Síða 2 af 3
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 02:54
af Orri
vesley skrifaði:Mér finnst þetta flott, koma smá lífi í spjallþræðina aftur, þarf bara að koma einhverju í gang svo að söluþræðirnir deyji ekki.
x2
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 08:07
af lukkuláki
Er hægt að vera með eins samantekt fyrir neðan "Það nýjasta á spjallinu" ?
sem væri þá "Það nýjasta í markaðurinn"
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 10:02
af Dúlli
Þetta er bara hræðilegt

Vaktin er núna ekkert að uppfærast hjá mér fer allt of oft inná þessu síðu og nú er það pirrandi þar sem allt er grátt og ég hef ekkert að lesa
Finnst mjög gaman að lesa söluþræði og fylgjast með þeim, hata að lesa "Ódýr jakkaföt?" en neyðist núna þar sem það er ekkert annað að lesa þegar maður er búin með það góða.
Virkilega pirrandi að þurfa að scrolla út í rassgat til að finna söluþræði.
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 11:48
af GuðjónR
Já kannski er þetta vond hugmynd, en við gátum ekki vitað það nema að prófa...
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 11:57
af Dúlli
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 11:59
af Lunesta
ég er svona á báðum áttum.. væri ekki hægt að hafa bara svona haka vinstra megin fyrir ofan recent?
Bara "[ ] birta söluþræði?
eða e-ð. Hafa live breytingu svo að síðan myndi ekki refresha sér ef þú ýtir á hakan.
Just my 5 cents...
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 12:46
af Tesy
Geturu please breytt þessu aftur? Ég er ekki búinn að sjá neitt nýtt síðan í gær.. Ég er einn af þeim sem kíki inn á vaktina oft á dag og ef ég rekst á eitthvað sniðugt dót þá kaupi ég. Ég kíki miklu sjaldnar á söluþræðir núna heldur en áður..

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 14:47
af Yawnk
Tesy skrifaði:Geturu please breytt þessu aftur? Ég er ekki búinn að sjá neitt nýtt síðan í gær.. Ég er einn af þeim sem kíki inn á vaktina oft á dag og ef ég rekst á eitthvað sniðugt dót þá kaupi ég. Ég kíki miklu sjaldnar á söluþræðir núna heldur en áður..

Gæti ekki verið meira sammála, breyta þessu aftur, það er nú ekki eins og það sé svakalega mikið af spjallþráðum alltaf í gangi samtímis þannig að söluþræðirnir lífga smá uppá spjallið, nú skoðar maður aldrei söluþræðina.
Finnst þetta vera svipað ef Brask og Brall myndi breytast yfir í möppusíðu! vil sjá allt í einu!
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 14:54
af GuðjónR
Aight, ætlaði að gefa þessu séns yfir helgina en vegna kvartana á breyti ég þessu núna.
Þá vitum við það.

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 14:57
af Dúlli
GuðjónR skrifaði:Aight, ætlaði að gefa þessu séns yfir helgina en vegna kvartana á breyti ég þessu núna.
Þá vitum við það.

Gerðu svo sticki note af þessu svo maður upplífi ekki aftur svona martröð

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 15:07
af vesley
Martröð ? Hörmung ? Glatað ?
Ég kalla söluþræði ekki líf á spjallinu, og ég væri mjög sáttur ef maður gæti valið að geta haft þetta eins og þetta er núna þar sem þá getur maður fylgst enn betur með spjallþráðunum og verið aktívari í að lífga þessa vefsíðu meira við þar sem hún var/er yfirþyrmandi full af söluþræðum og spjallið komið út í að vera ansi hrátt og innihaldslaust.
Kvarta margir hér að þeir hafa núna ekkert til að lesa en svara svo fæstum þráðunum sem þeir lesa, þá er ekki furða að þeir hafa lítið að lesa því þeir taka lítinn þátt í spjallinu að því leyti.
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 16:39
af appel
Alltaf gaman að hleypa smá lífi í umræðurnar hérna.
Spurning um að breyta núna næst appelsínugula litnum yfir í svona ljósgrænan?
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 16:52
af hfwf
Renndi fljótt yfir þetta, spurning hvort þetta sé asked and answered, en er ekki hægt að henda í þannig fídus að þú sem notandi getur valið hvaða þræði þú sér, t.d velja bara koníaksstofuna og álíka.
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 17:04
af GuðjónR
appel skrifaði:
Alltaf gaman að hleypa smá lífi í umræðurnar hérna.
Spurning um að breyta núna næst appelsínugula litnum yfir í svona ljósgrænan?
Appelsínugulur og grænn eru í uppáhaldi hjá mér, hef oft verið að spá í að breyta í grænt, phpbb3.1 er handan við hornið, spurning um að nota tæifærið þegar það kemur og breyta litnum?
Vonandi að samfélagið fari ekki á hvolf við það

