Síða 6 af 6
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 21:39
af Halli13
Var hérna fyrir nokkrum mánuðum eitthver notandi að biðja um link á eitthvern pirated software og stjórnandi læsti þræðinum (og minnir mig bannaði notandan líka en man það ekki nógu vel til að fullyrða það) sem er svosem gott og gilt en 2-3 vikum seinna var umræða um eitthvern leik og þá var sami stjórnandi sem að sagðist ekki týma að kaupa leikinn en ætlaði að downloada honum ólöglega til að geta prufað hann. Man reyndar ekki hvaða stjórnandi þetta var en kíkti meira að segja í gamla póstinn sem var læst hvort það var ekki örugglega hann sem læsti honum.
Og þá spyr ég, af hverju má ekki venjulegur notandi á spjallborðinu tala um hluti sem að stjórnendur mega tala um, t.d. ólöglegt niðurhal á leikjum/hugbúnaði?
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 21:40
af biturk
það er ekki það sama að óska eftir link eða hjálp við að brjóta lögin og segjast vera spá í að ná í eitthvað ólöglega.........það segir sig alveg sjálft
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 21:43
af axyne
FriðrikH skrifaði:Ég verð nú að segja að mér finnst þessi regla vera algerlega óþarfi þar sem að nánast allir vaktarar eru held ég nokkuð vel að sér í ensku og þetta útilokar bara nokkuð stóran hóp tölvuáhugamanna sem ég væri bara mjög sáttur við að hafa hér til að auka mannflóruna hér á Vaktinni.
Mér þykir mjög miður að sjá þessa reglu og vildi óska eftir umræðu um hana.
Ég er mjög Sammála þessu.
Sé ekkert að því að einstaka sinn komi einhver útlendingur með póst á ensku því hann því hann getur ekki tjáð sig skiljanlega á íslensku.
þeir aðilar sem ekki skilja ensku eða geta ekki tjáð sig skiljanlega sleppa því bara að pósta á þráðin.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 21:49
af Gúrú
Hefði klárlega þýtt þennan þráð fyrir manninn enda tekur það 4-8 sekúndur, eins og ég hef gert 2-3x hérna síðustu 2 árin og fleiri
hafa látið gera fyrir sig og haft "Þráðarhöfundur er útlendingur svo vinsamlegast talið við hann á ensku", held það hafi einn
notandi hérna verið útlendingur með fleiri en fjóra þannig þræði?
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 21:50
af zedro
Búinn að stofna þráð um þessa reglu í stjórnendagrúbbunni, ég mun persónulega berjast fyrir því að afnema þessa reglu
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 22:10
af FriðrikH
Ég er bara ekki alveg að ná því hvaða rök eru fyrir því að banna allt nema íslensku, enda nánast allt lesefni tölvunörda á ensku almennt. Ég væri mjög spenntur að fá að heyra málefnaleg rök fyrir þessari reglu.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 22:33
af GuðjónR
FriðrikH skrifaði:Ég er bara ekki alveg að ná því hvaða rök eru fyrir því að banna allt nema íslensku, enda nánast allt lesefni tölvunörda á ensku almennt. Ég væri mjög spenntur að fá að heyra málefnaleg rök fyrir þessari reglu.
Farðu á ensk forum og talaðu íslensku þar....og sjáðu hvað gerist.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 22:37
af zdndz
GuðjónR skrifaði:FriðrikH skrifaði:Ég er bara ekki alveg að ná því hvaða rök eru fyrir því að banna allt nema íslensku, enda nánast allt lesefni tölvunörda á ensku almennt. Ég væri mjög spenntur að fá að heyra málefnaleg rök fyrir þessari reglu.
Farðu á ensk forum og talaðu íslensku þar....og sjáðu hvað gerist.
þetta væri sambærilegt ef 90% fólksins þar myndir skilja íslensku
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 22:56
af Aravil
GuðjónR skrifaði:auðvitað eru stjórnendur eins misjafnir og þeir eru margir og geta geta gert mistök eins og aðrir, ég veit að ég hef gert þau allmörg í gegnum tíðina
er ég einn um að finnast þetta kaldhæðnislegt?
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 23:23
af rapport
Aravil skrifaði:GuðjónR skrifaði:auðvitað eru stjórnendur eins misjafnir og þeir eru margir og geta geta gert mistök eins og aðrir, ég veit að ég hef gert þau allmörg í gegnum tíðina
er ég einn um að finnast þetta kaldhæðnislegt?
nei
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 23:47
af FriðrikH
Mér finnst þessi breyting eiginlega vera eini neikvæði punkturinn sem ég get fundið af þessu annars frábæra samfélagi sem er hér á vaktinni. Ég vona að þetta verði endurskoðað.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Lau 30. Apr 2011 23:59
af GuðjónR
rapport skrifaði:Aravil skrifaði:GuðjónR skrifaði:auðvitað eru stjórnendur eins misjafnir og þeir eru margir og geta geta gert mistök eins og aðrir, ég veit að ég hef gert þau allmörg í gegnum tíðina
er ég einn um að finnast þetta kaldhæðnislegt?
nei
Og hvar liggur kaldhæðnin?
