Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Mið 28. Sep 2016 10:07
af GuðjónR
Það er víst tveggja ára ábyrð á móðurborðinu (stýringunni) svo þetta sleppur.
Bara leiðindarvesen að þurfa að skipta um móðurborð á hverju ári til að halda vélinni gangandi.
Svona hagar vélin sér:
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Mið 28. Sep 2016 12:35
af Pandemic
Er ekki eitthvað að rásinni sem gefur spennu á móðurborðið eða jafnvel í húsinu?
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Mið 28. Sep 2016 12:53
af vesley
Pandemic skrifaði:Er ekki eitthvað að rásinni sem gefur spennu á móðurborðið eða jafnvel í húsinu?
Hugsaði það sama, manni fer að gruna að það sé eitthvað annað sem veldur því að móðurborðin klikki.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Mið 28. Sep 2016 12:57
af GuðjónR
Pandemic skrifaði:Er ekki eitthvað að rásinni sem gefur spennu á móðurborðið eða jafnvel í húsinu?
Húsið var byggt 2003-2005 og því ólíklegt að það sé bilað lagnakerfi. Það er ekki útilokað að það sé spennuflökkt á kerfinu, álverið í Hvalfirði er ekki besti vinur nágranna sinna hvað það varðar.
Annaðhvort er ég svona einstaklega óheppinn með stýringar, sem er alveg möguleiki eða eitthvað annað í vélinni að valda því að eitthvað á stýringunni gefur sig. Svo getur maður farið í samsæriskenningarnar og velt því fyrir sér hvort það sé "planned obsolescence" skipun á stýringunni, en mér finnst það samt ólíklegt þetta er svo stuttur tími sem hún endist.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Mið 28. Sep 2016 15:06
af Urri
Eitt sem þú gætir tékkað á er spennan í tenglinum hvort þú sért með spennufall eða of háa spennu. (þá er ég að hugs um frá veitu).
Ef að hlutir eru að bila oft hjá fólki þá getur það verið þess vegna.
Getur googlað "brownouts" til að kynna þér það betur.
(er rafvirki)
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Fim 29. Sep 2016 10:16
af Moldvarpan
Jæja Guðjón.... er ekki best að fara losa sig við þessa sprengju?
Sprengjuóðu Kóreubúar, hélt það væru bara símarnir frá þeim sem væru hlaðnir sprengiefni.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Fös 30. Sep 2016 16:46
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Annaðhvort er ég svona einstaklega óheppinn með stýringar
Mig minnir að þú hafir nú lengi bara verið óvenju óheppinn með raftæki
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Fös 30. Sep 2016 16:49
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Annaðhvort er ég svona einstaklega óheppinn með stýringar
Mig minnir að þú hafir nú lengi bara verið óvenju óheppinn með raftæki
Þetta er eitthvað allt annað en óheppni ... bad carma I guess...
Annars þá er nýtt móðurborð komið í vélina, það þriðja (ef upprunalega móðurborðið er talið með).
Vonandi verður í lagi með þetta.
fyrir Elko og Ormsson fyrir að tækla þetta mál allt saman vel.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 10:55
af GuðjónR
Smá update á þennan þráð.
Var að fá fjórða móðurborðið til að setja í vélina, mér reiknast til að það deyi á c.a. 950 þvotta fresti.
Samsung viðurkenna þetta sem framleiðislugalla, þéttarnir á móðurborðinu þola ekki víbringinn frá tromlunni.
Fékk nýtt (framleitt 14.04.2017) móðurborð í gær sem á að innihalda betri þétta og reim sem á að stuðla að minni vibríng en sú gamla.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 11:03
af Hjaltiatla
GuðjónR skrifaði:Smá update á þennan þráð.
Var að fá fjórða móðurborðið til að setja í vélina, mér reiknast til að það deyi á c.a. 950 þvotta fresti.
Samsung viðurkenna þetta sem framleiðislugalla, þéttarnir á móðurborðinu þola ekki víbringinn frá tromlunni.
Fékk nýtt (framleitt 14.04.2017) móðurborð í gær sem á að innihalda betri þétta og reim sem á að stuðla að minni vibríng en sú gamla.
Bæði vesen með Samsung sjónvarp og Samsung Þvottavél hjá þér , eru fleiri Samsung tæki að stríða þér
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 11:09
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:

Já, keypti Samsung þurrkara stuttu eftir þvottavélina, hann var DOA, fékk annan og það er ekki langt síðan ég skipti út kælihjólinu sem var að self-destrukt (sjá mynd), svona rétt áður en menn hoppa til í gleðinni að fá sér Samsung heimilistæki þá mæli ég með því að kíkja inn á verkstæði Ormsson í Ármúla, þá gæti fengið ykkur til að skipta um skoðun.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 16:25
af ColdIce
Ég vinn við heimilistækjaviðgerðir og geri fátt annað en að skipta um stýringar og þetta heat pump hjól á Samsung...
Þeir sem kaupa þessar vélar þurfa að setja 2 sjálfskrúfandi skrúfur rétt undir leguna. Það er fyrirbyggjandi og heldur öxlinum uppi.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 16:32
af hfwf
Samsung heimilistæki out. CHECK
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 16:50
af Maddas
Líst ekkert á þetta samsung dót núna og ég sem keypti mér uppþvottavél og þvottvél frá samsung í vor
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 17:05
af audiophile
Samsung eru góðir í mörgu en í heimilistækjum forðast ég þá. Frændur þeirra hjá LG standa sig töluvert betur þar.
Reyndar hafa Samsung kæliskápar komið vel út hef ég heyrt og minn er síðan 2014 og kælir/frystir eins og þegar hann var nýr.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Sent: Lau 25. Júl 2020 17:38
af GuðjónR
Fyrst við erum að spekulera í þessum hlutum, þá langar mig að spyrja hvort þetta sé eðlilegt skrölt í vatnsdælu þvottavélarinnar?
Fannst eins og þetta kæmi fyrir nokkrum árum, mér datt helst í hug að einhver aðskotahlutur hefði farið í dæluna og eitthvað gerst en kannski er þetta normal? Alla vega þá virkar pumpan þó hún sé frekar hávær.