Síða 10 af 83

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 10. Júl 2011 19:50
af FuriousJoe
daanielin skrifaði:þegar ég hætti var ég með 16Mb tengingu en fékk oftast ekki yfir 1.4Mb/s.

16Mb = 2MB, ef þú ert að ná 1.4MB þá er það bara mjög fínt fyrir 16 Mb tengingu.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 10. Júl 2011 20:14
af ZiRiuS
daanielin skrifaði:Annað vandamálið var að netið datt út í tíma og ótíma. Ég ætla að skjóta á sirka 3-6 sinnum á dag í ca. 30sek - 2mín, engin skelfilegur tími en skemmdi alveg fyrir manni það að spila leiki á netinu, endurræsa routerinn breytti engu. Snilld!
Ég er nú reyndar svolítið mikið að lenda í þessu hjá Hringdu, þó aðallega bara á nóttinni eða morgnanna, stundum dettur það svo alveg út og ég laga það ekki nema að restarta routernum.

Einhverjir Hringdu.is staffarar hérna sem gætu vitað afhverju?

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 07:27
af ZiRiuS
Jæja nú er þetta liggur við orðið daglegt vandamál að netið detti út og það lagast ekki nema að restarta routernum. Ég er með Zyxel routerinn, er það kannski vandamálið?

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 11:36
af Tiger
ZiRiuS skrifaði:Jæja nú er þetta liggur við orðið daglegt vandamál að netið detti út og það lagast ekki nema að restarta routernum. Ég er með Zyxel routerinn, er það kannski vandamálið?
Fyrir mig lagaðist það lítið, versnaði ef eitthvað var. Prufaði 2 eintök af þessum Edimax router en ekkert gekk. Þráðlausa náði varla út fyrir herbergið sem hann var í t.d. og þú komst á netið í þráðlausa í 2. hvert sinn á því. Ég var búinn að færa iphone-inn minn yfir á 3g alfarið því það var betra að hafa það traust og semi hægt en wifi stundum og stundum ekki.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:11
af ZiRiuS
Snuddi skrifaði:

Já, ég nota samt lan kapal bara og er samt að detta út, þeas ekkert net virkar.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:22
af ManiO
Eruði á ADSL eða ljósi?

Er sjálfur á ljósi hjá þeim og það er rock solid. Reyndar með slökkt á þráðlausa.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:03
af worghal
gæti vandamálið ekki bara verið ömurlegur router ?
ég var að lenda í því að netið hjá mér (vodafone) var alltaf að detta út og ég þurfti að restarta routernum, en svo gafst ég og pabbi minn allveg upp og ákváðum að fjárfesta í almennilegum router en ekki eitthvað skaffað af símafyrirtækinu.

við tókum http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=24258" onclick="window.open(this.href);return false; og það hefur ekki verið vandamál síðan.

þetta var fyrir nánast ári síðan held ég.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:05
af tdog
Ef þið hafið tök á því, prufiði að setja routerinn upp alveg í inntakinu og athugið hvort hann dettur út þar. Fjarskiptafyrirtæki ábyrgjast þjónustu í inntaki, ekki innanhúss. Ef þú dettur út í inntakinu er hægt að láta þjónustufyrirtækið skoða málið betur. Ef ekki þarf bara að skoða innanhúslagnirnar hjá ykkur.

Nokkur tips varðandi innanhúslagnir.
[*]Splitter breytir ÖLLU, til hins betra. [/*]
[*]Bjölluvír er mögulega lélegasti flutningsmáti fyrir símamerki EVER[/*]
[*]Það kostar ekki ýkja mikið að fá fagmann og draga catstreng í dósirnar, ca 90kr/m af efni og 5000 án VSK á tímann.[/*]
[*]Best er að splitterinn sé í inntakinu sjálfu.[/*]
[*]Öryggiskerfi eiga það til að vera leiðinleg við DSL merki, auðkenning dettur stundum út ef að kerfið er ekki á splitternum sjálfum.[/*]
[*]Löng flöt símasnúra er ávísun á vandræði[/*]
[*]Snúinn kapall er alltaf betri en ósnúinn.[/*]
[*]Járnabinding í steypuveggjum drepur WiFi[/*]
[*]WiFi notar sömu tíðnir og þráðlausir símar, þessvegna er gott að prufa að breyta til um Kanal á þráðlausa merkinu og athuga hvort það breytir einhverju. [/*]
[*]Örbylgjuofnar og nálægur WiFi punktur eiga ekki vel saman[/*]
[*]Flúrpípur og netkaplar eru óvinir[/*]

Held ég muni bara ekki meira í bili...

