Síða 2 af 3
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 12:54
af demaNtur
Yawnk skrifaði:Hvurslags, ekkert nema bjé emm vaffar hér, á enginn fornbíl???
Langflestir af þessum bílar alveg að detta í fornbíla-aldurinn

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 13:02
af appel
demaNtur skrifaði:Yawnk skrifaði:Hvurslags, ekkert nema bjé emm vaffar hér, á enginn fornbíl???
Langflestir af þessum bílar alveg að detta í fornbíla-aldurinn

Hefuru séð hvað nýjir bílar kosta? Íslendingar eru bara fátækir og hafa ekkert efni á að spreða 5-6 milljónum í skrjóð.
Við þurfum bara að hugsa vel um bílana okkar og láta þá endast í áratugi. Þetta er svona Kúbu-ástand hérna.
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 13:20
af audiophile
Eignaðist minn fyrsta bíl 17 ára og það var þessi líka flotti Nissan Sunny.....
Í nákvæmlega þessari útfærslu sem Top Gear valdi einu sinni leiðinlegasta bíl í heimi. 1987 módel af vínrauðum Nissan Sunny sedan með brúnni innréttingu.
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 13:33
af Moquai
18. Keypti þennann um daginn.

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 17:05
af AndriKarl
Var 16 ára þegar ég eignaðist þennan mikla bíl.
'97 Mitsubishi Lancer 1.6 4x4
Hann endaði svo lífið fimm mánuðum eftir að ég fékk bílpróf...

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 17:50
af Yawnk
AndriKarl skrifaði:Var 16 ára þegar ég eignaðist þennan mikla bíl.
'97 Mitsubishi Lancer 1.6 4x4
Hann endaði svo lífið fimm mánuðum eftir að ég fékk bílpróf...

Hvað kom fyrir?

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 18:22
af Gunnar
Yawnk skrifaði:
Hvað kom fyrir?

það var keyrt aftaná hann sérðu það ekki?
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 18:36
af Legolas
17 ára + 2 mán, 1974 Chevy Nova 4 door RAUÐUR

- 1974 chevy nova 4 door.jpg (529.01 KiB) Skoðað 2053 sinnum
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 18:37
af Yawnk
Gunnar skrifaði:Yawnk skrifaði:
Hvað kom fyrir?

það var keyrt aftaná hann sérðu það ekki?
Nú er það? ég hélt að það hefði verið keyrt í hliðina á honum, nú jæja.
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 18:38
af Yawnk
Legolas skrifaði:17 ára + 2 mán, 1974 Chevy Nova 4 door RAUÐUR
1974%20chevy%20nova%204%20door.jpg
Þetta líst mér á!!

Er þetta þinn bíll á myndinni? ef ekki, komdu með mynd!
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 18:44
af Legolas
Sorry á ekki til mynd og ég hef grenjað útaf því í mörg mörg ár eða frá 1986 átti hann í tæp 2 ár.
Yawnk skrifaði:Legolas skrifaði:17 ára + 2 mán, 1974 Chevy Nova 4 door RAUÐUR
1974%20chevy%20nova%204%20door.jpg
Þetta líst mér á!!

Er þetta þinn bíll á myndinni? ef ekki, komdu með mynd!
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 19:00
af Yawnk
Legolas skrifaði:Sorry á ekki til mynd og ég hef grenjað útaf því í mörg mörg ár eða frá 1986 átti hann í tæp 2 ár.
Yawnk skrifaði:Legolas skrifaði:17 ára + 2 mán, 1974 Chevy Nova 4 door RAUÐUR
1974%20chevy%20nova%204%20door.jpg
Þetta líst mér á!!