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Sun 01. Maí 2011 00:13
af Sallarólegur
Held ég sé bara mjög sáttur með stjórnendur á þessum 5 árum. Reyndar finnst mér stundum að það eigi alls ekki að læsa þráðum útaf því að þeir eru komnir "offtopic" heldur bara að leyfa fólki að röfla.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Sun 01. Maí 2011 00:18
af bulldog
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Sun 01. Maí 2011 00:21
af Gúrú
Aravil skrifaði:GuðjónR skrifaði:auðvitað eru stjórnendur eins misjafnir og þeir eru margir og geta geta gert mistök eins og aðrir, ég veit að ég hef gert þau allmörg í gegnum tíðina
er ég einn um að finnast þetta kaldhæðnislegt?
Þú ert að leita að orðinu "íronía" en nei þetta er ekki íronía, það hefði verið íronía þarna ef að GuðjónR hefði sagt eitthvað eins og:
"Stjórnendur á vaktinni geta geta ekki gert mistök", vegna þess að þú myndir ekki búast við því að maður að segja þetta myndi gera mistök við það
(við vitum samt að allir menn geta gert mistök og því ekki hægt að kalla það íroníu að einhver sem að segir þetta geri þau, það er viðbúandi)
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Sun 01. Maí 2011 08:56
af GuðjónR
Gúrú skrifaði:Aravil skrifaði:GuðjónR skrifaði:auðvitað eru stjórnendur eins misjafnir og þeir eru margir og geta geta gert mistök eins og aðrir, ég veit að ég hef gert þau allmörg í gegnum tíðina

Nákvæmlega það sem ég var að hugsa, ef ég hefði sagt að ég gerði aldrei mistök og svo gert þau þarna þá mætti kalla það kaldhæðni...
En að segjast hafa gert fullt af mistökum og síðan hugsanlega gera fleiri getur varla kallast kaldhæðni...
Annars þá ætla ég að gera skoðana könnun um reglu #16 og þið fáið að ráða hvort hún verður eða ekki.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Sun 01. Maí 2011 16:43
af Aravil
Gúrú skrifaði:Aravil skrifaði:GuðjónR skrifaði:auðvitað eru stjórnendur eins misjafnir og þeir eru margir og geta geta gert mistök eins og aðrir, ég veit að ég hef gert þau allmörg í gegnum tíðina
er ég einn um að finnast þetta kaldhæðnislegt?
Þú ert að leita að orðinu "íronía" en nei þetta er ekki íronía, það hefði verið íronía þarna ef að GuðjónR hefði sagt eitthvað eins og:
"Stjórnendur á vaktinni geta geta ekki gert mistök", vegna þess að þú myndir ekki búast við því að maður að segja þetta myndi gera mistök við það
(við vitum samt að allir menn geta gert mistök og því ekki hægt að kalla það íroníu að einhver sem að segir þetta geri þau, það er viðbúandi)
Jújú, mikið rétt, þetta er auðvitað ekki kaldhæðni. Ætla að afsaka mig með því að segjast hafa verið að flýta mér að finna orð yfir þetta.
Afsakið líka offtopic umræðu.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Mán 23. Maí 2011 14:04
af Daz
viewtopic.php?f=11&t=38714Var þetta ekki helst til hart? Er ég orðinn of linur?
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Mán 23. Maí 2011 14:50
af FreyrGauti
Daz skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=38714
Var þetta ekki helst til hart? Er ég orðinn of linur?
Er þetta kaldhæðni hjá þér eða sérðu virkilega ekkert að söluauglýsingu sem hefur engar aðrar upplýsingar en mynd af vöruni og að hún sé biluð?
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Mán 23. Maí 2011 15:35
af Daz
Kaldhæðni? Var bara að velta fyrir mér afhverju virkum söluþræði var lokað, þegar mögulegt hefði verið að biðja OPinn um að t.d. uppfæra upplýsingar. Svona þar sem einhverjir höfðu verið að pósta fyrirspurnum um vöruna.
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Mán 23. Maí 2011 16:20
af coldcut
Seljandi hefur fengið aðvaranir áður fyrir sama hlut þannig að frá mínum bæjardyrum var ekkert annað í stöðunni en að læsa.
Áhugasamir geta ennþá talað við hann í PM!
Re: Ef stjórnendur standa sig ekki hvað þá?
Sent: Mán 23. Maí 2011 21:51
af Daz
coldcut skrifaði:Seljandi hefur fengið aðvaranir áður fyrir sama hlut þannig að frá mínum bæjardyrum var ekkert annað í stöðunni en að læsa.
Áhugasamir geta ennþá talað við hann í PM!
Fair enough.
En fyrir okkur sem munum ekki hvert einasta skeyti sem fer hér í gegn er ekki beint ljóst að nákvæmlega þessi aðili hafi átt nákvæmlega þessa meðferð skilda(?) .
Hefur ekki komið umræðan um að koma upp spjaldakerfi? Svo við hinir getum híað á slugsana.