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 17:49
af hkr
Hefði viljað hafa þetta.
Skil vel að sumir eru háðir því að lesa allt sem kemur inn en söluþræðirnir eiga það til að yfirtaka "Recent Topics".
Þeir sem svo vilja lesa alla söluþræðina (eins og ég) geta þá farið inn á Markaðurinn:
http://spjall.vaktin.is/viewforum.php?f=51" onclick="window.open(this.href);return false; og séð allt sem er þar inni
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Lau 28. Jún 2014 23:07
af Sallarólegur
GuðjónR skrifaði:Aight, ætlaði að gefa þessu séns yfir helgina en vegna kvartana á breyti ég þessu núna.
Þá vitum við það.

What, þú gafst þessu ekki einu sinni 24 tíma... ert þú að lesa sama þráð og ég? Hefði gefið þessu allavega viku til prufu.
hkr skrifaði:Hefði viljað hafa þetta.
Skil vel að sumir eru háðir því að lesa allt sem kemur inn en söluþræðirnir eiga það til að yfirtaka "Recent Topics".
Þeir sem svo vilja lesa alla söluþræðina (eins og ég) geta þá farið inn á Markaðurinn:
http://spjall.vaktin.is/viewforum.php?f=51" onclick="window.open(this.href);return false; og séð allt sem er þar inni
vesley skrifaði:Martröð ? Hörmung ? Glatað ?
Ég kalla söluþræði ekki líf á spjallinu, og ég væri mjög sáttur ef maður gæti valið að geta haft þetta eins og þetta er núna þar sem þá getur maður fylgst enn betur með spjallþráðunum og verið aktívari í að lífga þessa vefsíðu meira við þar sem hún var/er yfirþyrmandi full af söluþræðum og spjallið komið út í að vera ansi hrátt og innihaldslaust.
Kvarta margir hér að þeir hafa núna ekkert til að lesa en svara svo fæstum þráðunum sem þeir lesa, þá er ekki furða að þeir hafa lítið að lesa því þeir taka lítinn þátt í spjallinu að því leyti.
Orri skrifaði:vesley skrifaði:Mér finnst þetta flott, koma smá lífi í spjallþræðina aftur, þarf bara að koma einhverju í gang svo að söluþræðirnir deyji ekki.
x2
FuriousJoe skrifaði:Snilld

appel skrifaði:Hey vá kúl

þetta er miklu betra.
En ég skil samt að það vanti núna betri leið til að fá yfirlit yfir markaðinn. Kannski þurfa að vera tveir svona kubbar á forsíðu, nýjast úr spjallinu og nýjast úr markaðnum.
Hnykill skrifaði:Mér finnst þetta bara mjög góð hugmynd. maður verður fljótur að venjast þessu svona held ég

vesley skrifaði:Mér finnst þetta flott, koma smá lífi í spjallþræðina aftur, þarf bara að koma einhverju í gang svo að söluþræðirnir deyji ekki.