Er þetta þinn bíll á myndinni? ef ekki, komdu með mynd!
Já svoleiðis! Ég ætla að grenja með þér, ég geri mér grein fyrir því hversu sárt þetta er

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 20:58
af Lexxinn
Moquai skrifaði:18. Keypti þennann um daginn.
Er þetta C320 bíllinn sem var til sölu um daginn? Ek 118, fullleðraður og með amg afturstuðara minnir mig?
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 21:22
af GullMoli
Minnir að ég hafi verið orðinn 18, var MMC haugur, Galant GTi Dynamic-4 1991 árg, (beygði á öllum 4 dekkjum við ákveðnar aðstæður) + 4x4!
Var svosum fínt að leika sér á þessu í snjónum en ég seldi þetta svo á 50% hærra verði ég ég keyptann á.
Hef svo átt Volvo síðan, fyrst 940 GL árg 91 og svo núna nýjast Volvo 960 95 árgerð. Allt RWD og ljómandi gott að keyra

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 22:18
af Swanmark
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 22:51
af Frost
18 ára og þá eignaðist ég Honda Accord.
Ágætis bíll.
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mán 22. Júl 2013 23:54
af Páll
Keypti fyrsta bílinn minn þegar ég var 16 ára á bilauppbod.is, vw golf
gerði svo mikið fyrir þennan bíl, ný tímareim, ný kúpling, lagaður gírkassinn, lagaðar allar hurðalæsingar og bombaði svo glænýju útvarpi og bassaboxi í hann

17 ára style!
Jaja, silly plata i know
Svo þegar ég fékk bílprófið þá keyrði ég aftan á kellingu á fyrsta deginum með prófið

Skipti honum upp í Imprezu druslu sem ég þá seldi
Keypti mér svo BMW og fékk delluna, fyrsti bmwinn var e39 520, svo keypti ég e36 325 coupe sem ég seldi svo á klink
keypti mér líka suzuki vitara vetrarbíl og seldi eftir seinasta vetur og vw golf annan sem ég seldi svo líka
Seinstu tveir bílarnir hjá mér
e36 328 1995 begin_of_the_skype_highlighting 328 1995 end_of_the_skype_highlighting
Svo núna fyrir ekki löngu seldi ég hann og keypti mér fullorðins bíl, e34 M5 1991 árg
Bombaði bara rauðu undir hann til að geta keyrt hann, er að leita mér af nýjum felgum undir nýja kaggann!
þannig minn listi síðan ég fékk bílpróf 2012
vwgolf 99 x2
Subaru Impreza DOLLLA!
Suzuki Vitara 4x4
BMW e39 520
BMW e36 coupe 325
BMW e36 328 4door
Svo í dag e34 m5

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Þri 23. Júl 2013 00:03
af Moquai
Lexxinn skrifaði:Moquai skrifaði:18. Keypti þennann um daginn.
Er þetta C320 bíllinn sem var til sölu um daginn? Ek 118, fullleðraður og með amg afturstuðara minnir mig?
Passar, varst þú að skoða hann?
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Þri 23. Júl 2013 00:13
af Klaufi
Keypti mér þrjá bíla áður en ég fékk bílpróf..
Sá fyrsti var bjalla sem ég smíðaði buggý úr í kringum 13-14 ára:
Sá næsti var fjórum mánuðum áður en ég fékk bílpróf, þá flutti ég inn '05 C230K Sport Benz með AMG útlitspakka:
Og sá þriðji var tíu dögum áður en ég fékk bílprófið, bíll sem ég var búinn að eltast við lengi, '84 BJ42 Land Cruiser:
Það fyndna er að ég á ennþá benzann og krúserinn í dag, krúserinn er ég að lengja og smíða nánast allt boddýið nýtt á, en benzann er ég alltaf á leiðinni að fara að selja og fá mér eitthvað með palli.
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Þri 23. Júl 2013 00:20
af Gislinn
Var 17 eða 18 ára (man ekki alveg), ég keypti 1987 BMW druslu sem var mjög ómerkileg hrúga af málmi. Í það eina sinn sem var brotist inní hann þá var stolið hanskahólfinu og smurbókinni úr bílnum, allt annað látið vera.
True story. Og til að svara spurningum ykkar:
A) Já hanskahólfið var tekið.
B) Hanskahólfið tæmt í framsætið og allt skilið eftir nema hanskahólfið sjálft og smurbókin.
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Þri 23. Júl 2013 00:57
af AndriKarl
Yawnk skrifaði:
Hvað kom fyrir?

