Síða 2 af 11
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 13:45
af AntiTrust
Dazy crazy skrifaði:Flott bréf, á samt ekki síðasta orðið að vera "neytendum"?
En það er samt með þessa auglýsingu með Eddu Björgvins
Ég borða spínatjukk svo ég fái ekki vírusa, eins og apple tölvan mín. Þetta er alveg hægt að túlka þannig að apple tölvan hafi fengið vírus, allavega ef þetta er orðrétt

Neytandi / Notandi er auðvitað sitthvort orðið, þá má vel vera að neytandi hafi átt betur við. Mér finnst við vera notendur þegar kemur að tölvum, frekar en neytendur, getur verið að lagalega séð sé það vitlaust.
Þetta átti ekkert sérstaklega við um orð/setningu einnar manneskju heldur þessi ongoing markaðsherferð sem hefur verið í gangi í nokkra mánuði, og aðal setningin í þessum auglýsingum er yfirleitt á þá leið að Apple tölvur séu víruslausar. Það er hægt að túlka setninguna hennar Eddu á þennan veg já, eða jafnvel á þann hátt að að hún OG Apple tölvan hennar borði spínatboozt til að koma í veg fyrir vírusa.
Takk strákar fyrir hrósin, verður spennandi að sjá hver svörin verða.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 13:51
af Daz
Væri ekki eðlilegast að fara í mál við forsvaramenn þessarar herferðar, þar sem apple tölvan mín eyðilagðist eftir að ég gaf henni spínat

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 14:31
af BjarkiB
Frábært bréf hjá þér, þeir hjá neytandastofunni gætu ekki annað en að taka mark af því.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 14:44
af kjarribesti
Haha já gefðu tölvunni þinni smá spínatboozt og gáðu hvort þú getir ekki plokkað peninga úr liðinu,
annars vel gert AntiTrust... :santa
fáránlegar auglýsingar af mínu mati, einn frændi minn fékk einhvern vírus í sína tölvu
og hún hefur verið í rusli síðan viðgerð og hreinsun...
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 14:47
af zdndz
Snilldarbréf AntiTrust
Ég ákvað að spurjast fyrir hjá þeim hvort þetta væri ekki rangt að halda þessu fram og langar að deila svarinu með ykkur:
Sæll ----------,
Það sem við erum að vísa er það sem framleiðandinn segir, sjá :
http://www.apple.com/why-mac/better-os/#viruses" onclick="window.open(this.href);return false;
Appe fær ekki Pc vírusa, einföld staðreynd sem fer í taugarnar á sumum
Kommon, ég gæti selt bara einhverja tölvu og sagt að hún fær ekki vírusa því hún fær ekki ákveðna gerð vírusa. Svo mikið kjaftæði.
EDIT: og þetta var framkvæmdastjóri epli.is sem svaraði!
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 14:51
af AntiTrust
zdndz skrifaði:
Sæll ----------,
Það sem við erum að vísa er það sem framleiðandinn segir, sjá :
http://www.apple.com/why-mac/better-os/#viruses" onclick="window.open(this.href);return false;
Appe fær ekki Pc vírusa, einföld staðreynd sem fer í taugarnar á sumum
Og hvað? Er bíll vatnsheldur ef hann getur keyrt út í vatn en ekki fengið á sig rigningu?
Hræðilegt svar, og verr rökstutt. Þeir taka hvergi fram í auglýsingum að þeir séu að tala um e-rja sérstaka vírusa, enda væri slíkt fljótt að falla um sjálft sig.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 14:53
af zdndz
AntiTrust skrifaði:zdndz skrifaði:
Sæll ----------,
Það sem við erum að vísa er það sem framleiðandinn segir, sjá :
http://www.apple.com/why-mac/better-os/#viruses" onclick="window.open(this.href);return false;
Appe fær ekki Pc vírusa, einföld staðreynd sem fer í taugarnar á sumum
Og hvað? Er bíll vatnsheldur ef hann getur keyrt út í vatn en ekki fengið á sig rigningu?
Hræðilegt svar, og verr rökstutt. Þeir taka hvergi fram í auglýsingum að þeir séu að tala um e-rja sérstaka vírusa, enda væri slíkt fljótt að falla um sjálft sig.
enda benti ég honum á það.
En annað eru apple tölvur ekki líka PC tölvur ?
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 14:58
af AntiTrust
zdndz skrifaði:enda benti ég honum á það.
En annað eru apple tölvur ekki líka PC tölvur ?
Jú, tæknilega og fræðilega eru Mac tölvur "Personal Computers" og falla því undir flokkinn PC tölvur. Hinsvegar hafa Mac elskendur og Apple sjálfir unnið hörðum höndum að því í gegnum tíðina að reyna að búa til brú þarna á milli, líklega til að styrkja sína eigin markaðsstöðu, til að vera ekki þekktir bara sem "PC tölva með Mac OS".
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 15:04
af Gúrú
Sæll ----------,
Það sem við erum að vísa er það sem framleiðandinn segir, sjá :
http://www.apple.com/why-mac/better-os/#viruses" onclick="window.open(this.href);return false;
Appe fær ekki Pc vírusa, einföld staðreynd sem fer í taugarnar á sumum
Hahaha, myndi reka þennan aðila á staðnum.
Í fyrsta lagi sögðu þeir víst í auglýsingunni "engir vírusar"
Í öðru lagi er mac'ar PC tölvur, eitthvað sem að hvorki þessi manneskja né Apple er að fara að breyta.
Og afleiðingin af því væri þá að vírusar í Mac væru PC vírusar, Macar fá vírusa og fá því PC vírusa
Auglýsingin er einnig nákvæmlega jafn ólögleg sama hvað framleiðandi vörunnar
heldur fram - og engin afsökun fyrir þessari misnotkun á fáfræði.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 15:08
af zdndz
apple hefur nú fengið erindi frá neytendastofu sem þeir hafa áfrýjað, segir hann í svari til mín
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 15:15
af Klemmi
Gunnar Nelson að ljúga beint upp í opið geðið á mér?
Ef ég væri 3 metrum stærri myndi ég fara og taka í hann.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 15:17
af AntiTrust
Verst af öllu er að vera "leikari" í þessum auglýsingum, og vera ekki meðvitaður um hræsnina og lygarnar sem þeir eru að dæla útúr sér fyrir framan alþjóð.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 15:25
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Gunnar Nelson að ljúga beint upp í opið geðið á mér?
Ef ég væri 3 metrum stærri myndi ég fara og taka í hann.
hehehehe

