Síða 2 af 2

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Sun 20. Nóv 2016 16:48
af elri99

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Sun 20. Nóv 2016 17:00
af vesley

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Sun 20. Nóv 2016 17:10
af elri99
Segið svo að þessar græjur nái ekki upp góðum hita!

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Sun 20. Nóv 2016 23:51
af Psychobsy
minn hyundai með diselvél ef ég stilli miðstöðina á high og AC og auto þá blæs hún á minnsta krafti þar til vélin er orðin aðeins heit... annars ef ég set á fullann blástur á ískaldri vél þá hitnar hún seint og illa, en þetta með að láta blása inn í bílnum, að miðstöðin taki ekki loft utanfrá það kælir vélina líka enda er sama miðstöðvarelement notað og blæs í gegnum hvora stillinguna sem þú notar, en vissulega er miðstöðin alltaf að taka inn á sig hlýrra og hlýrra loft og því er nýtnin betri, og AC kerfið þurrkar loftið líka þannig það minnkar raka,

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Þri 22. Nóv 2016 22:37
af rapport
Ég hugsaði um þennan þráð, hann jinxaði bílinn minn eftir að ég las hann um helgina... mánudagsmorgun og miðstöðin blés köldu á ljósum en heiti þegar bílinn var á ferð...

Vantaði kælivökva

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Mið 23. Nóv 2016 11:02
af GuðjónR
rapport skrifaði:Ég hugsaði um þennan þráð, hann jinxaði bílinn minn eftir að ég las hann um helgina... mánudagsmorgun og miðstöðin blés köldu á ljósum en heiti þegar bílinn var á ferð...

Vantaði kælivökva
Hey gamli! Nú jinxaðir þú bílnum mínum!!! Þú póstaðir þessu í gærkvöldi, sjáðu svo hvað gerðist hjá mér í morgun! :

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Mið 23. Nóv 2016 12:02
af vesley
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Ég hugsaði um þennan þráð, hann jinxaði bílinn minn eftir að ég las hann um helgina... mánudagsmorgun og miðstöðin blés köldu á ljósum en heiti þegar bílinn var á ferð...

Vantaði kælivökva
Hey gamli! Nú jinxaðir þú bílnum mínum!!! Þú póstaðir þessu í gærkvöldi, sjáðu svo hvað gerðist hjá mér í morgun! :

Ég bætti einmitt á minn í vikunni þar sem hann var að nálgast lágmarkið í forðabúrinu :popeyed

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Mið 23. Nóv 2016 12:49
af Axel Jóhann
Þetta er fyndið dæmi með Skoda og aðra VW nýjir bílar koma alltaf með frostlöginn alveg á lágmarkinu frá verksmiðju, þannig að það þarf alltaf að bæta aðeins á þá, en það er rétt þeir eru mjög lengi að hitna í lausagangi, og alls ekki setja miðstöðina á fullan blástur eða fullan hita fyrr en hann er búinn að vera í akstri í um 5 mín, best er að hafa hitann í miðjunni og blásturinn á 1. Svo er hægt að hækka allt í botn þegar þú ert búinn að keyra smá spöl :)

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Mið 23. Nóv 2016 15:47
af Garri
GuðjónR skrifaði:Ég gerði tilraun í dag, var búinn að keyra í klukkutíma og hitinn á vatnskassa var 90 gráður og olíuhitinn var 92 gráður. Hitinn úti var um 0 gráður og mikill vindur. Ég stoppaði bílinn og setti miðstöðina á heitt og í botn. Ég horfði á hitatölurnar lækka hratt, 20 mín síðar var olíuhitinn kominn niður í 56c og vatnshitinn í eitthvað svipað. Smá stund síðar var olíuhitinn --- eða líklega minni en 50c.

Þá prófaði ég að ýta á innihitann, þ.e. miðstöðin á fullu blasti á heitu en notar loftið í bílnum í stað þess að taka ferkst loft, þá fór hitinn upp, 10 mín siðar voru hitatölurnar komnar yfir 70c. Slökkti þá á miðstöðinni og þá tóku tölurnar aftur kipp ... 5 mín síðar 77c en þá nennti ég ekki lengur.

Nú er ég farinn að skilja af hverju það virkar ílla að kveikja á bílnum í frosti og setja hitablásturinn í botn, þá einfaldlega hitnar bíllinn seint og ílla, en þetta á bara við um þegar vélin er í hægagangi ~1000 rpm ... um leið og ég fer að keyra þá rýkur hitinn upp.

Er þetta eðlilegt?
Skil þetta ekki alveg.. þegar þú stoppaðir, slökktir þú þá á bílnum eða var hann í gangi?

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Mið 23. Nóv 2016 16:24
af GuðjónR
Garri skrifaði:

Bíllinn var í gangi allan tímann. ;)