Það gekk eitthvað illa að bremsa þegar það kom að gatnamótum

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Þri 23. Júl 2013 18:40
af Lexxinn
Moquai skrifaði:Lexxinn skrifaði:Moquai skrifaði:18. Keypti þennann um daginn.
Er þetta C320 bíllinn sem var til sölu um daginn? Ek 118, fullleðraður og með amg afturstuðara minnir mig?
Passar, varst þú að skoða hann?
Shit hvað þú stals honum degi eða tvem á undan mér! Sá svo eftir honum, glæsilegt eintak annars og til hamingju
Reyndar það sem stoppaði mig að fara ekki strax var að ég er að eltast við facelift innréttinguna

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Þri 23. Júl 2013 20:16
af Orri
Keypti minn fyrsta 17 ára.
Pabbi smitaði mig af Benz veikinni þegar ég var yngri og uppáhalds boddíið mitt af Benz hefur ávallt verið W201, eða 190E bíllinn (forveri C-Class).
Þannig það kom ekki til greina annað en að kaupa eitt stykki svoleiðis rétt fyrir bílprófið.
Þetta er 1991 módel 190E 1,8 lítra, ekinn ekki nema 270 þúsund. Ég átti þennann í eitt ár áður en ég keypti næsta, en þessi var að eyða svolítið miklu þar sem það er svo lítil og kraftlaus vél í þessu, hefði viljað amk 2 lítra vél (helst 2,3 eða 2,6l.

- 332218_2407901715778_7158674_o.jpg (69.51 KiB) Skoðað 1859 sinnum
Í maí á síðasta ári keypti ég mér svo minn annan bíl og var það annar Benz. Í þetta skiptið var það 1998 módel 290E Turbo Diesel sem varð fyrir valinu, gamall leigubíll sem var ekinn ekki nema 430 þúsund kílómetra. Þetta er frábær bíll sem eyddi engu miðað við vélarstærð (8-9 lítrar innanbæjar á 18" felgum) og ágætis kraftur í þessu. Tala nú ekki hvað hann er rúmgóður og þæginlegur

- 250944_4341893304359_1933394870_n.jpg (244.6 KiB) Skoðað 1859 sinnum
Svo núna fyrir tæpum mánuði var kominn tími á aðra uppfærslu, enda liðið ár frá því að ég keypti seinasta bíl
Aftur var stökkið 7 ár fram í tímann, 2005 módel 220E CDI sem er mun öflugri en sá gamli og eyðir minna. Þessi er ekinn litla 374 þúsund kílómetra og á nóg eftir. Á eftir að kaupa mér flottari felgur og taka betri myndir, en þessi dugar þangað til

- 1040050_10201452894663126_1132500251_o.jpg (592.81 KiB) Skoðað 1859 sinnum
Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mið 24. Júl 2013 19:01
af Yawnk
@Orri - Bara rétt tilkeyrðir

Re: Hvað voruð þið gamlir þegar þið eignuðust fyrsta bílinn?
Sent: Mið 24. Júl 2013 19:34
af vargurinn
Páll skrifaði:Keypti fyrsta bílinn minn þegar ég var 16 ára á bilauppbod.is, vw golf
okei spyr eins og algjör fáviti en bilauppbod.is er með svo drullulág verð, er eitthvað catch á þessu?
bara 2 good 2 be true er alltaf með catch.
EDIT: big nevermind, skoðaði þetta nánar og alltaf eitthvað ves á þeim