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:38
af ZiRiuS
ManiO skrifaði:Eruði á ADSL eða ljósi?

Er sjálfur á ljósi hjá þeim og það er rock solid. Reyndar með slökkt á þráðlausa.
Er á ADSL.
tdog skrifaði:Nokkur tips varðandi innanhúslagnir.
[*]Splitter breytir ÖLLU, til hins betra. [/*]
[*]Bjölluvír er mögulega lélegasti flutningsmáti fyrir símamerki EVER[/*]
Ertu að tala um símalínusplitter? En hvað ef maður er ekki með heimasíma?

Hvernig veit maður hvort maður sé með bjölluvír eða ekki? Ég hef allavega ekki hugmynd þar sem ég bý á 4. hæð í fjölbýli.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:46
af tdog
Þú getur opnað dósina og skoðað... Bjölluvír er frekar þunnur vír með frekar þykkri einangrun og hann er frekar lítið snúinn.
Mynd
Já ég er að meina "símalínusplitter", svona græju sem á stendur Line, Phone og Modem( eða Line, Phone eða DSL/ADSL ). Ef þú ert með ADSL án heimasíma skiptir það engu máli.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 20:32
af Tiger
worghal skrifaði:gæti vandamálið ekki bara verið ömurlegur router ?
ég var að lenda í því að netið hjá mér (vodafone) var alltaf að detta út og ég þurfti að restarta routernum, en svo gafst ég og pabbi minn allveg upp og ákváðum að fjárfesta í almennilegum router en ekki eitthvað skaffað af símafyrirtækinu.

við tókum http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=24258" onclick="window.open(this.href);return false; og það hefur ekki verið vandamál síðan.

þetta var fyrir nánast ári síðan held ég.
Getur maður notað þessa routera hjá hvaða símafyrirtæki sem er? Eru engar forstillingar sem símafyrirtækin eru búin að setja upp svo maður verði að nota þeirra router?

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 12. Júl 2011 21:21
af tdog
Það er hægt að nota þennan router við Telsey box Gagnaveitunnar, routera þarf annars að stilla sérstaklega eftir þeim sýndarrásum sem viðkomandi fjarskiptafyrirtæki notar fyrir sína þjónustu.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 17. Júl 2011 23:25
af zetor
sælir

Hef verið hjá Hringdu frá upphafi og hefur gengið á ýmsu. Ég er gríðarlega sáttur með verðin hjá þeim. Torrentin rúlla í gegn á flottum hraða. Er með sjónvarp Símans í gegnum nettenginguna en svo virðist að sjónvarpið hægi á tengingunni alveg um helming.... :cry: hafi þið lent í því? Það virðist líka vera töluverð sveifla á hraða tengingarinnar.

kv
zetor

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 17. Júl 2011 23:36
af FuriousJoe
zetor skrifaði:sælir

Hef verið hjá Hringdu frá upphafi og hefur gengið á ýmsu. Ég er gríðarlega sáttur með verðin hjá þeim. Torrentin rúlla í gegn á flottum hraða. Er með sjónvarp Símans í gegnum nettenginguna en svo virðist að sjónvarpið hægi á tengingunni alveg um helming.... :cry: hafi þið lent í því? Það virðist líka vera töluverð sveifla á hraða tengingarinnar.

kv
zetor
Sjónvarp er að taka minnir mig 6Mb af tengingunni, ef þú ert með 12Mb tengingu, og kveikt á TV þá ertu bara að fá 6Mb í tölvuna. (HD Afruglarar taka minnir mig 8Mb)

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 17. Júl 2011 23:49
af depill
ZiRiuS skrifaði:Jæja nú er þetta liggur við orðið daglegt vandamál að netið detti út og það lagast ekki nema að restarta routernum. Ég er með Zyxel routerinn, er það kannski vandamálið?
Sæll