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 15:27
af Sallarólegur
zdndz skrifaði:Snilldarbréf AntiTrust
Ég ákvað að spurjast fyrir hjá þeim hvort þetta væri ekki rangt að halda þessu fram og langar að deila svarinu með ykkur:
Sæll ----------,
Það sem við erum að vísa er það sem framleiðandinn segir, sjá :
http://www.apple.com/why-mac/better-os/#viruses" onclick="window.open(this.href);return false;
Appe fær ekki Pc vírusa, einföld staðreynd sem fer í taugarnar á sumum
Barnalegt svar "fer í taugarnar á sumum".
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 15:28
af ViktorS
Klemmi skrifaði:Gunnar Nelson að ljúga beint upp í opið geðið á mér?
Ef ég væri 3 metrum stærri myndi ég fara og taka í hann.
Hann veit nefnilega nákvæmlega hvað hann er að segja

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 16:42
af Klemmi
ViktorS skrifaði:Klemmi skrifaði:Gunnar Nelson að ljúga beint upp í opið geðið á mér?
Ef ég væri 3 metrum stærri myndi ég fara og taka í hann.
Hann veit nefnilega nákvæmlega hvað hann er að segja

Ég myndi aldrei leika í auglýsingu ef ég hefði ekki hugmynd um hvað ég væri að auglýsa eða hvort það væri eitthvað sannleikskorn í því

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 17:51
af zedro
Klemmi skrifaði:Ég myndi aldrei leika í auglýsingu ef ég hefði ekki hugmynd um hvað ég væri að auglýsa eða hvort það væri eitthvað sannleikskorn í því

Its all about the money!

