Síða 8 af 13
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Sun 23. Nóv 2014 22:25
af Bjosep
Klárlega sigurvegari, má samt vera örlítið mýkra í bleiku.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Sun 23. Nóv 2014 22:31
af Glazier
Ég segi við gerum uppboð úr þessu lita vali.. sá sem býður hæst fær að velja lit á vaktina í viku/mánuð whatever, ég skal allavega bjóða MJÖG hátt til að sleppa við þennan bleika lit !
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Mán 24. Nóv 2014 18:18
af Danni V8
Við erum samt að tala um að það eru ekki nema 10 dagar síðan þetta byrjaði og það er búið að safna rétt tæplega 425þús kr. Finnst það nokkuð magnað fyrir lítið samfélag með ekkert nema spjallborð
Er nokkuð viss um að eftir mánaðarmót þegar allir fá desemberuppbót og svona að þá nái þetta að skríða uppí 100%
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Mán 24. Nóv 2014 18:56
af Orri
Danni V8 skrifaði:með ekkert nema spjallborð
Ertu ekki að gleyma einhverju?
*hóst*Verðvaktin*hóst*
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Mán 24. Nóv 2014 19:15
af Danni V8
Orri skrifaði:Danni V8 skrifaði:með ekkert nema spjallborð
Ertu ekki að gleyma einhverju?
*hóst*Verðvaktin*hóst*
Ég er að meina þar sem fólk er að tjá sig. Það er Facebook grúppa líka en hún er svo inactive að það koma að meðaltali 2 póstar á mánuði þangað inn og í langflestum tilfella er það til að furða sig á því að spjallið er niðri.
Ekkert að því, forumið er greinilega nóg.
Ooog síðan var bara auglýst eftir aðstoð hér á foruminu en ekki á Verðvaktarsíðunni sjálfri.
Aka. hættur útúrsnúningum, you get my point.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Mán 24. Nóv 2014 19:25
af kiddi
Já þetta er alveg æðislegur árangur, fram úr björtustu vonum mínum og ég leyfi mér að fullyrða að þetta fór langt fram úr björtustu vonum Guðjóns líka.
En betur má ef duga skal
Nú er þetta svo langt komið og svo lítið eftir að við hljótum að geta púllað þetta! Áfram vaktin.is! Vona að þeir sem sögðust geta hjálpað um mánaðarmótin muni eftir því, og sjálfur ætla ég að athuga hvort ég geti grafið upp fleiri hluti til að selja, vefnum til styrktar.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Þri 25. Nóv 2014 11:18
af GuðjónR
Sammála kidda, þetta hefur gengið framar björtustu vonum.
Auðvitað væri gaman að komast alla leið en þó það takist ekki þá er það sem komið er ótrúlegur léttir.
Ég get eiginlega ekki lýst þakklæti mínu.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Þri 25. Nóv 2014 11:24
af suxxass
Legg inn 1. des!
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Þri 25. Nóv 2014 12:13
af GuðjónR
suxxass skrifaði:Legg inn 1. des!
Takk fyrir það!
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Mið 26. Nóv 2014 22:41
af SkariÓ
Hver er staðan??? 50%
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Mið 26. Nóv 2014 23:11
af GuðjónR
SkariÓ skrifaði:Hver er staðan??? 50%
61% !!!
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Mið 26. Nóv 2014 23:22
af worghal
er með reminder fyrir næsta mánudag, vonandi fer þetta yfir 110% þá
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fim 27. Nóv 2014 12:15
af GuðjónR
worghal skrifaði:er með reminder fyrir næsta mánudag, vonandi fer þetta yfir 110% þá
Góður! ég myndi ekki vilja fara yfir 100%, myndi stoppa þetta áður. Það yrði svo flókið ferli að endurgreiða mismuninn.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fim 27. Nóv 2014 17:34
af kiddi
GuðjónR skrifaði:Góður! ég myndi ekki vilja fara yfir 100%, myndi stoppa þetta áður. Það yrði svo flókið ferli að endurgreiða mismuninn.
Guðjón, ég held að þínir menn (og konur) myndu ekki taka það í mál að þú færir að endurgreiða eitt né neitt, heldur myndi fólk sennilega ætlast til þess að þú keyptir þér eitthvað fallegt, eitthvað eins og t.d. PC tölvu.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fim 27. Nóv 2014 18:48
af Sallarólegur
GuðjónR skrifaði:worghal skrifaði:er með reminder fyrir næsta mánudag, vonandi fer þetta yfir 110% þá
Góður! ég myndi ekki vilja fara yfir 100%, myndi stoppa þetta áður. Það yrði svo flókið ferli að endurgreiða mismuninn.
Það er samt ekki flókið að gefa pening til góðgerðamála
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fim 27. Nóv 2014 19:58
af GuðjónR
kiddi skrifaði:GuðjónR skrifaði:Góður! ég myndi ekki vilja fara yfir 100%, myndi stoppa þetta áður. Það yrði svo flókið ferli að endurgreiða mismuninn.
