Síða 2 af 4

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 01. Okt 2012 22:50
af intenz
braudrist skrifaði:Af hverju slökkvið þið ekki á 2G / EDGE? Ég hef aldrei séð neinn tilgang með því eftir að 3G / HSPA kom út.
Eins og þú sérð hér á myndinni fyrir ofan þá hefði ég verið sambandslaus í 19 tíma ef ég hefði gert það.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 01. Okt 2012 22:52
af Daz
braudrist skrifaði:Af hverju slökkvið þið ekki á 2G / EDGE? Ég hef aldrei séð neinn tilgang með því eftir að 3G / HSPA kom út.
Þegar 3G virðist eyða MUN meira batterí en 2G? Ég hef annars ekki séð neina ástæðu fyrir því að vera tengdur við 3G þegar síminn er idle, sé ekki að það sé nokkur hlutur sem þurfi 3G tenginguna þá.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 01. Okt 2012 22:54
af Jón Ragnar
Þeir segjast ætla að laga þetta.

Vonum það besta

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 01. Okt 2012 22:54
af braudrist
Þá sökkar dreifikerfið hjá Nova / Vodafone. Ég er hjá Símanum og missi aldrei 3G samband.
Daz skrifaði:
braudrist skrifaði:Af hverju slökkvið þið ekki á 2G / EDGE? Ég hef aldrei séð neinn tilgang með því eftir að 3G / HSPA kom út.
Þegar 3G virðist eyða MUN meira batterí en 2G? Ég hef annars ekki séð neina ástæðu fyrir því að vera tengdur við 3G þegar síminn er idle, sé ekki að það sé nokkur hlutur sem þurfi 3G tenginguna þá.
3G eyðir aðeins meira batteríi en EDGE ef 3G sambandið er mjög lélegt. Ef það er aftur á móti gott þá eyðir það svipað miklu.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 01. Okt 2012 22:57
af Glazier
braudrist skrifaði:Af hverju slökkvið þið ekki á 2G / EDGE? Ég hef aldrei séð neinn tilgang með því eftir að 3G / HSPA kom út.
Vegna þess að þegar maður er að nota 3g net hjá nova og það dettur síðan út fer maður yfir á E hjá vodafone og getur haldið áfram á netinu, bara svolítið hægara.
Ef þú ert með slökkt á E þá missiru bara allt netsamband þegar 3g dettur út, sem gerist nokkrum sinnum á dag hjá flestum sem eru hjá nova.

Oft íhugað að fara yfir í Símann fyrir betra 3g samband en eina ástæðan er (eins og hjá flestum) er að 90% af vinahópnum er í Nova.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 01. Okt 2012 23:02
af Daz
braudrist skrifaði:Þá sökkar dreifikerfið hjá Nova / Vodafone. Ég er hjá Símanum og missi aldrei 3G samband.

--snipp--
3G eyðir aðeins meira batteríi en EDGE ef 3G sambandið er mjög lélegt. Ef það er aftur á móti gott þá eyðir það svipað miklu.
Ég er hjá símanum og finn greinilegann mun á því hvort ég er með 3G af eða á.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 00:31
af Swooper
intenz skrifaði:Mæli með þessu appi fyrir fólk til að sjá hversu oft og lengi í senn síminn er á 2G/3G. Væri gaman að sjá ef þið allir settuð þetta app upp, leyfðuð því að malla í 1-2 sólarhringa og postuðuð svo mynd hingað inn ásamt því hvar þið eruð búsettir og hvar þið eruð með farsímaþjónustu. Hægt að kveikja á "graph" í stillingunum.
Bah. Setti þetta upp í gærkvöldi, ætlaði að fara að pósta mynd núna en þetta resettast á miðnætti nema maður borgi #-o Skal reyna að muna fyrir miðnætti annað kvöld :lol:

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 00:50
af intenz
Swooper skrifaði:

Hahaha ok :D

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 01:00
af hfwf

Sama hjá mér :) en ég kikti á þetta fyrr í kvöld þar var 3g í gangi í 97% af tímanum rest edge.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 01:23
af Swooper
Já einmitt, var eitthvað svipað þegar ég kíkti á þetta í dag minnir mig. Kannski 7% EDGE.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 01:37
af intenz
Alltaf öfugt hjá mér, 97% EDGE og rest N/A eða 3G. :uhh1

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 01:45
af Swooper
intenz skrifaði:Alltaf öfugt hjá mér, 97% EDGE og rest N/A eða 3G. :uhh1
Held það sé kominn tími til að skipta úr Nova, þá.. :P

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 01:54
af hfwf
Swooper skrifaði:
intenz skrifaði:Alltaf öfugt hjá mér, 97% EDGE og rest N/A eða 3G. :uhh1
Held það sé kominn tími til að skipta úr Nova, þá.. :P
Akkúrat í NOVA hér :)

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 11:21
af intenz
Swooper skrifaði:
intenz skrifaði:Alltaf öfugt hjá mér, 97% EDGE og rest N/A eða 3G. :uhh1
Held það sé kominn tími til að skipta úr Nova, þá.. :P
Var í Nova, skipti í nokkra mánuði yfir í Ring, þjónustan þar er engin og allir vinir mínir neituðu að færa sig þannig ég skipti aftur yfir í Nova.