Komdu hjá okkur og sótti Edimax router. Ath þeir sem eru með Edimax router frá okkur ( þetta er já byrjunarvandamál ) og eru með ekki með full N netkort í tölvunni ykkar eða búið í fjölbýli verðið að fara inná hann ( 192.168.2.1 ) fara í wireless settings á forsíðunni og taka Bandwidth úr 40m í 20m annars getur wifið orðið slappt.
pattzi skrifaði:þetta er sjónvarp í gegnum vodafone er það ekki ef svo er þegar við vorum með adsl virkaði það hreinlega ekki fórum svo í ljósleiðara og þá bara hætti það að frosna er samt ekki hjá hringdu ...
Hann er reyndar með Sjónvarp Símans. Ég hef orðið eithvað var við þetta á einhverjum tengingum, samt ekki jafn illa og hjá Snudda ( ég er sjálfur með 2x Sjónvarp Símans eins og er ). Annars bara vegna ósamstarfsvilja hjá Símanum afhendum við eingöngu Sjónvarp Vodafone með okkar tengingum. Ég hef séð smá truflanir hjá þeim á vissum aðgangshringjum hjá GR en ekki á ADSLinu.
worghal skrifaði:gæti vandamálið ekki bara verið ömurlegur router ?
ég var að lenda í því að netið hjá mér (vodafone) var alltaf að detta út og ég þurfti að restarta routernum, en svo gafst ég og pabbi minn allveg upp og ákváðum að fjárfesta í almennilegum router en ekki eitthvað skaffað af símafyrirtækinu.

við tókum http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=24258" onclick="window.open(this.href);return false; og það hefur ekki verið vandamál síðan.

þetta var fyrir nánast ári síðan held ég.

Jú og ég bendi á það hér. Edimax AR-7284WnA routerarnir eru samt að koma mjög vel út hjá okkur. Ég skal samt vera fyrstur til að játa að við höfum lent í vissu hasslei með Sjónvarp Símans og ekki fundið fyrir miklum samstarfs vilja í því að koma því í gang ( baiscly verslið við dótturfyrirtæki okkar eða sleppið þessu ). Allavega í dag afhendum við eingöngu Sjónvarp Vodafone. Allir þeir sem vilja geta farið yfir á línu VF bara með því að senda mér PM, aðrir verða hringt í.

zetor skrifaði:sælir

Hef verið hjá Hringdu frá upphafi og hefur gengið á ýmsu. Ég er gríðarlega sáttur með verðin hjá þeim. Torrentin rúlla í gegn á flottum hraða. Er með sjónvarp Símans í gegnum nettenginguna en svo virðist að sjónvarpið hægi á tengingunni alveg um helming.... :cry: hafi þið lent í því? Það virðist líka vera töluverð sveifla á hraða tengingarinnar.

kv
zetor
Sendu mér endilega símanúmerið þitt í PM. Gæti verið að línan þín gæti höndlað meiri hraða og ef þú ert tilbúinn að fá þér Sjónvarp Vodafone í stað Sjónvarp Símans þá ætti ekki að veran eitt mál að þú fáir bandvíddina sem þig vantar. En sendu mér fyrst símanúmerið þitt og ég skal athuga þetta fyrir þig, þetta er frekar tilgangslaus pæling ef línan þín höndlar ekki meira :)

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 02. Ágú 2011 15:39
af AntiTrust
Hmm.

Var að fá Ljósleiðarabrochure heim frá ykkur. Get ég reiknað með því að það þýði að það sé komið ljós í götuna mína?

Annað - Verðin í bæklingnum eru 500kr lægri en á heimasíðunni ykkar, að undanskildri stærstu tengingunni. Prentvilla eða breyttust verðin frá því að bæklingurinn var prentaður út?

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 02. Ágú 2011 16:09
af Tesy
AntiTrust skrifaði:Hmm.

Var að fá Ljósleiðarabrochure heim frá ykkur. Get ég reiknað með því að það þýði að það sé komið ljós í götuna mína?

Annað - Verðin í bæklingnum eru 500kr lægri en á heimasíðunni ykkar, að undanskildri stærstu tengingunni. Prentvilla eða breyttust verðin frá því að bæklingurinn var prentaður út?
Ertu viss um að þú varst ekki að skoða ADSL? Því að ADSL kostar 500kr meira.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 02. Ágú 2011 16:24
af AntiTrust
Tesy skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Hmm.

