ManiO skrifaði:Þetta er bara út um allt á netinu, maður myndi ekkert kvarta ef að vaktin væri laus við þetta
sumir sárir yfir því að þeim vex ekki skegg :beer
Þó svo að skeggvöxturinn minn gæti verið þéttari þá er ég engan veginn sár yfir því, væri í raun frekar til að vera alveg skegglaus
tjahh skeggvöxtur minn jú gæti svo sem alveg verið þéttari.
en ég er einmitt sammála þér í því að ég væri frekar til í að vera skegglaus.
finnst það einmitt vera helst þeir sem að langar í skegg og þéttaraskegg (semsagt vex helst ekki skegg) sem að tala svona
það leiðinlegasta sem að ég geri er að raka mig, og ég væri svo til í að vera laus við skeggið.
en já, ég tek ekki þátt í mottu mars, tjahh ég svo sem er yfirleitt með 3+daga skegg (og uppí 14dagaskegg) en það er bara vegna þess að ég einmitt nenni ekki að raka mig
þar að auki ef að ég ætti að raka mig fyrir utan mottuna, þá væri bara talað við mig á pólsku og ég nenni því engan vegin
Haha sammála.. en ástæðan fyrir því að ég tek ekki þátt er að það er engin motta af viti hjá mér.. og er ég eiginlega bara fegin að sleppa við það að vera asnalegur í 1 mánuð en það er samt gaman af þessu
Bætti aðeins síðuna mína þarna, breytti Asteroids leiknum smá og setti inn eina gamla en þrusugóða mottumynd hehe mottukóngurinn
Bara leiðinlegt að þetta stendur bara í einn mánuð, er ofvirkur svo eftir nokkra mánuði myndi síðan líta meira út eins og einhver svakaleg afþreyingarsíða frekar en síða fyrir söfnunarátak En það kemur annað ár eftir þetta og ef þeir halda síðunni óbreyttri næstu árin þá verður gaman hjá sumum
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
DoofuZ skrifaði:Bætti aðeins síðuna mína þarna, breytti Asteroids leiknum smá og setti inn eina gamla en þrusugóða mottumynd hehe mottukóngurinn
Bara leiðinlegt að þetta stendur bara í einn mánuð, er ofvirkur svo eftir nokkra mánuði myndi síðan líta meira út eins og einhver svakaleg afþreyingarsíða frekar en síða fyrir söfnunarátak En það kemur annað ár eftir þetta og ef þeir halda síðunni óbreyttri næstu árin þá verður gaman hjá sumum
Mikið kann ég vel að meta svona framtak. Ég er samt að spila asteroids þarna og skýt þessa menn og er allan tímann að velta því fyrir mér... Af hverju er Hitler ekki þarna líka?
Já LOL! Þarf að skella honum inn! Klippti þessa kalla bara útúr mynd af mismunandi skeggstílum sem ég fann á netinu. En ég var akkúrat í þessu að skella Hitler kallinum inn, hann birtist núna öðru hverju