En ég finn mjög mikinn mun á Ring og Nova hvað varðar 3G og batterísendingu.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:04
af urban
intenz skrifaði:
Swooper skrifaði:
intenz skrifaði:Alltaf öfugt hjá mér, 97% EDGE og rest N/A eða 3G. :uhh1
Held það sé kominn tími til að skipta úr Nova, þá.. :P
Var í Nova, skipti í nokkra mánuði yfir í Ring, þjónustan þar er engin og allir vinir mínir neituðu að færa sig þannig ég skipti aftur yfir í Nova.

En ég finn mjög mikinn mun á Ring og Nova hvað varðar 3G og batterísendingu.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2
ok nú skil ég að þú haldir þig ekki hjá ring, þar sem að vinirnir eru hjá nova.

en ég get ekki séð að þjónustan sé eitthvað frábær hjá nova heldur.
þú nærð 3G 3% af tímanum, er ekki alveg í lagi að borga eitthvað aðeins meira og fá svolítið hærri prósentu en 3%

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 22:50
af Swooper
Er fólk sem er með snjallsíma upp á 100k+, og skiptir jafnvel upp í nýjustu týpu um leið og hún kemur, í alvöru að spá í einhverja hundrað- eða þúsundkalla sem það munar á mánuði í símreikning að vera hjá Nova af því að vinirnir eru þar, frekar en að vera hjá símafyrirtæki með almennilegt samband...? :-k

Edit: Hér er annars kökuritið mitt fyrir daginn í dag frá miðnætti.
Mynd
Vodafone, bý í Áslandinu í Hafnarfirði, vinn rétt hjá Hlemmi. Aðeins hærri EDGE-prósenta en í gær, veit ekki af hverju. Var meira á ferðinni í gær, getur hafa verið betra samband þar sem ég var þá. Dettur niður á 2G á meðan ég er að tala í hann, man ekki hvort það er einhver stilling í JuiceDefender hjá mér eða hvað.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 23:20
af hfwf
Mynd
Hér er mín kaka. Meira edge í dag en í gær, síminn notaður aðeins minna. Er búnað vera á sama stað allan þann tíma yfir þessa 22 tíma. Þeas í skeifunni.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 23:41
af Glazier
Swooper skrifaði:Er fólk sem er með snjallsíma upp á 100k+, og skiptir jafnvel upp í nýjustu týpu um leið og hún kemur, í alvöru að spá í einhverja hundrað- eða þúsundkalla sem það munar á mánuði í símreikning að vera hjá Nova af því að vinirnir eru þar, frekar en að vera hjá símafyrirtæki með almennilegt samband...? :-k
Ég myndi nú ekki gráta nokkra þúsundkalla fyrir betra 3G samband.. en yrði leiðinlegra að hætta að fá símtöl vegna þess að svona 80% af vinahópnum tímir ekki að hringja eða á ekki inneign til að hringja í annað símfyrirtæki.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 23:44
af MatroX
Nova á suðurnesjunum. en samt litið að marka símann og ég var ekki að nota hann mikið
Screenshot_2012-10-03-23-38-38.png
Screenshot_2012-10-03-23-38-38.png (53.58 KiB) Skoðað 1041 sinnum

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mið 03. Okt 2012 23:57
af Swooper
Glazier skrifaði:Ég myndi nú ekki gráta nokkra þúsundkalla fyrir betra 3G samband.. en yrði leiðinlegra að hætta að fá símtöl vegna þess að svona 80% af vinahópnum tímir ekki að hringja eða á ekki inneign til að hringja í annað símfyrirtæki.
Meinar. Hef ekki lent í því sjálfur, þið eigið greinilega bara svona leim vini :P

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Sun 07. Okt 2012 23:47
af KermitTheFrog
3G frelsi Hjá Nova. Inni í Garðabæ mestallan daginn.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 08. Okt 2012 01:11
af worghal
er til eitthvað svona forrit fyrir ios?

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 08. Okt 2012 01:26
af Swooper
Nokkuð viss um að ójailbreakað iOS leyfir ekki forritum ekki að fá nægan aðgang að system gögnum til að það sé hægt.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 08. Okt 2012 08:56
af worghal
Swooper skrifaði:Nokkuð viss um að ójailbreakað iOS leyfir ekki forritum ekki að fá nægan aðgang að system gögnum til að það sé hægt.
minn er auðvitað ajilbreakaður.

Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður

Sent: Mán 08. Okt 2012 23:46
af pattzi
Hvernig tekur maður screenshot bara símaskjánum: /

Sent from my XT910 using Tapatalk 2