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 18:25
af benson
vá, classic apple viðmót til neytenda frá þessum framkvæmdastjóra.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 18:36
af intenz
Flott hjá þér Hemmi, væri ég ekki í prófum hefði ég örugglega samið bréf.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 18:45
af Gúrú
zdndz skrifaði:EDIT: og þetta var framkvæmdastjóri epli.is sem svaraði!
Grínlaust undirritað 'Bjarni Ákason'?
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 22:02
af zdndz
Gúrú skrifaði:zdndz skrifaði:EDIT: og þetta var framkvæmdastjóri epli.is sem svaraði!
Grínlaust undirritað 'Bjarni Ákason'?
jább
Sæll -------,
Það sem við erum að vísa er það sem framleiðandinn segir, sjá :
http://www.apple.com/why-mac/better-os/#viruses" onclick="window.open(this.href);return false;
Appe fær ekki Pc vírusa, einföld staðreynd sem fer í taugarnar á sumum
Kær kveðja / Best regards,
Bjarni Ákason
Framkvæmdastjóri - CEO
Apple VAD á Íslandi
Epli.is - Skakkiturn ehf.
Þar sem ég sendi í gegnum síðuna þeirra þá er ég ekki með bréfið mitt orðrétt en ég svaraði og benti honum á að apple væru nú PC tölvur og það væri samt sem áður verið að blekkja á neytendum. Ég fékk þetta svar:
Sæll ------,
Við fáum um 5-7000 tölvur til bilanagreininga á ári, enginn þeirra hefur borið vírus.
Svo varla erum við óheiðarlegir ef við bendum á þá staðreynd.
Nær væri að setja svona tóbaksmiða á allar PC tölvur og vara fólk við mikilli vírusa hættu, þá fyrst væru menn heiðarlegir.
Kær kveðja / Best regards,
Bjarni Ákason
Framkvæmdastjóri - CEO
Apple VAD á Íslandi
Epli.is - Skakkiturn ehf.
Sími/Tel: +354 5121300
Persónulega finnst mér þetta mjög ófaglegt af framkvæmdastjóranum :/
EDIT: Og ég gleymi hérna síðasta póstinum
ég:
Samt sem áður er þetta einskonar blekking á áhorfendum því sama hvaða þið fáir margir tölvur í bilunargreiningu á ári þá er samt hægt að fá vírus. Hér er verið að nýta sér vanþekking almennings.
Hann:
Mér finnst það ekki rétt af þinni hálfu að bera uppá okkur að við séum að gera útá heimsku mannana,
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 22:03
af GuðjónR
Zedro skrifaði:Klemmi skrifaði:Ég myndi aldrei leika í auglýsingu ef ég hefði ekki hugmynd um hvað ég væri að auglýsa eða hvort það væri eitthvað sannleikskorn í því

Its all about the money!

Varst þú að versla í Bónus í dag?
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 22:38
af intenz
Ekki furða að þetta fyrirtæki sé alltaf að skipta um kennitölur... greinilega ekki miklar mannvitsbrekkur sem stýra þessu.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 23:02
af AntiTrust
Ég á ekki orð yfir svörum framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
.. og þó. Þessi svör einkennast af stærsta einkenninu sem almennir Mac notendur deila - fáviska, hroki og vankunnátta.
Mér er fjandans sama þótt að þær vélar sem hafa komið til hans í viðgerð hafi ekki borið vírus. Ég er búinn að vinna á óháðum verkstæðum í gegnum tíðina og ég hef þurft að vírushreinsa Makka, og ég þurfti ekki að fara í gegnum neinar þúsundir til að lenda í slíku.
Það ER óheiðarlegt að fullyrða í auglýsingum að Makkar fái ekki vírusa, þegar þeir gera það. Ef eini sölupunkturinn sem hann þekkir er það lítill að hann þarf að benda á galla hjá samkeppnisaðila er þessi maður ekki hæfur til að vera í þeirri stöðu sem gegnir.
Það er bara nákvæmlega rétt hjá þér að þeir geri út á vankunnáttu almennra notenda/neytenda.
Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin
Sent: Fös 10. Des 2010 23:11
af rapport
En það sem mér finnst án efa skammarlegast við þessa auglýsingu er að vera með Gunnar Nelson og fá svo ekki betri hugmyndir en að lata hann bara tala í myndavélina...
Hann hefði getað klofið svo sem eina Dell, barið í gegnum einhverja skjái, étið 5-6 lyklaborð og svo kæmi bara eitt orð "drasl" og svo í lokin er hann á leikjalandi í makkanum sínum.
Þannig auglýsing mundi lýsa makkapakkinu vel, þau vilja nota leikjaland vírusfree og hananú.
Meira að segja ömurlega jólatrésauglysing Símans er skemmtilegri.