Síða 2 af 3

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Sun 23. Nóv 2014 20:04
af jojoharalds
ARROW :)

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 24. Nóv 2014 20:43
af Framed
GuðjónR skrifaði:Sá mjög góða mynd í gær:
Lucy.
http://www.imdb.com/title/tt2872732/?ref_=nv_sr_1" onclick="window.open(this.href);return false;
Tókst þér þá að slökkva á rökhugsun og lífeðlisfræðiþekkingu á meðan? :-k

Ágætis ræma og skemmtun ef það tekst. Sjálfum tókst mér það ekki alveg og því gat ég ekki notið hennar sem einfaldrar hasarmyndar að fullu.

Annars er ég að horfa á ýmislegt sjálfur, t.d.

The 100
Haven
Forever
Castle
Big Bang theory
Agents of Shield
o.fl.

Er hins vegar að hugsa um að koma öllum tölvunum mínum til frænda míns og fá hann til að setja upp blokkera á allt svona og ekki segja mér lykilorðin svo ég geti einbeitt mér að próflestri. :baby

Verst að ég myndi samt finna leið fram hjá því... Helv. frestunarárátta og skortur á sjálfsaga. :mad

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 24. Nóv 2014 22:43
af appel
Hollywood er á fullu í Scifi og fantasí myndum, gaman drama og rómantík er að verða dautt genre.

Ástæðan er einföld: Kínamarkaður.

Kínverjar fíla ekki vestræna rómantík, vestrænt drama og bandarískan húmor. Kínverjar fíla action og scifi, og fantasíur, vélmenni og geimur, lord of the rings og star wars, xmen og transformers, iron man og avengers, það selur í kína og því áherslan lögð á það.

Svo sjáið þið í öllum helstu myndunum í dag alltaf tengingu við Kína. T.d. í Transformers myndinni nýju þá fara þau til Kína og berjast þar. Svo í Robocop er farið til Kína, o.s.frv. Þetta er allt gert til að ná hylli kínverskra kvikmyndaaðdáenda.

Að vissu leyti er ég ánægður með þetta því þetta hafa verið uppáhalds genre'in mín, kannski smá kínverji í mér -_-
en þetta er svolítið formúlukennt samt.


Sá Interstellar um daginn, þrusugóð mynd. Sá Lucy líka, og hún er frábær. Svo sá ég nýlega aðra mergjaða mynd með Ethan Hawke sem hét Predestination. Það eru margar góðar kvikmyndir í dag, áður fyrr voru bara 1-2 góðar scifi stórmyndir á ári en núna eru þetta líklega um 5-8.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 24. Nóv 2014 23:20
af linenoise
Constantine. Fín sería, byggð á Hellblazernyndasögunum.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 24. Nóv 2014 23:50
af nidur
Það var einhver sem sagði the last ship, kláraði það um helgina og væri til í meira :)

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Þri 25. Nóv 2014 00:40
af tdog
Nú Lilyhammer season 3 var að detta á Flixið og svo er ég að spekka Helix sem voru að detta á Flixið líka.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Þri 25. Nóv 2014 00:46
af trausti164
tdog skrifaði:Nú Lilyhammer season 3 var að detta á Flixið og svo er ég að spekka Helix sem voru að detta á Flixið líka.
Var að klára Lilyhammer í fyrradag, sería 3 er algjör snilld.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Sun 06. Sep 2015 20:41
af GuðjónR
Rick & Morty er búinn með fyrstu þrjá þættina, algjör snilld.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Sun 06. Sep 2015 21:04
af brain
American Odyssey er gott

http://www.imdb.com/title/tt3551796/

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Sun 06. Sep 2015 23:05
af rapport
Mr Robot - allir tölvunerðir ættu að horfa á þá þætti

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Sun 06. Sep 2015 23:07
af GuðjónR
rapport skrifaði:Mr Robot - allir tölvunerðir ættu að horfa á þá þætti
hahaha ég var rétt í þessu að klára Mr.Robot s01e10 ...