Guðjón, ég held að þínir menn (og konur) myndu ekki taka það í mál að þú færir að endurgreiða eitt né neitt, heldur myndi fólk sennilega ætlast til þess að þú keyptir þér eitthvað fallegt, eitthvað eins og t.d. PC tölvu.
hehehe góður!
Ef ég ætti ekki þessa geggjuðu 7-8 ára HP fartölvu þá myndi ég dúndra á PC söfnun!!
p.s. kiddi ... farðu nú að setja mont-setupin þín í undirskrift!
Sallarólegur skrifaði:Það er samt ekki flókið að gefa pening til góðgerðamála
Einmitt, ef svo ólíklega vildi til að söfnunin færi "yfir" takmarkið þá yrði það skoðað í fullu samráði við styrkjendur.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 17:04
af vesi
Bump-um þetta upp.
Payday+des uppbót á mán, engin afsökun að klára þetta ekki!!!
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 17:56
af lukkuláki
Veit ekki hvernig þetta er í útlöndum en Íslenska dómskerfið er alveg með ólíkindum óréttlátt á svo marga vegu.
Að það skuli geta gerst að maður geri dómssátt og sá sem gerir sáttina á svo ekki fyrir henni það finnst mér að eigi alls ekki að lenda á þeim sem var allan tímann að verja sig fyrir dómi.
Við konan höfum verið ákærð við unnum málið bæði í héraðsdómi og hæstarétti en við þurftum samt að borga okkar lögmanni 450.000
Það var sko farið í mál við okkur, við vorum að verjast mér hefur alltaf fundist þetta fáránlegt.
Ég legg að sjálfsögðu smá í púkkið takk fyrir mig.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 18:06
af vesi
lukkuláki skrifaði:Veit ekki hvernig þetta er í útlöndum en Íslenska dómskerfið er alveg með ólíkindum óréttlátt á svo marga vegu.

Dómskerfið okkar er ekki hannað til að vernda hinn einstaka meðal "Jón". Því miður.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 20:22
af hagur
Hey, betra seint en aldrei, right?
Var að henda inná þig 5 kalli ....
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 20:31
af flottur
Búnað millifæra inn á þig.....þarft ekki að endurgreiða mér aftur ef þú færð eitthvað til baka frá þessum gaur.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 20:42
af GuðjónR
lukkuláki skrifaði:Veit ekki hvernig þetta er í útlöndum en Íslenska dómskerfið er alveg með ólíkindum óréttlátt á svo marga vegu.
Að það skuli geta gerst að maður geri dómssátt og sá sem gerir sáttina á svo ekki fyrir henni það finnst mér að eigi alls ekki að lenda á þeim sem var allan tímann að verja sig fyrir dómi.
Við konan höfum verið ákærð við unnum málið bæði í héraðsdómi og hæstarétti en við þurftum samt að borga okkar lögmanni 450.000
Það var sko farið í mál við okkur, við vorum að verjast mér hefur alltaf fundist þetta fáránlegt.
Ég legg að sjálfsögðu smá í púkkið takk fyrir mig.
Innilegar þakkir!
Þetta kerfi er gjörsamlega út í hött, ríkið ætti að taka að sér að greiða þetta og setja svo kröfu á þann sem tapar.
hagur skrifaði:Hey, betra seint en aldrei, right?
Var að henda inná þig 5 kalli ....
Jú, það er aldrei of seint!
Innilegar þakkir
flottur skrifaði:Búnað millifæra inn á þig.....þarft ekki að endurgreiða mér aftur ef þú færð eitthvað til baka frá þessum gaur.
Nickið hæfir þér vel!
Innilegar þakkir fyrir stuðninginn!!
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 21:07
af Hjaltiatla
Takk fyrir að halda spjall.vaktin.is síðunni ennþá opinni , var að leggja inná þig
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 22:12
af daremo
Hjaltiatla skrifaði:Takk fyrir að halda spjall.vaktin.is síðunni ennþá opinni
Þetta spjall er sennilega eina vefsíðan, fyrir utan google.com, sem ég hef notað reglulega í meira en 10 ár.
Það er nokkuð merkilegt finnst mér.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Sent: Fös 28. Nóv 2014 22:55
af flottur
daremo skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:Takk fyrir að halda spjall.vaktin.is síðunni ennþá opinni
Þetta spjall er sennilega eina vefsíðan, fyrir utan google.com, sem ég hef notað reglulega í meira en 10 ár.
Það er nokkuð merkilegt finnst mér.
Mikið djöfull er ég sammála þér, ég virðist ekki geta hangið á neinum spjalborðum nema þessu alveg frá því að ég byrjaði að kynnast spjallborðum.