Síða 2 af 2

Sent: Mán 15. Jan 2007 20:21
af GuðjónR
Voffinn skrifaði:Það er dræmur áhugi hjá eigendum (eiganda?) vaktarinnar að koma þessu í verk. Slæmt, það þýðir bara að menn hætta að nenna að koma hingað.
Þá slökkvum við bara á þessu...skiptir okkur nákvæmlega engu máli.

Sent: Mán 15. Jan 2007 20:21
af Heliowin
hallihg skrifaði:Ég get ekki eytt neinu í Koníaksstofunni, ekki alveg að virka hjá mér. Þegar ég pæli í því þá sé ég að ég get ekki eytt neinu. Eins og ég hafi engin adminréttindi?
Did you see that! :o
Talandi um að umsjónarmenn myndu ekki misnota vald sitt :P

Sent: Mán 15. Jan 2007 21:07
af Birkir
Hann er „Ofur-Nörd“, just like you.. :D

Sent: Mán 15. Jan 2007 21:20
af Heliowin
Birkir skrifaði:Hann er „Ofur-Nörd“, just like you.. :D
Augljóslega. Ég var bara að commenta kaldhæðnina :)

Sent: Mán 15. Jan 2007 21:28
af Birkir
:oops:

Fer stundum á milli mála hvort maður er að lesa kaldhæðni eða ekki, þar sem maður getur víst ekki skynjað tóninn í ritmáli.. :P

Sent: Mið 25. Apr 2007 13:01
af Danni V8
Ég veit að ég er að vekja upp gamlan póst og biðst velvirðingar á því ef það fer fyrir brjóst einhverja.

En getur einhver sagt mér af hverju það er ekki búið að koma upp svona kerfi? Þannig að spamm botarnir geta ekki komist inn á þetta spjall og svona endurtekur sig:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=14077
linnHalss skrifaði:Camerom Diaz S&M Video
Vill koma með tillögu að tvennu, annarsvegar þetta klassíska stafarugl og hinsvegar eitthvað í líkingu við það sem ég sá á BMW Krafti:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/profile ... greed=true

"Leynitalan: *
Sláðu hér inn töluna fjörutíuogtveir í tölustöfum"
Og svo þarf að skrifa leynitöluna í reitinn til að halda áfram. Þá er bókað mál að svona spammbotar komast ekki inn aftur.

Sent: Mið 25. Apr 2007 16:25
af beatmaster
Getum við ekki lagað þetta sem fyrst, það er alveg heavy spamárásir í gangi þessa stundina :evil:

Sent: Lau 28. Apr 2007 23:39
af Taxi
Arrrrgg,ég er alveg að missa mig yfir þessu spam rugli. :evil:

Ég er á nokkrum spjallþráðum hérna á Íslandi t.d. Istorrent, Kvartmíluklúbbnum,LÍA,4X4,L2C,BMW kraftur,stjarna.is og fleiri vefum. :nerd_been_up_allnight Ég sé ekkert spam á þessum spjallsvæðum,sem fær mig til að halda að það sé til lausn við þessum bölvuðum spam-árasum. :roll:

Eða eru stjórnendur á þessum vefum bara fljótir að fjarlægja spam. :?:

P.S.
Ég verð að venja mig af því,að smella á ALLA ólesna þræði. ](*,)

Sent: Sun 29. Apr 2007 01:04
af Amything
Það er bölvað vesen að setja inn þessar spamvarnir með custom skinni. En allavega þá er auðvelt að uppfæra spjallið í nýjustu útgáfu, og með því banna skráningar með .info og .ru mail. Þá er mest af spaminu úr sögunni samkv minni reynslu.

Sent: Sun 29. Apr 2007 01:30
af Heliowin
Ég er inn á nokkrum stórum erlendum og innlendum spjallborðum og hef aldrei orðið var við spam. Eitt íslenskt er að nota IP.Board og er með fleiri þúsundir skráðra notenda og fáeina stjórnendur og ég sé aldrei neitt spam þar.

Sent: Mán 14. Maí 2007 02:05
af HemmiR
Já og about that ? buið að vera bots að spamma á fullu i dag og i gær :( :(

Sent: Mán 14. Maí 2007 06:44
af gnarr
haha :) þessi hitti meir að segja á réttan þráð :lol:


er það bara ég, eða hljómar "Mel Gibson spanking" svolítið spennandi :roll: