Síða 9 af 11

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 25. Okt 2011 19:10
af GuðjónR
Glazier skrifaði:Nei andskotinn.. nú var ég að sjá enn eina auglýsinguna frá þeim svipuð hinum og ekki var hún nú skárri.

Einhver kona sem segir nokkurnvegin þetta: "Er eiginlega búin að gleyma hvernig er að vera stressuð og veik, nú líður mér alltaf vel og aldrei neitt að.. alveg eins og apple tölva"
hehehe snilld...

Auðvitað vitum við að apple tölvur bila aldrei, það þarf ekkert að eyða peningum í að auglýsa það.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 28. Okt 2011 15:22
af braudrist
Fyrst var ég töff, horfði á fótboltann og drakk bjór og svona en nú er ég kominn úr skápnum og klæði mig í pils -- alveg eins og þeir sem eiga Apple tölvu :D

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 28. Okt 2011 15:55
af GuðjónR
braudrist skrifaði:...nú er ég kominn úr skápnum og klæði mig í pils
Til hamingju með það, í tilefni þess gaf ég þér nýjan titil.
Njóttu vel.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 28. Okt 2011 15:58
af Hjaltiatla
GuðjónR Skrifaði:
Til hamingju með það, í tilefni þess gaf ég þér nýjan titil.
Njóttu vel.
Haha tekinn :megasmile

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 28. Okt 2011 16:04
af Hjaltiatla

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 12:47
af beggi90
http://mbl.is/frettir/innlent/2011/11/0 ... neytendur/" onclick="window.open(this.href);return false; :happy

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 12:53
af Haxdal
=D> =D> =D>

Var einmitt að bíða eftir niðurstöðu Neytendastofu með þessar nýju auglýsingar.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 16:56
af JohnnyX
Loksins eitthvað gert í þessu!

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 17:07
af Fumbler
intenz þann Des 09, 2010 23:47 skrifaði:Segið mér að þeir séu að grínast...
Fá Gunnar Nelson til að segja "Ekkert rugl, engir vírusar - Alveg eins og Apple tölvur"
Góð markaðsdeild hjá þeim ](*,)
jæja, þetta gekk bara hratt, ekki einu sinni eitt ár.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 18:00
af Hargo
Þeir eru enn að sýna þessar auglýsingar, bara klippa út endann eins og hjá Gunnari Nelson.

"Ekkert rugl og engir vírusar...*CUT*...."

Í lokin á að vera "alveg eins og Apple tölva" eða eitthvað álíka.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 19:14
af FuriousJoe
Enda allt fávitar þarna.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 22:13
af intenz
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/ ... neytendur/" onclick="window.open(this.href);return false;

hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaha

gott á þá

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 22:40
af Hargo
Skilaboðin hafa samt skilað sér til hins almenna notanda sem veit ekki betur. Þessar auglýsingar eru líka enn í loftinu, bara búið að cutta í endann þegar fólk segir "eins og apple tölva" varðandi vírusana.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 23:10
af birgirdavid
djööö ég sem var að kaupa maccara þarna hjá þeim

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 23:16
af beatmaster
Ég fór og keypti mér Macca af epli.is fyrir nokkrum dögum síðan, það er núna kominn vírus í hann, má ég kæra epli.is og heimta skaðabætur?

*þetta er ímyndað dæmi

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Fös 04. Nóv 2011 23:29
af chaplin
beatmaster skrifaði:Ég fór og keypti mér Macca af epli.is fyrir nokkrum dögum síðan, það er núna kominn vírus í hann, má ég kæra epli.is og heimta skaðabætur?

*þetta er ímyndað dæmi
Þegar ég spurði NS á sýnum tím út í þetta mál, þá voru þau mjög spennt fyrir því hvort ég hafi keypt mér tölvu hjá Epli.is og hvort ég hafi fengið vírus, svo já alveg örugglega. Þú værir amk. með case.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 20:23
af Hargo
Nennti ekki að búa til nýjan þráð. Svo virðist sem að spjaldtölva sé jólagjöfin í ár (nánar tiltekið iPad þar sem bara er mynd af þeirri græju).

http://visir.is/jolagjofin-i-ar-spjaldt ... 1111129625

Hmmmm....pínu óheppileg tengsl þarna á ferð.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 21:09
af GuðjónR
Árið 2008 var Íslensk hönnun valin jólagjöf ársins en ein í dómnefndinni var framkvæmdastjóri hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Af hverju þarf allt að vera svona ROTIÐ hérna á klakanum :mad

Núna er það spjaldtölva, nánar tiltekið iPad og konan framkvæmdastjóra epli.is er í dómnefnd.
Er þetta í lagi? Er orðið SIÐLEYSI að öðlast alveg nýja merkingu?? :mad

Við komum alltaf til með að hjakka í sama skítafarinu og jafnvel upplifa hrun á 4-7 ára fresti forever ef þessi hugsunarháttur breytist ekki.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 21:10
af worghal
nú vill ég spyrja, af hverju má þetta fólk bara ákveða hvað á að vera jólagjöfin í ár, og af hverju ætti einhver að taka mark á þeim ?
og hver í andskotanum setur þessa nefnd saman ?

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 21:15
af Tiger
Alveg merkilega rotið samfélag!

Eins hrifinn og ég er af Apple vörum, þá hefur epli.is/skakkiturn aldrei fengið mína blessun né viðskipti og munu aldrei fá!

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 21:24
af Hargo
Síðasta málsgreinin vakti athygli mína í fréttinni...
visir.is skrifaði:Hann segir löggilt smekkfólk, tískulöggur og neytendafrömuði vera í dómnefnd og að mörgum hugmyndum af jólagjöf ársins hefði verið kastað fram en að spjaldtalvan hefði verið lokaniðurstaðan.
Hvað er löggilt smekkfólk? Er það einhver lögbundinn starfstitill? :lol:

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 21:46
af urban
Hargo skrifaði:Síðasta málsgreinin vakti athygli mína í fréttinni...
visir.is skrifaði:Hann segir löggilt smekkfólk, tískulöggur og neytendafrömuði vera í dómnefnd og að mörgum hugmyndum af jólagjöf ársins hefði verið kastað fram en að spjaldtalvan hefði verið lokaniðurstaðan.
Hvað er löggilt smekkfólk? Er það einhver lögbundinn starfstitill? :lol:

ég var einmitt að spá í þessu.
þar sem að ég er nú með löggildingu í ákveðnri starfsgrein og þurfti töluvert námskeið til þess, þá er ég að spá í því hvar maður fær löggildingu í því að vera smekkmaður

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 22:02
af Daz
Jólagjöfin í ár er spjaldtölva.
Meðalmaðurinn eyðir 38 þúsund krónum í jólagjafir (samtals).
Jólagjöfin í ár er hræbilleg kínversk eftirlíking af ódýrri android spjaldtölvu.

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 22:05
af Hargo
Loggiltir smeksmenn eyða meira en 38þús krónum í eina jólagjöf, það er á hreinu...

Re: Nýja epli.is sjónvarpsauglýsingin

Sent: Þri 22. Nóv 2011 22:21
af intenz
Eins og fyrr segir er það svo spjaldtölvan sem er jólagjöf ársins þessi jólin og getur það komið sér ágætlega fyrir aðra konu úr dómnefndinni en hún er sambýliskona eiganda og framkvæmdastjóra Epli.is sem er umboðsaðili á Íslandi og eins og sést í skýrslu rannsóknarsetursins er einungis mynd af einni týpu af spjaldtölvu - Ipad spjaldtölvu Apple
Sorglegt, virkilega sorglegt. :dissed