Síða 2 af 2
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Þri 07. Des 2021 17:23
af falcon1
Hvað er helst að frétta af þessum skorti? Hefur verð hækkað vegna þessa? Ætti maður að reyna að bíða þetta af sér eða alveg eins gott að reyna að kaupa nýja tölvu núna?
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Þri 07. Des 2021 17:40
af audiophile
Þetta er ekkert að lagast á næstunni. Aðallega skjákort þó.
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Þri 07. Des 2021 20:27
af appel
Ég gæti alveg ímyndað mér að þetta verði áfram vandamál út næsta ár 2022.
COVID er enn í raun í gangi og birgðakeðjan er enn í ströggli, og heft heyrt að þetta ástand er líklega að valda truflunum næstu 4-6 árin í sumum hlutum.
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Þri 07. Des 2021 20:38
af Njall_L
falcon1 skrifaði:Ætti maður að reyna að bíða þetta af sér eða alveg eins gott að reyna að kaupa nýja tölvu núna?
Ef þú hefur tök á og þarft eða langar, þá bara kaupa núna. Það er ekkert víst að þetta muni batna í bráð og þó svo að birgðakeðjan lagist þá er ekkert gefið að verð fari aftur í fyrra horf.
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Þri 07. Des 2021 21:26
af audiophile
Ég allavega ákvað að bíða ekki lengur og gera smá budget uppfærslu. Þurfti sem betur fer ekki skjákort.
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Þri 07. Des 2021 23:33
af vesley
appel skrifaði:Ég gæti alveg ímyndað mér að þetta verði áfram vandamál út næsta ár 2022.
COVID er enn í raun í gangi og birgðakeðjan er enn í ströggli, og heft heyrt að þetta ástand er líklega að valda truflunum næstu 4-6 árin í sumum hlutum.
Megið búast við skort örugglega næstu 3-5 ár.
Þetta nær alveg niður í allar hrávörur eins og námugröftur og timbur.
Ekki sjáanlegt að “chip” skortur sé að lagast í náinni framtíð. Allir flutningar bæði skip og flug enn um 40 hægara.
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Mið 08. Des 2021 10:03
af GuðjónR
https://www.frettabladid.is/frettir/alg ... pcc-bakka/
Verð á hverju tonni af framleiðsluafurð fyrirtækisins hafi rokið úr 1.500 evrum í 7.000 evrur.
Held við eigum bara eftir að sjá hækkanir, því miður.
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Mið 08. Des 2021 10:18
af Moldvarpan
Svo má ekki gleyma sí auknum þrýsting um að minnka mengandi iðnað og gera allt umhverfisvænna.
Það mun draga verulega úr framleiðslugetu.
Re: Talandi um skort á tæknivörum
Sent: Mið 08. Des 2021 11:29
af rapport
Ég hef aldrei keypt jafn mikið af tölvum og fengið jafn hratt og vel afgreitt + verð voru nokkuð hagstæð og enginn sérstakur Covid bragur á þeim.
Krómbækur, pantað í júlí afgreitt í okt/nóv (Origo, snilldar verkefni) þar sem um 4.500 krómbækur voru pantaðar í júlí og afhentar grunnskólanemum til notkunar núna í nóvember/desember til að stuðla að breyttum kennsluháttum, seinasta afgreiðsla til skóla verður svo afhent Q1 '22 - Sjá
HÉR
Borðtölvur, fartölvur og skjáir, pantað í okt/nóv og afgreitt í des/jan (Advania, snilldar verkefni) þar sem um 3.000-3.500 tölvur (borð- og tvær teg af fartölvum). Borgin hafði áhyggjur af þessu ástandi og var að tryggja að geta skipt út á árinu 2022 tölvum sem teknar voru í notkun 2015-2017 -Sjá
HÉR
Ég hélt að afgreiðsla á búnaði mundi dragast miklu meira en varð raunin.
Borgin er með þessu að tryggja að geta úrelt eldri búnað og tækni, að starfsemin líði ekki fyrir að þurfa nota eldri búnað sem þungur er í þjónustu.