Síða 2 af 2
Re: Ram usage
Sent: Sun 18. Sep 2016 14:39
af Tonikallinn
Revenant skrifaði:Samkvæmt þessu ertu að nota ~30% af vinnsluminninu og ekkert eitt forrit að nota meira en ~115 MB af vinnsluminni.
Í notkun eru 4,8 GB af physical minni og 11,2 GB eru laus.
Núna er þetta í lagi (er 30% núna því ég er að runna Mad Max) En eins og í gær var 80% með ekkert í gangi
Re: Ram usage
Sent: Sun 18. Sep 2016 14:44
af Revenant
Getur prófað eitt. Windows 10 inniheldur "compressed memory" fídus sem færir lítið notað minni yfir í pagefile-inn.
Til að slökkva á þessu (getur alltaf breytt til baka) er að opna services guggan (t.d. með því að keyra services.msc), finna
Superfetch, hægrismella á það og velja
Stop. Fara síðan í properties á Superfetch og gera Startup type að
disabled. Endurræsa síðan tölvuna.
Sjá:
Til að bakka þá ferðu sömu leið og breytir startup type yfir í automatic og velur síðan start.
Re: Ram usage
Sent: Sun 18. Sep 2016 15:03
af Tonikallinn
Revenant skrifaði:Samkvæmt þessu ertu að nota ~30% af vinnsluminninu og ekkert eitt forrit að nota meira en ~115 MB af vinnsluminni.
Í notkun eru 4,8 GB af physical minni og 11,2 GB eru laus.
Þetta er í lagi núna. Er að runna Mad Max núna en stundum þegar tölvan er búin að vera í gangi í smá tíma getur þetta verið alveg 50-80% þegar það er ekkert í gangi
Re: Ram usage
Sent: Sun 18. Sep 2016 15:11
af I-JohnMatrix-I
Tonikallinn skrifaði:Revenant skrifaði:Samkvæmt þessu ertu að nota ~30% af vinnsluminninu og ekkert eitt forrit að nota meira en ~115 MB af vinnsluminni.
Í notkun eru 4,8 GB af physical minni og 11,2 GB eru laus.
Þetta er í lagi núna. Er að runna Mad Max núna en stundum þegar tölvan er búin að vera í gangi í smá tíma getur þetta verið alveg 50-80% þegar það er ekkert í gangi
Ég hef lent í hræðilegu memory leak frá chrome ef ég er með nokkur tabs opin þó að ég sé ekkert að gera í tölvunni. Náðu þér í ad-on í chrome sem heitir "the great suspender" Það ætti að koma í veg fyrir þetta. Ef þetta heldur áfram þá geturðu allavega útilokað að chrome sé hægt og rólega að éta upp minnið þitt.
Re: Ram usage
Sent: Sun 18. Sep 2016 15:12
af Tonikallinn
Revenant skrifaði:Getur prófað eitt. Windows 10 inniheldur "compressed memory" fídus sem færir lítið notað minni yfir í pagefile-inn.
Til að slökkva á þessu (getur alltaf breytt til baka) er að opna services guggan (t.d. með því að keyra services.msc), finna
Superfetch, hægrismella á það og velja
Stop. Fara síðan í properties á Superfetch og gera Startup type að
disabled. Endurræsa síðan tölvuna.
Sjá:
Til að bakka þá ferðu sömu leið og breytir startup type yfir í automatic og velur síðan start.
Ég trúi varla að þetta sé út af einhverju feature í Windows.
Re: Ram usage
Sent: Mán 19. Sep 2016 00:01
af upg8
Þetta er algjörlega rétt hjá Revenant.
þetta er eiginleiki sem kom með uppfærslu síðasta nóvember og er þarna því venjulega fer vinsluminni til spillis við að gera ekki neitt þegar það getur verið að geyma page file í minninu. Ekki ertu bara að flýta fyrir tölvunni heldur mögulega að draga úr sliti á SSD disknum á tölvunni þinni...
Um leið og tölvan þarf meira minni þá losar hún það eftir þörfum.