Síða 2 af 2

Sent: Fös 20. Jún 2003 04:20
af kemiztry
Ég mæli frekar með Rivatuner.. .miklu betra forrit ... getur stillt endalaust mikið af drasli í því :D

Sent: Fös 20. Jún 2003 12:22
af MezzUp
zooxk skrifaði:Ég var að kaupa mér FX 5600 128 mb og með fullri virðingu MezzUp held ég að það sé kannski eitthvað betra en Ti4200.
Ég meinti bara að Ti4200-8x er alveg nóg fyrir 100fps í CS

Sent: Lau 21. Jún 2003 13:40
af Fumbler
kemiztry skrifaði:Ég mæli frekar með Rivatuner.. .miklu betra forrit ... getur stillt endalaust mikið af drasli í því :D
Mikið samála þessu. Síðan er http://www.nvrt.org síðan eiginlega aldrei uppi þegar ég er að reyna að fara inná hana.

Sent: Þri 24. Jún 2003 02:10
af zooxk
Thanks guys.

Var að taka vsync af, en það er samt alltaf að bounc-a í 60-100...
en þar sem bíómyndir eru á 29 fps, þá er mjög gott væntanlega í 50 fps, en tökum við eftir því hvort að eitthvað sé á 60 fps eða 100 fps ?

Ég er ekki svo viss að mennska augað sé nægu glöggt til að sjá það ?

Sent: Þri 24. Jún 2003 03:19
af kiddi
Það er víst ekki ennþá búið að sanna hversu mörg FPS við getum raunverulega séð, rannsóknir hjá bandaríska hernum hafa sýnt allt að 220fps getu í okkur skepnunum. Það er þó talið að allt fyrir ofan 60fps sé meira en við þurfum fyrir framan tölvuskjáinn :)

Sent: Þri 24. Jún 2003 19:55
af halanegri
Já, en það er óþægilegt/óheilsusamlegt að hafa skjáinn stilltan á 60Hz(sem veldur 60fps lásnum þegar vsync er on), maður fær bara í uagun á þessu, áðu þér í forrit til að nota hærra Hz í leikjum!

Síðan er það allt annað með bíómyndir, þær t.d. í bíói, þá ertu að horfa á tjald en ekki milljónir ljósapera, og í einnig er sjónvarp allt öðruvísi(lægri upplausn, og þú situr lengra frá) en tölvuskjár. Allavega tekur maður mest eftir því(fps'inu og Hz) á tölvuskjá.

Sent: Þri 24. Jún 2003 21:39
af MezzUp
Athugið að vísindamenn hafa ekki enn sannað að skjáir hafi slæm áhrif á augu fólks........ (sá etta á vísindavefnum, nenni ekki að leita að URLi)
Hinsvegar, þegar menn eru að spila tölvuleiki þá eru menn stundum svo spenntir að augnlokin blikka ekki jafnoft og venjuleg og þá þorna augun..... (lenti stundum í þessu með Quake)

Sent: Mið 25. Jún 2003 00:18
af halanegri
Það er nú skrítið að vísindamenn hafi ekki sannað það, þar sem að þú getur auðveldlega fundið muninn á því að horfa á skjá sem er á 60Hz og skjá sem er keyrandi á 100Hz, sá fyrri er miklu óþægilegri og maður neyðist til að sitja aftar til að fá ekki hausverk, alveg eins og með sjónvarp.

Sent: Mið 25. Jún 2003 00:41
af MezzUp
nibbs, ég fæ aldrei höfuðverk við það að stija við tölvuna.....(runna CS í 60Hz)

Sent: Fös 27. Jún 2003 16:20
af Voffinn
ég fæ illt í augun ef ég sit við skjá sem er 60 hertz, finn mikinn mun á 60 og 75 :)

Sent: Fös 27. Jún 2003 17:32
af halanegri
MezzUp skrifaði:nibbs, ég fæ aldrei höfuðverk við það að stija við tölvuna.....(runna CS í 60Hz)
já, sko, maður finnur ekki eins mikið fyrir þessu í CS, því þá er allt á hreyfingu, en prófaðu að hafa windows í 60Hz í smástund, það fera að vera pirrandi. en eftir að þú prófar CS í 85 eða 100 Hz, þá finnst þér miklu óþægilegra að fara aftur í 60Hz.