- SPAM !
- markaðurinn.png (82.84 KiB) Skoðað 1837 sinnum

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Sun 29. Jún 2014 11:44
af littli-Jake
Ég held að ég sé með lausn á þessu.
http://www.jeppaspjall.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
Til hægri eru dálkar. Ef þú klikkar á spjall færðu þræðina í tímaröð. Og ef þú smekkir á auglísingar færðu þá þræði. Hér væri hægt að hafa það þannig að opening page væri alld dótið blandað og síðan gæti maður valið að fara bara í söluþræði eða bara í spjallþræði. Allir sáttir
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Sun 29. Jún 2014 12:51
af jonsig
Þetta er ágætis hugmynd, en það vantar sér spjallþráð með hugleiðingum hakkarans .
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Sun 29. Jún 2014 13:08
af roadwarrior
Verður ekki að viðurkennast eins og er að stór þáttur þess að Vaktin er vinsæl er sú að þetta er ein stærsta sölusíða landsins teingd tölvuteingdu dóti og græjum. Fyrir utan það þetta er ein stærsta sölusíða landisins yfir höfðuð. Maður mælir allavega með henni þegar maður heyrir einhvern vera að leita að einhverju sem honum vantar eða vill selja tölvuteingt. Því miður fyrir suma þá virðist vera að aðrar umræður séu ekkert svo líflegar tala nú ekki um þegar menn byrja að fílupokast yfir því að notendur byrja þræði sem ekki eru tengdir tölvum
Ein lausn á þessu er að það sé hægt fyrir notendur að ráða því hvað margir "Virkar umræður" þræðir birtast á forsíðu. Núna eru þeir 20 en mætti vera hægt að ráða því td 10 þræði, 20 þræði, 40 þræði eða 60 þræði. Það að notendur hafi möguleika á sjá td 60 virkustu síðustu þræði ætti að kovera allt sem hefur gerst síðan þeir komu síðast. Einnig að þeir sem vilja geti beðið um að vera lausir við td uppfærslur á söluþráðum og þráðum úr koníaksstofunni. Held reyndar að þegar notendur sem velja það að vera lausir við að sjá uppfærslur úr þessum þráðum muni snúa til baka. Ekki svo miklar umræður dagsdaglega td í netkerfi eða vélbúnaðarþráðum nema þegar Hringdu leggst á hliðina eða þegar "sá sem ekki má tala hér um" gerir einhverjar gloríur

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Sun 29. Jún 2014 16:09
af Danni V8
Þetta var prófið fyrir 4 árum síðan, það var sama niðurstaðan þá.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... 4&p=261919" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Sun 29. Jún 2014 20:14
af Sallarólegur
Ég myndi námunda þetta í 50/50.
Af hverju ekki að prufa þetta, segi ég. Þetta er alltaf bara prófað í nokkrar klukkustundir, svo koma 0.01% af notendum og væla yfir þessu, og þá er öllu breytt til baka.

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Sun 29. Jún 2014 20:22
af Yawnk
Sallarólegur skrifaði:
Ég myndi námunda þetta í 50/50.
Af hverju ekki að prufa þetta, segi ég. Þetta er alltaf bara prófað í nokkrar klukkustundir, svo koma 0.01% af notendum og væla yfir þessu, og þá er öllu breytt til baka.

Haha nema þetta 0.01% af notendum eru þeir einu sem eru virkir í þráðum hér á Vaktinni
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Sun 29. Jún 2014 20:28
af Sallarólegur
Yawnk skrifaði:Sallarólegur skrifaði:
Ég myndi námunda þetta í 50/50.
Af hverju ekki að prufa þetta, segi ég. Þetta er alltaf bara prófað í nokkrar klukkustundir, svo koma 0.01% af notendum og væla yfir þessu, og þá er öllu breytt til baka.

Haha nema þetta 0.01% af notendum eru þeir einu sem eru virkir í þráðum hér á Vaktinni
Það eru líka önnur 0.01% sem eru fylgjandi þessari breytingu, allavega finnst mér ekkert að því að hafa þetta svona í viku og athuga hvernig það gengur. Það eru rúmlega 750 notendur með fleiri en 100 pósta, þó að 10 manns séu ósáttir og commenti hér endurspeglar það ekki alltaf fjöldan. Þetta virðist vera 50/50 mál - þess vegna verður að prufa þetta til þess að sjá hvernig þetta gengur

Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Mán 07. Júl 2014 10:15
af GuðjónR
Jæja, þið getið hætt að rökræða um þetta núna!
Gjörsvovel:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=61557" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Það nýjasta á spjallinu (Recent topics)
Sent: Þri 08. Júl 2014 06:24
af Danni V8
Nei! Ég hætti ekki fyrr en Koníaksstofan er farin líka! Og bílaplanið er efst.