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 13:17
af Frost
GuðjónR skrifaði:Rick & Morty er búinn með fyrstu þrjá þættina, algjör snilld.
Ég kláraði 1. seríu á núeinni. Get ekki beðið eftir að öll 2. sería detti inná Hulu :sleezyjoe

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 13:53
af GuðjónR
Frost skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Rick & Morty er búinn með fyrstu þrjá þættina, algjör snilld.
Ég kláraði 1. seríu á núeinni. Get ekki beðið eftir að öll 2. sería detti inná Hulu :sleezyjoe
Ég er að spara þá, það eru komnir sex þættir af seríu 2.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 16:53
af brynjarbergs
Nýbyrjaður á Walking Dead.

Eftir það hugsa ég að ég byrji á Game of Thrones, Dexter, Breaking Bad eða Vikings!

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 17:39
af nidur
Er enginn byrjaður á fear the walking dead
http://www.imdb.com/title/tt3743822/

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 18:12
af Tiger
Narcos frá Netflix, sería 1 fór öll á Netflix og er um Pablo Escobar.......péturguðjón peningarnarnir þarna!

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 19:16
af jericho
Ætla að taka 'Curb Your Enthusiasm' föstum tökum frá byrjun til enda. Búinn með fyrstu fjóra.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 19:20
af depill
Tiger skrifaði:Narcos frá Netflix, sería 1 fór öll á Netflix og er um Pablo Escobar.......péturguðjón peningarnarnir þarna!
Hvernig er fílingurinn af þessum. Er ekki alveg að nenna að byrja. Einhverjir voru að líka þessu fyrir Breaking Bad, erum við þar ?

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 20:02
af GuðjónR
depill skrifaði:
Tiger skrifaði:Narcos frá Netflix, sería 1 fór öll á Netflix og er um Pablo Escobar.......péturguðjón peningarnarnir þarna!
Hvernig er fílingurinn af þessum. Er ekki alveg að nenna að byrja. Einhverjir voru að líka þessu fyrir Breaking Bad, erum við þar ?
Þessi sería er komin á "to-watch" listann minn. :happy
Ég geri mér samt engar væntingar um að hún sé eitthvað í líkingu við bestu þætti allra tíma, Breaking Bad.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 21:23
af Tiger
depill skrifaði:
Tiger skrifaði:Narcos frá Netflix, sería 1 fór öll á Netflix og er um Pablo Escobar.......péturguðjón peningarnarnir þarna!
Hvernig er fílingurinn af þessum. Er ekki alveg að nenna að byrja. Einhverjir voru að líka þessu fyrir Breaking Bad, erum við þar ?
Nei ekki Braking Bad per se. En virkilega forvitnileg sería og það að þetta er byggt á sönnum atburðum og notað mikið af alvöru klippum gerir þetta meira djúsy finnst mér. Er alveg spenntur að guttinn sofnið á kvöldinn svo maður geti haldið áfram :)

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 23:42
af nidur
GuðjónR skrifaði:Rick & Morty er búinn með fyrstu þrjá þættina, algjör snilld.
Náði í þetta, helvíti skemmtilegt og skrítið

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Mán 07. Sep 2015 23:43
af nidur
Fargo http://www.imdb.com/title/tt2802850/

Mjög góðir líka

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Þri 08. Sep 2015 01:31
af Blackened
Narcos fá alveg mitt atkvæði! er kominn á 7. þátt og bölva því stundum hvað klukkan er orðin margt og hvað maður þarf að vakna snemma ;)

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Þri 08. Sep 2015 06:20
af stefhauk
Var að detta í American horror story gaf þessum þáttum aldrei séns og er á seríu 2 núna mikið svakalega eru þetta góðir þættir.

Re: Á hvað ertu að horfa?

Sent: Lau 19. Sep 2015 21:58
af rapport
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Mr Robot - allir tölvunerðir ættu að horfa á þá þætti
hahaha ég var rétt í þessu að klára Mr.Robot s01e10 ...

Ef þú færð ekki nóg af Christian Slater...