Síða 59 af 83

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 00:31
af Viggi
Svona er ljósnettengingin hjá mér núna

Mynd

Þetta er alveg hörmulegur hraði. Búin að vera fín tenging hjá þeim þangað til í þessari viku þá byrjar erlenda tengingin að skíta á sig..

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 03:09
af Runar
Vá, þetta er hryllingur, að vera að fá svona hraða þegar maður er með 100mb ljósleiðara.

Mynd

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 15:39
af Sonatorrek
Svarið sem ég fékk er að það er basically verið að DDoS-a útlandagáttina, það er verið að flooda gáttina reglulega sem endar í lélegum hraða út og þeir eru að vinna í því að laga það. Hef ekkert lent í veseni með hraðann innanlands.

Væri fínt að fá meira official svar hérna inn.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 17:10
af hallihg
Sonatorrek skrifaði:Svarið sem ég fékk er að það er basically verið að DDoS-a útlandagáttina, það er verið að flooda gáttina reglulega sem endar í lélegum hraða út og þeir eru að vinna í því að laga það. Hef ekkert lent í veseni með hraðann innanlands.

Væri fínt að fá meira official svar hérna inn.
Mjög áhugavert, það myndi skýra af hverju þessi ömurlegri hraði kemur af og til í ljósi þess að fyrirtækið er ekkert að maxa sig, en já væri gaman að fá loksins official skýringu frá Hringdu, menn vilja vita af hverju þetta er að gerast.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 17:54
af Haukursv
Er að lenda í því sama með 50 Mb/s leiðina, fínt innanlands en svona 1-4 Mbs til bna

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 18:07
af chaplin
Hringdu - 100MB/s - WiFi
Router: TP Link Archer 2

Ísland
Mynd

BNA
Mynd
Mynd

England
Mynd

Þýskaland
Mynd

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 18:10
af tordek
Er einmitt búinn að vera með choke upp að ca. 25% í cs. Get ekki horft á twitch í high/source þó ég sé með kapal tengdan í tölvuna (100 mb tenging). 85 til 130 ping á europe north serverum, 65-80 á europe west. Mig langar rosalega að vera hjá hringdu en ég sé fram á að þurfa að fara til vondafone aftur...

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 18:13
af MrIce
Ég er að fara sleppa þeim núna um mánaðarmótin ef þetta skánnar ekki, aftur til vodafone, eins og hvað það er ekki sem ég vildi.

Get ekki horft á twitch yfir höfuð í dag og hef ekkert getað spilað youtube eða online í allan dag..... Whatthehell! :mad

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:17
af gutti
jæja núna get ég ekki horft á ruv.is fésið down þannig ég er spá að fara annað þetta er ekki hægt sérlega um helgi að ræða :thumbsd annað hvort það er Hringiðan eða vodofone þó mar þarf að borga sennilega meira 2 til 3 þús kr meira [-X

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:18
af MrIce
Mynd

500mb tenging... flott þetta :mad [-X

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:25
af sveik
MrIce skrifaði:Mynd

500mb tenging... flott þetta :mad [-X
Sama sagan hjá mér á 100mb. Búið að vera að flakka frá 3-15Mbit niður í dag.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:27
af MrIce
Ég er búinn að fá nóg. Ég ætla að segja upp á morgun og heimta að fá mánuðinn endurgreiddan, þetta er allgjörlega óásættanleg þjónusta.

Vodafone / 365 here i come

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:29
af GullMoli
Erlenda einmitt að detta eitthvað út, kemst ekki á Google t.d.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:33
af Elmar-sa
Shitt hvað það eru margir sem hugsa illa til þeirra núna, heil helgi í svona dellu og ekki orð frá Hringdu til að róa mannskapinn.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:34
af MrIce
Elmar-sa skrifaði:Shitt hvað það eru margir sem hugsa illa til þeirra núna, heil helgi í svona dellu og ekki orð frá Hringdu til að róa mannskapinn.
Ég held að ég verði ekkert sá eini sem er kominn með nóg og segji upp á morgun :/

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:36
af reyniraron
Já það virðist vera eitthvað bölvað vesen einmitt núna. Setti inn playmoTV DNS stillt inn og allt virkar ágætlega. Eitthvað að DNS þjónum Hringdu.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:38
af reyniraron
Samt örugglega eitthvað meira líka, t.a.m. svarar Google DNS ekki fyrirspurnum hjá mér.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:39
af GullMoli
Ég er með Google DNS og er í sömu vandræðum og aðrir..

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:49
af reyniraron
GullMoli skrifaði:Ég er með Google DNS og er í sömu vandræðum og aðrir..
Já Google DNS virðist líka vera mjög leiðinlegt. Northern Europe serverinn hjá playmoTV er hins vegar að virka ágætlega (en þá þarf maður helst áskrift að playmoTV).

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 19:58
af gutti
lágmark ef þeir voru að laga eða gera eitthvað í kerfinu að láta vita fyrirfram það gæti netið væri hægt en sér ekkert á heimsíðunna um það sem er ekki gott !!

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 20:01
af reyniraron
Virðist virka núna…

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 20:12
af worghal
er með google dns í gangi og hef ekki lennt í að neitt detti út, en er búinn að vera að lenda í svakalegur packet loss þrátt fyrir stöðugt MS í leikjum eins og wow og lol, en svo á wow það til að hoppa í 1200+ MS

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 20:19
af fannar82
Tjah. Ég ætla allavega að gefa þeim smá tíma í að redda þessu. Síðast þegar ég var hjá þeim beið eg reyndar í þrjá mánuði þangað til að ég gafst upp og fór til Vondafone og fór þaðan strax aftur útaf bull talningar síu sem er aldrei í lagi.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 21:17
af chaplin
Ég er alveg hæst ánægður með hraðann hjá mér og í raun aldrei orðið var við að Twitch hagi sér illa né YouTube.

Eina skiptið sem ég hef átt í vandræðum með Hringdu var þegar vandamálið var á mínum enda, en það virðist hafa verið routerinn sem var ekki að standa sig.

Nýjustu hraðaprufanir (m. 2 YouTube stream í gangi)

New York
Mynd

London
Mynd

Uppá forvitnina, hvaða router-a eru menn að nota, hvað eru mörg tæki tengd os.frv?

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 24. Apr 2016 21:24
af HringduEgill
Sælir.

Þessi helgi hefur verið mjög slæm eins og þið hafið upplifað. Basically teljum við þetta vera flókna netárás sem kemur og fer og sem reynist afar erfitt að tækla. Það er ömurlegt að þetta vandamál hafi ekki verið leyst af okkar hálfu og hefði verið betra af okkur að gera ykkur grein fyrir stöðunni fyrr um helgina.

Við höfum notið ykkar aðstoðar við að reyna finna út úr þessu sem hefur hjálpað til. Við þiggjum áfram allar ábendingar sem gætuð hjálpað sem þið mættuð annað hvort senda á mig eða gunnih.

Þangað til er það bara risastórt sorry frá okkur.