Var að fá Ljósleiðarabrochure heim frá ykkur. Get ég reiknað með því að það þýði að það sé komið ljós í götuna mína?

Annað - Verðin í bæklingnum eru 500kr lægri en á heimasíðunni ykkar, að undanskildri stærstu tengingunni. Prentvilla eða breyttust verðin frá því að bæklingurinn var prentaður út?
Ertu viss um að þú varst ekki að skoða ADSL? Því að ADSL kostar 500kr meira.
Neinei, ég var að skoða ljósleiðarann.

Góði kostar skv. blaði 1.995 - en 2.495 á heimasíðunni. Mildi kostar 2.995 á blaði en 3.495 á heimasíðunni.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 03. Ágú 2011 14:03
af kazzi
Snuddi skrifaði:Ég færði mig yfir til Depils og hringdu fyrir rúmum mánuði síðan og gæti ekki verið sáttari. Ég þurfti að restarta routernum frá símanum að meðaltali 4 sinnum í viku og stundum 4 sinnum á kvöldi. En á þessum rúma mánuði hjá hringdu hef ég ekki þurft neina endurræsingu og sjónvarps símans og netið hefur ekki dottið út í eina mínútu. Hraðin og þjónustan tip top.
Bíddu !!! og hvað breyttist sé í seinni póstum að þú fórst aftur yfir í símann ekki rétt ?
eftir allan þennan lestur er ég nú skíthræddur að flytja mig yfir til Hringdu frá Voda .vil frekar hafa solid tengingu og borga aðeins meira heldur enn að lenda í veseni sem sumir hafa greininlega verið að lenda í.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 03. Ágú 2011 14:55
af Tiger
kazzi skrifaði:

Málið var að líklega get ég sett skuldina á þennan Edimax router sem ég fékk frá þeim sem virkaði ekki fyrir mig eins og skyldi (margir aðrir eru ánægðir með hann samt). Var með Zyxel router frá þeim fyrst og það var bara fínt eins og stendur þarna að ofan, líklega hefði ég bara átt að fara í hann eða kaupa mér sjálfur HighEnd router (vissi bara ekki hvað ég hefði átt að kaupa). Er reyndar enn hjá Hringdu þar sem Síminn "gleymdi" að færa mig ..... :) Þanngi að spurning hvort ég kaup mér bara ekki góðan router sjálfur en einhver net snillingur hérna getur bent mér á þannig og ég haldi mig hjá þeim.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 03. Ágú 2011 17:16
af start
Snuddi skrifaði: Málið var að líklega get ég sett skuldina á þennan Edimax router sem ég fékk frá þeim sem virkaði ekki fyrir mig eins og skyldi (margir aðrir eru ánægðir með hann samt). Var með Zyxel router frá þeim fyrst og það var bara fínt eins og stendur þarna að ofan, líklega hefði ég bara átt að fara í hann eða kaupa mér sjálfur HighEnd router (vissi bara ekki hvað ég hefði átt að kaupa). Er reyndar enn hjá Hringdu þar sem Síminn "gleymdi" að færa mig ..... :) Þanngi að spurning hvort ég kaup mér bara ekki góðan router sjálfur en einhver net snillingur hérna getur bent mér á þannig og ég haldi mig hjá þeim.
Komdu og prófaðu TP-Link Ultimate http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3167" onclick="window.open(this.href);return false;
mátt skila og fá endurgreitt ef þú ert ekki sáttur. Er með svona sjálfur heima og gæti ekki verið sáttari við ljósið.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 03. Ágú 2011 18:25
af gardar
start skrifaði:

:wtf
Það er aldeilis þjónusta :happy

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 04. Ágú 2011 13:29

Takk fyrir það, en ég er ekki með ljósleiðara (bý í fornaldar Hafnarfirði) og er því bara með ADSL...... virkar þetta þá nokkuð?

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 19. Ágú 2011 21:54
af Oak
er búið að breyta eitthvað notkun.hringdu.is ?
Mánuður 8: 10 GB

er þetta það sem ég er búinn að DL eða það sem ég á eftir?

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 21. Ágú 2011 21:02
af Oak
veit enginn neitt um þetta?