andrig skrifaði:haha fékk bréf í dag um að hóta að loka internetinu mínu útaf erlendu downloadi. seinasta mánuði 220gb, það sem liðið er af þessum mánuði 80 gb. þetta segir mér bara eitt. HD myndir eru alltof stórar!
Satt en þegar maður byrjar á að horfa á í HD þá getur maður ekki svo auðveldlega farið aftur í DVD "ruslið"
andrig skrifaði:haha fékk bréf í dag um að hóta að loka internetinu mínu útaf erlendu downloadi. seinasta mánuði 220gb, það sem liðið er af þessum mánuði 80 gb. þetta segir mér bara eitt. HD myndir eru alltof stórar!
hef vitað af þessu síðan í fyrsta mánuði þegar þetta kom á.. það var febrúar man ekki hvaða ár.. hive auglýsti fyrir jólin og bæði síminn og vodafone komu með ótakmarkað niðurhal.
ég las mig í gegnum allt sem var á heimasíðu símans og rak nefið í ótakmarkað upp að 40gb á mánuði, eftir það geti þeir minnkað hraðann.
ég hef spilað þetta þannig, haldið mig við 40gb, skotið mér upp kannski einn mánuðinn ef ég hef verið gráðugur og slappað af undir 40gb þann næsta.
ég benti strax á þetta að mig minnir á huga, menn voru of blindir til að lesa yfir þetta, orðið ótakmarkað þýðir jú ótakmarkað, hinsvegar hef ég alltaf beðið eftir að þeir myndu minnka við mig hraðann með það í huga að fara og kvarta og heimta að ég greiði þá fyrir þá stærð tengingar þann mánuð sem hraðinn hefur verið takmakaður í.
hinsvegar veit ég að vodafone rekur skítafyrirtæki, þeir senda ekki bréf með einhverri aðvörun og segja að þú verðir að halda þig innann marka, nei, þeir sendu vinu mínum eftir fyrsta mánuðinn bréf sem hljóðaði þannig að ef hann héldi þessari misnotkun áframm myndu þeir loka á tenginguna hjá honum.. þetta var ekki viðvörun, þetta var hótun, hann sótti þennann mánuð 46gb á tengingu sem hann fékk og var honum tjáð að hann hefði ótakmarkað erlent niðurhal, það var ekki sagt við hann að það væri ótakmarkað upp í vissann gb fjölda.
þarna gerðu þeir það að verkum að hann fór að sækja á fullu á ótakmarkaðri tengingu sem hann fékk hjá vodafone og fulltrúinn þeirra sagði að það væri hvergi neinir hængir á þannig að þeir leiddu hann í þá gildu að sækja á fullu og senda honum síðan hótunarbréf.
svipað og ég ræki veitingarstað og væri með hlaðborð, 1000kall og þú mátt éta ótakmarkað, þegar þú kæmir með diskinn að borðinu í annað sinn myndi ég segja: ef þú hættir ekki þessari misnotkun hendi ég þér út.
síminn hefur aldrei sent mér hótunarbréf og fyrstu mánuðina var ég mjög grófur í niðurhali, þannig að ég hef haldið mig við þá því að ég veit að þeir eru ekki að hóta manni einhverju rugli, ég spurði strax þegar ég athugaði með þessa ótakmörkuðu tengingu hjá þeim og þeir sögðu að það væri þak, en það mætti hingvegar fara yfir það af og til og maður væri látinn í friði, en þessir vanhæfu sölumenn hjá vodafone hafa það ekki í sér að segja kúnnanum sannleikan.
svipað og ég ræki veitingarstað og væri með hlaðborð, 1000kall og þú mátt éta ótakmarkað, þegar þú kæmir með diskinn að borðinu í annað sinn myndi ég segja: ef þú hættir ekki þessari misnotkun hendi ég þér út.
Það eru reyndar dæmi um þetta í USA,
kæmi mér ekkert á óvart að það verði gert hérna líka miðað við hvað allir eru orðnir feitir og éta mikið
DVD rip eru yfirleitt bara myndin og minnkað niður í 700 MB, á meðan að DVD-R er bara image af DVD disknum
Reyndar segir "DVD Rip" manni ekki annað en það að myndin hafi verið tekin (sumsé "rippuð") af útgefnum DVD diski. Það er svo sama hvort þú geymir myndina á harða diskum í tölvunni þinni, þjappar niður í DVD-R, xvid eða 100MB .rm fæl, allt er þetta rippað af DVD. Grúppur nota ekki DVDRip merkið fyrir DVD-R því það er reglan fremur en undantekningin (R5, DVDSCR o.s.frv.)
En að efninu: Þegar ég fór vel yfir 100GB hjá símanum í hitteðfyrra þá sendu þeir mér kvörtunarbréf en ég er yfirleytt í 40-60GB pr. mánuð og hef ekki heyrt meira frá þeim.
Man að fólk var að fá kvartanir frá Vodaphone fyrir að fara yfir 50GB þannig að þeir virðast hafa hækkað mörkin hjá sér.
andrig skrifaði:haha fékk bréf í dag um að hóta að loka internetinu mínu útaf erlendu downloadi. seinasta mánuði 220gb, það sem liðið er af þessum mánuði 80 gb. þetta segir mér bara eitt. HD myndir eru alltof stórar!
holy crap.... þetta eru 35-40 HD myndir ?
jah.. þetta eru nokkrar myndir, Bandofbrothers serian og ein önnur þáttaröð