka mjög mikilvægt að innbyrða prótín fyrir svefn ef maður er að lyfta, þar sem svefn þýðir yfirleitt 6-8 tíma fasta, sem getur valdið því að líkaminn gengur á vöðva fyrir orku, sérstaklega hjá þeim sem eru með lága fituprósentu fyrir. Hvernig prótín þú innbyrðir rétt fyrir svefn skiptir líka gríðarlegu máli, og þá er lykillinn að taka helst casein prótin, sem tekur mikið lengri tíma að melta og vinna úr, og viðheldur því prótínþörfinni hjá vöðvunum yfir nóttina. Með þessu er t.d. hægt að taka með MUFA (monounsaturated fatty acids) sem hægir enn meira á meltingunni. MUFA er yfirleitt ekki hægt að fá sem sér fæðubótarefni líkt og CLA t.d., heldur er slíkt yfirleitt fengið úr mat eins og hnetum, hnetusmjöri, olífum, canola olíu, avokadó og flr.
Þegar þú ert sofandi þá á líka sér stað nýmyndun prótína og niðurbrot, þess vegna er gott að taka prótein fyrir svefnin vegna þess að þá fær líkaminn nauðsynlegar amínósýrurur sem að getur örvað nýmyndun próteina og uppbyggingaráhrif vöðva.
Aðeins að bæta við hjá þér :D .
Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2599
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Staða: Ótengdur

Re: veikindi og vaxtarrækt?

Póstur af SolidFeather »

nei nei nei, þið eruð að gera þetta alltof flókið.

létt og margar endurtekningar í 2 vikur skipta í þungt og færri endurtekningar í mánuð og þetta alltaf til skiptis. borða 20gr af próteinum á 2 tíma fresti og nóg af kolvetnum inn á milli ásamt hollum fitusýrum, drekka nóg af vatni og fá næga hvíld.

Annars er þetta nokkurnveginn það sama og ég sagði, nema bara þú orðar þetta eins og konu prógrammið sem mamma gamla fékk.
Svara