Síða 2 af 2
Re: Ódýrið ný tölvuverslun
Sent: Fim 10. Mar 2016 03:56
af Black
Hélt ég væri staddur inná heimasíðu Endurvinnslunnar..Þvílíkt þrot fráhrindandi nafn,hrikalegt útlit og logo. Í þessu tilfelli hefði verið sterkur leikur að leita til markaðsfræðing og grafískarhönnuðar,Áður en var ráðist í þessar framkvæmdir

Re: Ódýrið ný tölvuverslun
Sent: Fim 10. Mar 2016 10:04
af einarhr
Leiðin hefur bara verið niður á við síðan Tölvutek keypti Tölvuvirkni. Þó svo að Björgvin Hólm sé umdeildur þá rak hann Tölvuvirkni ágætlega í mörg ár og var hann komin með góðan kúnnahóp. Þegar viðskiptavinir Tölvuvirkni sáu í gegnum þetta spil hjá Tölvutek þá hættur þeir að versla við Tölvuvirkni.
Re: Ódýrið ný tölvuverslun
Sent: Fim 10. Mar 2016 10:21
af worghal
einarhr skrifaði:Leiðin hefur bara verið niður á við síðan Tölvutek keypti Tölvuvirkni. Þó svo að Björgvin Hólm sé umdeildur þá rak hann Tölvuvirkni ágætlega í mörg ár og var hann komin með góðan kúnnahóp. Þegar viðskiptavinir Tölvuvirkni sáu í gegnum þetta spil hjá Tölvutek þá hættur þeir að versla við Tölvuvirkni.
Keypti?
Var þetta ekki yfirtaka vegna skuldastöðu gagnvart byrgjum og fyrirtækið sett upp í?
Re: Ódýrið ný tölvuverslun
Sent: Fim 10. Mar 2016 10:48
af einarhr
worghal skrifaði:einarhr skrifaði:Leiðin hefur bara verið niður á við síðan Tölvutek keypti Tölvuvirkni. Þó svo að Björgvin Hólm sé umdeildur þá rak hann Tölvuvirkni ágætlega í mörg ár og var hann komin með góðan kúnnahóp. Þegar viðskiptavinir Tölvuvirkni sáu í gegnum þetta spil hjá Tölvutek þá hættur þeir að versla við Tölvuvirkni.
Keypti?
Var þetta ekki yfirtaka vegna skuldastöðu gagnvart byrgjum og fyrirtækið sett upp í?
Keypti eða Eignaðist skiptir svosem ekki öllu máli, Tölvutek eignaðist Tölvuvirkni að hluta til vegna yfirtöku á skuldum við birgja
já og einnig var Björgvin keyptur út úr Tölvuvirkni. Undir það síðasta var Tölvuvirkni Ruslakista fyrir Tölvutek og þar var til sölu það sem seldist ekki hjá Tölvutek. Ódýrið verður ekkert annað en útsölumarkaður Tölvutek.
Edit
Björgvin á víst ennþá 40% í Tölvuvirkni
Re: Ódýrið ný tölvuverslun
Sent: Mán 14. Mar 2016 22:37
af Galaxy
þetta lukkudýr framkallar gæsahúð...