Það er mjög leiðinlegt að vera á höttunum eftir skjákorti í þessu árferði og sjá þetta lið vera að pósta ónotuðum kortum á himinháar fjárhæðir á stöðum einsog vaktina og bland.audiophile skrifaði:Ég sé bara ekkert að þessu. Frjáls markaður sem stýrist af framboði og eftirspurn. Þetta eru skrýtnir tímar þar sem eftirspurn er töluvert meiri en framboð á nokkrum hlutum og vonandi tímabundið ástand. Ef einhvern langar virkilega í ákveðinn hlut og er til í að borga það verð sem seljandi sættir sig við eru væntanlega báðir aðilar sáttir.
Að því sögðu finnst mér verð á skjákortum í dag alveg út í hött og myndi ekki detta í hug að borga svona hátt verð fyrir slíkt og einnig hef ég engan áhuga á PS5 þannig að þetta ástand hefur engin áhrif á mig. Ég skil aftur á móti að það sé nett pirrandi fyrir þá sem eru með hauggamalt skjákort eða jafnvel ekkert skjákort og virkilega þurfa að kaupa nýtt.
Ef það væri ekki fyrir þetta lið að þá gætu actual notendur komist í þessi kort á eðlilegu verði, eina leiðin til að combatta þetta er að vera þolinmóður og skrá sig í röð fyrir korti hjá verslun.