AciD_RaiN skrifaði:Varstu eitthvað búinn að ráðfæra þig við lögfræðing??? Synd að lenda í svona... Ég bara óska þér alls hins besta.
Svartækni
Sælir.
Takk fyrir stuðninginn. Já ég var búinn að því, hér er svar lögfræðings:
Það er alveg ljóst að sjónvarpstæki af þessari gerð falla í þennan flokk sem neytendalöggjöfin telur að eigi að hafa lengri ábyrgðartíma en 2 ár.
Eins og þú veltir hins vegar réttilega fyrir þér þá er það hins vegar spurning hvort það sé kostnaðarins virði að leggja í málaferli út af þessu.
Það sem þú getur hins vegar gert er að skjóta málinu til úrskurðarnefndar í lausafjárkaupum. Það kostar ekkert að leggja málið fyrir nefndina.
Þú getur sjálfur fyllt út þá pappíra sem þarf að ganga frá.
Reyndar er seljandinn ekki skuldbundinn til að fylgja úrskurðinum en þetta er amk það sem þú getur gert án þess að leggja út í umtalsverðan kostnað.
Upplýsingar um kærunefndina eru á síðu neytendastofu.
russi skrifaði:get líka bent áþað, að þó þú hefðir allt bakvið þig rétt, þa stórefa ég að nafni minn í SvarTækni myndi ábyrgjast þetta hann hefur skipt allavega 2x um kennitölur á síðustu fimm árum.
Í mínum bissness er hreinlega varað við honum, þetta er maðurinn sem kom Tæknival á hausinn, enn hann kom þeim líka á toppinn á sinum tíma